Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
Ýtarlega rökstudd grein eftir prófessorinn, Peter Ørebech, birtist í Morgunblaðinu í dag: 'Icesave og gagnrýni á athugasemd ESA'. Hann segir það beinlínis brot á lögum ESB, tilskipun 94/19/EC, um innistæðutryggingakerfi fjármálastofnana í aðildarríkjunum, ef þjóðríki væri látið ábyrgjast greiðslurnar". Hann er ósammála nýlega birtu áliti ESA, segir að "hvorki íslenska ríkisstjórnin né íslenska þjóðin eigi að borga fyrir Icesave-hrunið" (mbl.is).
Það er svo sannarlega markverð ábending Ørebechs, að í tilskipuninni (sem við meðtókum með lögum árið 1999) er sagt að innistæðutryggingakerfi í hverju ESB/EES-aðildarríki skuli bera ábyrgð á allt að 20.000 evrum, mikilvægt sé, segir hann, að vekja athygli á orðunum allt að. Fjárhæðin er ekki, eins og ESA heldur fram, lágmarksfjárhæð sem beri að ábyrgjast. Um er að ræða hámark.
Þegar menn átta sig á þessu, snýr dæmið býsna ólíkt við þeim, sem tóku ranga pólinn í hæðina. Enn merkilegra er þó, að það erum við Íslendingar sem þurfum að berjast fyrir því, að tilskipun ESB verði virt, en ekki brotin af tveimur mikilvægum meðlimaríkjum ESB, sem njóta stuðnings framkvæmdastjórnar þess, þeirrar sem strax haustið 2008 tók þátt í því ásamt m.a. fulltrúa Evrópska seðlabankans í skríparéttarhöldum óbindandi gerðardóms að dæma okkur til að borga Icesave!!!
Mnn lesi endilega greinina, sem er í opnu Moggans í dag, hún er algert sprengiefni.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Segir Ísland ekki mega borga fyrir Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.8.2010 | 12:27
"ESB segir ESA hafa reglulega staðfest ágæti regluverks Íslands" um tryggingasjóð innistæðueigenda
Steingrímur J. er á Icesave-buxunum kannski þess vegna sem hann vanrækti að svara fráleitu áliti ESA fullum hálsi fyrir tilskilinn frest, 1. ágúst. En ÞETTA VERÐA ALLIR AÐ LESA, Egill í Brimborg skrifar:
Ég vona að þeir félagar, Steingrímur og Gylfi, hafi bent ESA á þennan texta í skýrslu framkvæmdastjórnar ESB sem hún sendi frá sér 24. febrúar 2009. Þar segir að Ísland hafi náð ásættanlegum árangri (svipað og meðaltal allra ESB landa) við innleiðingu regluverks ESB í samræmi við EES samninginn.
In general, Iceland has a satisfactory track record in implementing its EEA obligations.
According to the EFTA Surveillance Authority (ESA), the percentage of internal market legislation introduced into national legislation as required by July 2009 is at the same level as the average for EU Member States. [...]
Tilvitnun lýkur.
Þetta er bara upphafið að grein Egils. Lesið hana! Þarna er það afsannað, sem fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB hélt fram, að Íslendingar hafi ekki innfært tilskipun ESB nr. 94/19/EC um tryggingasjóði innistæðueigenda á réttan hátt. Þarna staðfestir ESB, að ESA (Eftirlitsstofnun EFTA) hafi "reglulega staðfest ágæti regluverks Íslands". Þurfa menn frekar vitnanna við?!
ALDREI hafði verið kvartað frá Evrópu yfir löggjöf okkar frá 1999, þar sem tilskipun ESB var innleidd, og frá stofnun Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) árið 2000, á grunni nefndra laga, var aldrei kvartað yfir því, hvernig hann inheimti iðgjöld sín frá bönkum og öðrum fjármálafyrirtækjum né yfir öðru í starfsemi TIF.
Framkvæmdastjón (e.k. ríkisstjórn) ESB stendur þannig uppi ber að skröki og í mótsögn við sjálfa sig, en við þökkum þó fyrir þessa fyrri viðurkenningu sannleikans, þótt hún sé frá 24. febrúar 2009!
Þarf ekki Steingrímur að hafa buxnaskipti sem fyrst?
Jón Valur Jensson.
![]() |
ESA gaf lengri frest til svara um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.8.2010 | 23:49
Steingrímur J. Sigfússon: "Við höfum gert okkur VONIR um að það komist hreyfing á hlutina" = að semja sem fyrst við óvini okkar um Icesave!!!
"Eins og við sögðum strax í júní, þegar viðræðunum lauk þá, þá gerðum við okkur vonir um og gerum enn, að þær hefjist núna strax að afloknum sumarleyfum. Það er sérstaklega í Bretlandi, sem að þetta liggur niðri núna í ágústmánuði, en við höfum gert okkur vonir um að það komist hreyfing á hlutina strax eftir það." Það er ekki komin föst dagsetning? "Nei, það er ekki komin föst dagsetning."
Þannig svaraði Steingrímur spurningu fréttamanns Mbl.is, sem var þessi: Hvenær hefjast Icesave-viðræður að nýju? Upphaf svars Steingríms var þetta: "Ja, við getum ekki tímasett það nákvæmlega, en eins og við sögðum strax í júní," o.s.frv. (sjá hér efst).
Nú þarf þjóðin að fara á kreik á ný, mótmælaspjöldin upp á næstunni, til að vekja athygli á þvi, að enn verður reynt að fremja þau svik, sem einna alvarlegust er hægt að hugsa sér gegn íslenzkri þjóð.
- AFP fréttastofan hafði það eftir ónafngreindum heimildarmanni innan íslensku ríkisstjórnarinnar sl. föstudag að fulltrúar Íslendinga, Breta og Hollendinga muni eiga formlegan fund á næstu vikum til að ræða um nýtt samkomulag um Icesave-skuldbindingarnar [sic]. (Mbl.is.)
Það er skuggalegt ástand í landinu, að ráðamenn séu þannig þenkjandi, að þeir "geri sér vonir um" (sic!!!) að geta samið um hina allsendis ólögvörðu, reyndar ólöglegu Icesave-kröfu brezkra og hollenzkra stjórnvalda.
Þetta hyggjast þeir gera strax í næsta mánuði !!
Það er eins og stjórnvöld hafi ekkert tekið eftir viðurkenningu framkvæmdastjórnar ESB á því, að EES-ríki beri EKKI ábyrgð á innstæðum í föllnum bönkum umfram það sem innstæðutryggingasjóðir geta greitt*, og þau í Stjórnarráðinu virðast ekkert mark taka á þeirri ábendingu Ólafs Ísleifssonar hagfræðings, að staða Íslands í Icesave-deilunni hefur styrkzt við yfirlýsingu fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB (Ólafur furðaði sig á því að ríkisstjórnin hafi ekki fært sér það í nyt).
Vaknið, Íslendingar! Látum þau ekki svíkja okkur einu sinni enn.
* Sjá einnig þessar greinar:
ABC Nyheter opinbera þverstæður í málflutningi evrópskra stofnana um Icesave-málið
Spurningar Thomasar Vermes til fulltrúans Michels Barnier í framkvæmdastjórn ESB um innistæðutryggingar og hugsanlega ábyrgð ríkja á þeim
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: ESB staðfestir að það var EKKI ríkisábyrgð á innistæðutryggingasjóðum
Ólafur Ísleifsson conomicus og Bjarni Benediktsson politicus: Staða Íslands styrktist við yfirlýsingu fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB
Svör fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB við spurningum ABC Nyheter hér kom í ljós, að í reglugerð ESB er ENGIN RÍKISTRYGGING innistæðu-tryggingasjóðanna
Merkar ábendingar Styrmis Gunnarssonar um tvær nýjustu fregnir af Icesave-málinu
ICEsave er algjörlega klúður Evrópusambandsins
Innheimta ESB á Icesave-kröfum.
Á að gefa Steingrími Joð, Jóhönnu og Össuri enn eitt færi á því að svíkja þjóðina í Icesave-málinu?
Ádrepa um Icesave-málið, eftir Karl Jónatansson
Jón Valur Jensson tók saman.
![]() |
Ekki komin dagsetning á viðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 21.8.2010 kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2010 | 20:17
Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave eftir landshlutum
Þetta frábæra kort sáum við á vefsíðu Baldurs Ágústssonar, fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Þetta á svo sannarlega skilið að varðveitast með öðrum góðum gögnum um Icesave-málið hér á vefsíðu Þjóðarheiðurs samtaka gegn Icesave. Já, sjáið hinn afgerandi vilja þjóðarinnar birtast hér, í öllum landshlutum!
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2010 | 06:25
Skýrsla um fall Landsbankans minnist 60 sinnum á Icesave-málið
Björn Jón Bragason sagnfræðingur hefur tekið saman skýrslu, sem nefnist 'Aðdragandi falls Landsbanka Íslands hf. Greinargerð í ágúst 2009.' Hefur hún nú (á nýliðnum degi) verið gerð opinber. Í henni kemur orðið Icesave 60 sinnum fyrir. Þjóðarheiður samtök gegn Icesave hafa ekki rætt svo nýútkomna skýrslu (55 bls. að stærð), en í henni kemur margt athyglisvert fram, m.a. um Icesave-málið, þó að einnig það geti verið háð takmörkunum rúms og tíma, túlkunum og takmarkaðri sýn skýrsluhöfundar og heimildarmanna hans, en skýrslan er unnin að frumkvæði Björgólfs Guðmundssonar, fyrrverandi formanns bankaráðs Landsbankans. Hætt er við, að þar gæti viðleitni ýmissa til að réttlæta sig eftir á, ef skýrslan byggir um of á slíkum túlkunum, en hér er því þó ekki haldið fram að óreyndu.
Taka ber fram, að skýrslan er byggð á fjölmörgum gögnum, samtímaheimildum í blöðum og öðrum fjölmiðum (fréttum, Kastljósþáttum o.fl.) og vefmiðlum, viðtölum við fyrrverandi bankastjóra Landsbankans og Björgólf Thor Björgólfsson, við Björgvin G. Sigurðsson og aðstoðarmann hans, Jón Þór Sturluson, einnig Tryggva Þór Herbertsson, fyrrv. efnahagsráðgjafa Geirs Haarde forsætisráðherra, o.fl. menn, m.a. Jónas Fr. Jónsson, fyrrv. forstjóra FME, og Kjartan Gunnarsson, sem sat í bankaráði Landsbankans, ennfremur er byggt á gögnum og minnisblöðum Landsbankans og tölvusamskiptum, en meira þó á ýmsum opinberum gögnum, þ.m.t. þingræðum, gögnum frá ráðuneytum og embættismönnum, t.d. minnisblöðum Sverris Hauks Gunnlaugssonar, þáv. ambassadors í Lundúnum, svo og viðtali Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra við Alistair Darling, breskan starfsbróður sinn, 7. október 2008, einnig á bréfi breska fjármálaeftirlitsins til Landsbanka Íslands, dags. 3. október 2008 (nmgr. 104), og 6. október 2008 (nmgr. 186) og bréfi Hectors Sants, forstöðumanns breska fjármálaeftirlitsins, til bankastjóra Landsbanka Íslands hf., dags. 13. október 2008 (nmgr. 188) ásamt bréfi bankastjóra Landsbanka Íslands hf. til breska fjármálaeftirlitsins, dags. 7. október 2008; þá er oft vitnað í bók Guðna Th. Jóhannessonar: Hrunið. Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar, og minna í bók Ólafs Arnarsonar: Sofandi að feigðarósi, ennfremur byggt á "ótilgreindum heimildarmönnum" (einum 31 talsins) og á minnisblöðum höfundar sjálfs.
Hér er þessi Skýrsla um fall Landsbankans í heild. Fróðlegt verður að fylgjast með umræðum um fram komið efni hennar, sem er að vísu margt alkunnugt, þótt annað sé ekki, og eiga menn eflaust eftir að deila nokkuð um ýmis sjónarmið manna, sem fram koma í henni, um ályktanir og niðurstöður.
J.V.J. tíndi saman.
![]() |
Bildt var fjandsamlegur í garð Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 06:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.8.2010 | 22:03
Ádrepa um Icesave-málið, eftir Karl Jónatansson
Í greininni ESB-hættan eftir Karl Jónatansson (Mbl. í gær) ræðir hann í seinni hlutanum um Icesave-málið. Sannarlega verðskuldar viðhorf hans að varðveitast hér.
- Við erum nú þegar búin að sjá og finna fyrir því hvernig ESB-þjóðir (svokallaðar vinaþjóðir okkar) koma fram við okkur í peningamálum, sbr. Breta og Hollendinga með Brussel að bakhjarli í Icesave-deilunni. Þessum gömlu nýlendukúgurum finnst við líklega nú þegar vera ein af nýlendum þeirra sem er ekki óeðlileg ályktun af þeirra hálfu ígrunduð á augljósum og móðursýkislegum áhuga ráðandi flokks í sitjandi ríkisstjórn á að gangast undir vald þeirra.
- Vitaskuld er ekkert vit í að við tökum að okkur að greiða risaskuld, sbr. Icesave, sem við höfum ekki stofnað til, heldur var um að ræða einkabanka í eigu Íslendinga sem rekinn var á erlendri grundu og ábyrgð á því hvernig fór alfarið á ábyrgð þarlendra stjórnvalda sem trössuðu að framfylgja því að lögbundnar tryggingar væru fyrir hendi til að fyrirbyggja það sem gerðist.
- Bretar og Hollendingar með Brussel að bakhjarli eru því hér í hlutverki handrukkara og aðferðirnar eru nákvæmlega þær sömu þ.e. að innheimta skuldir sem aldrei var stofnað til með hótunum um ofbeldi ef fórnarlambið neitar að borga.
- Þetta eru þjóðirnar sem reynt er að telja okkur trú um að séu í raun vinir okkar og bandamenn sem okkur beri að afhenda sjálfstæði okkar og rétt til að nýta auðlindir okkar eins og okkur sýnist best. Ég segi: Flestir núverandi óvinir okkar eru samansafnaðir í ESB. Vinir okkar eru annars staðar.
- Neitum að greiða skuldir óreiðumanna og höldum sjálfstæði okkar og reisn með því að hafna innlimun Íslands í ESB.
- Höfundur er fv. tónlistarkennari.
Við þökkum Karli Jónatanssyni þessi skeleggu skrif, sem eru endurbirt hér með góðfúslegu leyfi hans.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.8.2010 | 10:46
Á að gefa Steingrími Joð, Jóhönnu og Össuri enn eitt færi á því að svíkja þjóðina í Icesave-málinu?
Talað er um það í fréttum í gær skv. APF-fréttastofunni, að fulltrúar Íslendinga, Breta og Hollendinga muni "eiga formlegan fund á næstu vikum til að ræða um nýtt samkomulag um Icesave-skuldbindingarnar" [sic]. Samt er ljóst, að það var engin ríkisábyrgð á tryggingasjóðum innistæðna í bönkum á EES-svæðinu! Það hefur framkvæmdastjórn ESB viðurkennt, þó að hún þjóni hins vegar lund brezkra og hollenzkra ofríkismanna í stjórnkerfi þeirra gömlu nýlenduvelda með því að finna sér til tvær alrangar forsendur til að gera þá undantekningu að láta íslenzka ríkið ekki njóta jafnréttis í þessu efni á við önnur ríki.
Einarður er leiðari Morgunblaðsins um þetta mál í dag og gott dæmi um rökleikni og málafestu í þeim ritstjórnargreinum í þessu efni eins og mörgum öðrum þess vegna er hann birtur hér í heild, því að þjóðin og Íslendingar erlendis þurfa að njóta fyllsta aðgangs að þessum sannindum:
- Varðstaðan heldur áfram
- Fregnir berast nú af því að ríkisstjórn Íslands sé loks að takast að draga bresk og hollensk stjórnvöld að samningaborðinu á ný vegna Icesave. Sá draugur ætlar að verða þrautseigur enda hefur ríkisstjórnin einstakt lag á að halda honum við og vekja hann upp.
- Ekkert bendir til að afstaða ríkisstjórnarinnar til málsins hafi breyst. Þegar framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lýsti því yfir að engin ríkisábyrgð væri á innistæðum taldi ríkisstjórnin það ekki styrkja stöðu sína. Svo kom loks að því að ríkisstjórnin vaknaði upp við að þetta kynni að sæta tíðindum, en þá var gripið til þess snjallræðis að senda fyrirspurn til framkvæmdastjórnarinnar til að gefa henni færi á að útskýra sig frá yfirlýstri afstöðu sinni.
- Enginn þarf að efast um að sama hvert svar framkvæmdastjórnarinnar verður þá mun ríkisstjórn Íslands telja vígstöðu landsins vonlausa og krefjast tafarlausrar uppgjafar meirihluta þings og þjóðar. Varðstaðan fyrir skattgreiðendur í þessu sérkennilega máli heldur því áfram.
J.V.J.
![]() |
Icesave-viðræður á næstu vikum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.8.2010 | 21:15
Innheimta ESB á Icesave-kröfum.
ESB vinnur að því að innheimta Icesave-kröfurnar. Þeir viðurkenna að kröfurnar séu ekki lögvarðar, en við eigum samt að greiða þær vegna rangra fullyrðinga þess efnis að innlánatryggingarnar hafi ekki verið innleiddar á réttan hátt.
Ég bendi á að tvö mál eru samtvinnuð. Það er Icesave og ESB-umsóknin. Þetta er grunnatriði.
Það á að koma okkur undir yfirráð erlends stórveldis hvað sem það kostar. Liður í þeirri viðleitni er að koma okkur á hnén með Icesave-greiðslum. Þetta mál er allt slík svívirða að vart verður trúað en er samt staðreynd.
Ég sé ekki betur en að 86. og 87. greinar almennra hegningarlaga banni ESB aðildarferlið alfarið og raunverulega Icesave samningana einnig vegna þess að þeir vega að sjálfstæði þjóðarinnar. Hér eftir fylgir úrdráttur úr lögunum.
"X. kafli. Landráð.
86. gr. Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ofbeldi, hótun um ofbeldi, annarri nauðung eða svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.
87. gr. Geri maður samband við stjórn erlends ríkis til þess að stofna til fjandsamlegra tiltækja eða ófriðar við íslenska ríkið eða bandamenn þess, án þess að verknaðurinn varði við 86. gr., þá varðar það fangelsi ekki skemur en 2 ár eða ævilangt. Sé þetta í því skyni gert að koma erlendu ríki til þess að skerða sjálfsákvörðunarrétt íslenska ríkisins á annan hátt, þá varðar það fangelsi allt að 8 árum."
Einnig hefur verið bent á að ákvæði í 91. greininni hafi verið brotin í viðræðum við fulltrúa erlendra stórvelda.
"91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem falsar, ónýtir eða kemur undan skjali eða öðrum munum, sem heill ríkisins eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin.
Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri."
Við skulum gæta að því að harkan sem er í því að gera Íslendinga greiðsluskylda í Icesave-málinu er til þess sniðin að knýja þjóðina til að svíkja stjórnarskrá og lög til að gangast undir erlend yfirráð.
Þessir menn gæta ekki að því að til þess að við megum afsala okkur sjálfstæðinu verðum við fyrst að breyta stjórnarskránni á lögmætan hátt. Þá fyrst getum við afsalað okkur sjálfstæðinu ef nýja stjórnarskráin beinlínis heimilar það.
Þeir vita að þetta muni verða erfiðleikum bundið.
Þess vegna ætla þessir menn að koma okkur inn í ESB með stjórnarskrárbrotum á þann hátt að ganga frá Icesave-málinu gegn vilja 98% greiddra atkvæða í þjóðarkosningunni og í algeru umboðsleysi.
Síðan með aðildarferli sem gengur út á að framkvæma alls kyns lagabreytingar og aðrar aðgerðir til aðlögunar og nánast ekkert verði eftir þegar þjóðarkosning verður, sem einungis verður ráðgefandi.
Athugum að þeir sem stjórna hér fara ekkert endilega að lögum nema þegar þeim hentar.
Páll Ragnar Steinarsson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Stórmerk og tíðindaverð er grein Styrmis Gunnarssonar, fv. ritstjóra, í Sunnudagsmogganum í fyrradag. Hann ræðir þar m.a. Icesave-málið í ljósi síðustu frétta og segir þar:
"Vefmiðillinn Euobserver, sem fylgist daglega með því, sem gerist á vettvangi ESB, sagði sl. miðvikudag, að leiðtogafundur Evrópusambandsins 17. júní sl. hefði gert Icesave-málið að sameiginlegu máli ESB-blokkarinnar en utanríkisráðherra Íslands og embættismenn hans hafa haldið því fram, að svo væri ekki.
Nú hefur framkvæmdastjórn ESB tekið undir það sjónarmið meirihluta Íslendinga, að ríki á EES-svæðinu beri ekki ábyrgð á bankainnistæðum eins og fram kom í frétt á mbl.is sl. miðvikudag um svar framkvæmdastjórnarinnar við fyrirspurn norska vefmiðilsins ABC Nyheter. Þótt framkvæmdastjórnin reyni að halda því fram, að íslenzkir skattgreiðendur beri slíka ábyrgð af öðrum ástæðum hefur þetta svar hennar grundvallarþýðingu. Yfirlýsing framkvæmdastjórnarinnar er staðfesting á því, að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hefur ítrekað gert samninga við Breta og Hollendinga um að borga þeim nokkur hundruð milljarða á þeirri forsendu, að íslenzka ríkið bæri slíka ábyrgð, hefur haft rangt fyrir sér."
Grein Styrmis, á bls. 26 í Sunnudags-Mogganum, er öll afar læsileg og íhugunarverð, hún er hér á netinu: Áróðursherferð Evrópusambandsins.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 02:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2010 | 01:41
Svör fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB við spurningum ABC Nyheter – hér kom í ljós, að í reglugerð ESB er ENGIN RÍKISTRYGGING innistæðu-tryggingasjóðanna
Hér birtum við um daginn svör Michels Barnier, fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar (EC, sem í reynd er yfirríkisstjórn bandalagsríkjanna). Hér er seinni hluti svaranna þýddur:
4. spurning.
Þvert á þá afstöðu sem ríkir í Bandaríkjunum, fullyrti ESA (eftirlitsstofnun EFTA) 26. maí 2010, að íslendska ríkið væri í ábyrgð fyrir yfirþyrmandi tapi bankastofnana, sem íslendska innistæðutrygginga-kerfið gæti ekki staðið undir. Þessi ábyrgð væri til staðar jafnvel þótt íslendska innistæðutrygginga-kerfinu hafi verið komið á fót í samræmi við tilskipun (94/19/EB) Evrópusambandsins um innistæðutryggingar, sem ESA hafði fengið til skoðunar fyrir fjölmörgum árum. Er ákvörðun ESA skilaboð til allra ESB/EES-ríkjanna, að skattgreiðendur þessara landa séu ábyrgir fyrir hreingerningum eftir bankahrun ?
Svar við 4. spurningu: Það er ekki venja Framkvæmdastjórnarinnar að gera athugasemdir við ákvarðanir ESA eða túlka þær. Þarna er um sérstakt tilvik að ræða.
5. spurning.
Er tilvik Íslands fyrsta ákæran þar sem þessi spurning er til umfjöllunar ?
Svar við 5. spurningu: Við höfum ekki tíma til að svara þessari spurningu.
6. spurning.
Er niðurstaða ESA varðandi Ísland í samræmi við afstöðu Framkvæmdastjórnarinnar, hvað varðar innistæðutryggingar ?
Svar við 6. spurningu: Framkvæmdastjórnin er sammála lögfræðigreiningu ESA, varðandi túlkun á Tilskipun 94/19/EB um innistæðutrygginga-kerfi í tilviki Íslands. Það er mat Framkvæmda-stjórnarinnar að í hinu sérstaka tilviki Íslands stafi skylda íslendska ríkisins til að endurgreiða þær fjárbætur sem íslendska innistæðutrygginga-kerfinu ber að greiða innistæðu-eigendum í Evrópusambandinu, af galla við að framkvæma tilskipun 94/19/EB í Íslandi. Geta innistæðutrygginga-kerfisins var ekki í samræmi við þá stærð og áhættu, sem íslendska bankakerfið skapaði. Að auki er hægt að tilgreina, að sú yfirsjón að bæta ekki innistæðueigendum í Evrópusambandinu tjón sitt var mismunun í samanburði við innistæðueigendur á Íslandi, sem fengu fullar bætur og urðu því ekki fyrir neinu fjárhagstjóni vegna banka-hrunsins.
Þýðandi: Loftur Altice Þorsteinsson verkfræðingur.
Hér er svo að sjálfsögðu full ástæða til að minna á, hve ógild og einskis nýt þessi rök framkvæmdastjórnarinnar fyrir undantekningnni, sem hún vill gera á málum varðandi Ísland, er frá hinni almennu reglu um engar ríkisábyrgðir á tryggingasjóðum innistæðueigenda.
Í 1. lagi er það í raun fagnaðarefni, að loksins í þessu síðbúna svari framkvæmdastjórnarinnar kemur fram, að hún byggir þarna á þeirri fáfengilegu röksemd, sem aldrei hefur heyrzt í öllu þessu deilumáli fyrr en nú, að galli hafi verið á framkvæmd tilskipunar ESB (94/19/EC) hér á landi. En aldrei sagði Evrópusambandið orð í þá veru, aldrei gerði ESA, sem fettir fingur hér á landi út í jafnvel alls konar smáatriði að sögn stjórnarráðasmanna, hina minnstu athugasemd um ranga framkvæmd tilskipunarinnar né um lagalega innfærslu hennar hér á landi með löggjöf í árslok 1999 og stofnun Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) árið 2000.
Því fer fjarri, að uppsöfnun iðgjalda bankanna til TIF hafi verið með röngum hætti. Hún fór fram með nákvæmlega réttum hætti "samkvæmt bókinni"; ef svo hefði ekki verið, hefðum við fengið harðorðar athugasemdir frá ESA og frá brezku og hollenzku fjármálaeftirlits-stofnununum (FSA og hollenzka seðlabankanum) og raunar misst starfsleyfi Landsbankans í Bretlandi, a.m.k. fyrir Icesave-reikingunum.
Hina "röksemd" framkvæmdastjórnar ESB hafa Stefán Már Stefánsson prófessor, sérfræðingur í Evrópurétti, Lárus L. Blöndal hrl. og Sigurður Líndal lagaprófessor þegar hrakið út í æsar. Því fer fjarri, að hér á landi hafi verið beitt "mismunun á grundvelli þjóðernis". (Sjá t.d. grein Stefáns og Lárusar: Um mismunun á grundvelli þjóðernis (Mbl. 13. jan. 2010, og grein þeirra tveggja og Sigurðar Líndal: Lagarök um Icesave (Mbl. 14. jan. 2010), kaflann 'Um mismunun á grundvelli þjóðernis').
Þessi tíðindi frá framkvæmdastjórninni eru í raun gleðileg. Þau sýna í raun, að botninn er suður í Borgarfirði fyrir þeirri fullyrðingu hennar, að eyþjóðin litla, Íslendingar, eigi að setjast undir einhverja harða pyntingarskrúfu erlendra ríkja vegna starfsemi einkabanka og ábyrgða TIF, sem þeir í Brussel gera þessa einu undantekningu á, að skuli EKKI njóta þess verndarákvæðis ríkisins í Tilskipun 94/19/EC, að ekki sé hægt að gera neina kröfu til ríkisábyrgðar á tryggingasjóðum á ESB/EES-svæðinu.
Heyjum þessa baráttu áfram og vinnum hana, hvað sem raular og tautar í hinu furðulega meðvirka fjármálaráðuneyti! Afstaða Steingríms J. Sigfússonar er í einu orði sagt sorgleg.
Málstaður Íslands er hinn rétti. Við ætlum sannarlega ekki að gefa hann frá okkur álit framkvæmdastjórnarinnar er í grundvallaratriðum (sjá einkum HÉR) staðfesting á réttmæti og réttsýni þess viðhorfs og þeirrar stefnu Þjóðarheiðurs, samtaka gegn Icesave, sem meirihluti þjóðarinnar fylgir í reynd, eins og sást með afgerandi hætti í öndverðum marzmánuði (sjá hér: Hartnær 60% aðspurðra segja: Við viðurkennum alls enga ábyrgð Íslendinga á Icesave-greiðslum til Bretlands og Hollands!).
Um leið og við þökkum Thomasi Vermes, blaðamanni ABC Nyheter, fyrir elju hans og árangur í þessu máli, vísum við á greinar hér, sem sýnt hafa góð og eðlileg viðbrögð málsmetandi manna við þessum fréttum af viðhorfum Brusselmanna í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. En í 1. lagi er hér samantekt okkar um fyrri hluta svaranna (smellið á nöfn greinanna):
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: ESB staðfestir að það var EKKI ríkisábyrgð á innistæðutryggingasjóðum
Ný grein afar áhugavert álit birtist hér kl. 10.00 í fyrramálið, þriðjudag.
Jón Valur Jensson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 02:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)