Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2019

Prófessorum getur skjöplazt

Sorglega vitlausa grein eftir Stefán Ólafsson prófessor rak á fjörur und­ir­ritaðs, með hlá­lega rangri spá um úrslit Ice­save-máls­ins. Nú værum við búin að borga yfir 80 millj­arða í eina saman vexti, óafturkræfa, af Buch­heit-samn­ingn­um (og allt í evrum og pundum), hefði hann verið samþykktur í þjóðar­atkvæða­greiðslu, en það var hann ekki, og það var ekki Stefáni Ólafssyni, Steingrími, Össuri og Jóhönnu að þakka.
 
 
Það, sem jafnvel væri verra en 80 ma.+ skellurinn, væri það að fá EKKI sýknudóm EFTA-dóm­stólsins, heldur una við það, að málið færi EKKI þangað og að þar með sætum við uppi með þá meintu skömm að hafa brotið lög og rétt á Bretum og Hollend­ingum! En því fór víðs fjarri, að við gerðum það! Við vorum þvert á móti saklaus í málinu frá byrjun, og dómstóllinn lét okkur ekki einu sinni þurfa að borga okkar málskostnað.
 
 
Orð Stefáns Ólafssonar, að Buchheit-samningurinn hafi boðið upp á "siðlega lausn á milliríkjadeilu með samningi og viðráðanlegum kostnaði" eru því öfugmæli og honum sjálfum til skammar að hafa lagzt gegn málstað og rétti Íslands. Hann er ekki ýkja marktækur í augum undirritaðs með þetta í farteskinu.
 
Prófessorum getur skjöplazt. Það átti við um Gylfa Magnússon, Þórólf Matthíasson, Baldur Þórhallsson og fleiri í þessu Icesave-máli -- og einnig Stefán Ólafsson.
 
Jón Valur Jensson.

mbl.is Bresk stjórnvöld létu Ísland róa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband