Ices­a­ve-samn­ing­ar Svavars, Steingríms J. og Jóhönnu voru skrifaðir "á óviðeigandi máli Versala-samn­ing­anna, tungutaki einræðis". Afhjúpandi viðtal við lykilmann!

Svo ein­hliða voru samn­ing­arn­ir að sögn Carls Bau­den­bacher, forseta EFTA-dóm­stólsins þegar dóm­ur féll í Ices­a­ve-mál­inu 28. janú­ar 2013. Fram­kv.­stjórn ESB tók þátt í máli Bretlands og Hollands gegn Íslandi, "og því fylgdi viss pressa," segir hann í afar fróðlegu viðtali við Morg­un­blaðið í dag, bls. 34-35.

Með þessu er enn betur staðfest en áður, hve sterk réttarstaða Íslands var og hve réttsýn var andstaðan hér við Icesave-samningana, andstætt stefnu Jóhönnustjórnar, sem vildi láta bjóða sér þvílíka uppgjafarsamninga. Þetta voru hennar "Versalasamningar" (við vitum hve illa fór með þá fyrri, urðu jafnvel átylla heimsstyrjaldar!).

Gegn þessu landsöluliði stóð almenningur, grasrótarsamtök eins og InDefence, Þjóðarheiður, samtök gegn Icesave, og Samstaða þjóðar gegn Icesave, sem nutu velvildar og ómetanlegs tilstyrks forseta Íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar. Þess ber að minnast á þessum tíma, og þar rís nafn Ólafs Ragnars hæst, en einnig Lofts Altice Þorsteinssonar verkfræðings, sem af óþreytandi elju og vísindalegri nákvæmni rannsakaði allan grundvöll málsins í erlendum skjölum, reglu­gerðum og reglum fjármálastofnana, skrifum beztu fræðimanna vestan og austan hafs og með bréfaskiptum við þá. Og í þriðja lagi ber að heiðra hér leiðtoga og aðra baráttumenn eina stjórn­mála­flokksins sem barðist gegn öllum Icesave-samning­unum á þingi, en sá leiðandi maður (tengdur InDefence-hópnum) var Sigmundur Davíð Gunn­laugs­son, þáverandi formaður Framsóknar­flokksins, en nú Miðflokksins. Síðasti Icesave-samning­urinn frá Alþingi, kenndur við Buchheit, var samþykktur af þremur fjórðu allra alþingis­manna, og er alveg ljóst, að ef Framsóknar­flokkurinn hefði ekki barizt gegn þeim samningi, hefði forsetinn haft lítið svigrúm sem ekkert til að synja lögunum undir­skriftar sinnar, með kannski 90% þingmanna á móti sér.

Mesta hetjan var Ólafur Ragnar Grímsson, sem virkjaði ekki aðeins 26. grein stjórnar­skrárinnar til að hafna því að staðfesta þessi Icesave-ólög, heldur hafði einnig barizt glæsilega, víða á erlendum vettvangi virtustu fjölmiðla, í þágu þjóðarinnar og íslenzkra landsréttinda.

Öll var sú barátta réttmæt og í samræmi við ýtrasta lagabókstaf, þótt andstæð­ingar okkar héldu öðru fram í lágkúrulegri þjónkun sinni bæði við eigin flokka hér heima og við ógnandi ríkisstjórnir Bretlands og Hollands, sem nutu samstöðu sjálfs Evrópu­sambandsins í málinu (og ekki aðeins í formi meðaðildar ESB að málshöfðun UK og Hollands til EFTA-dómstólsins; hefur sú saga verið rakin á þessu vefsetri og er ávallt tiltæk; menn geta jafnvel smellt hér á mánaðarleg yfirlit vefgreina okkar Þjóðar­heiður­smanna, neðst í dálkinum hér til vinstri, t.d. smellt á Janúar 2013, og rakið alla þessa sögu fram og til baka, síðan þessi samtök voru stofnuð í febrúar 2010).

Og ekki ber að gleyma hér sjálfri þjóðinni, sem tvívegis hafnaði Icesave-samningum með stolti og neytti þar réttar síns í þjóðar­atkvæða­greiðslum í boði herra Ólafs Ragnars! Ríkissjóður Íslands og þjóðin sjálf hefur verið hreinsuð af lögbrota-ásökun Gordons Brown og fjármála­ráðherra hans, Alistairs Darling, ríkisstjórnar Hollands og framkvæmda­stjórnar sjálfs Evrópu­sambandsins! Og það er ekki lítils vert að geta borið hér hreinan skjöld, eins og við gerum, en jafnframt höfum við losnað við yfir 80 milljarða vaxta­greiðslur, sem við hefðum orðið að bera hingað til (meira seinna) vegna Buchheit-samningsins, og ennfremur leyst okkar bankamál með langtum glæsilegri hætti en ýmis ESB-löndin (sjá hér neðst).

Já, við höfum ekki enn tæmt hér alla lærdómana af viðtali Baudenbachers dómara við Morgunblaðið í dag. Dagljóst er af orðum hans, að rétturinn var allur okkar megin: "Ég taldi alltaf að við [dómararnir við EFTA-dómstólinn] hefðum tekið rétta ákvörðun. Eftir á að hyggja get ég staðfest það."

Fyrrverandi dómari Carl Baudenbacher er búsettur í Lúxemborg. Hann veitir ráðgjöf til viðskiptavina víða um heim. Meðal annars varðandi Brexit.

Carl Bau­den­bacher, forseti EFTA-dómstólsins 2003-2018 (ljósm. Mbl.: Eggert)
 

Með ákvörðun sinni sýndi EFTA-dómstóllinn fram á sjálfstæði sitt, að sögn Baudenbachers.

Hann er spurður af blaðamanni Morgunblaðsins, Baldri Arnarsyni:

– Hver voru viðbrögð Hol­lend­inga og Breta eft­ir Ices­a­ve-dóm­inn?

„Eft­ir Ices­a­ve-dóm­inn var sá fræðilegi mögu­leiki að Evr­ópu­sam­bandið mót­mælti niður­stöðunni og færi fram á sáttameðferð en ég var ávallt þeirr­ar skoðunar að dóm­ur EFTA-dóm­stóls­ins hefði verið skýr og ef dóm­ur­inn væri vel rök­studd­ur yrði Evr­ópu­sam­bandið aldrei í stöðu til að gera þetta. Það yrði þá enda fyr­ir álits­hnekki.“

Og þetta var ekkert smámál fyrir neina hlutaðeigendur; grípum aftur niður í grein Baldurs og svör dómarans fyrrverandi:

Ices­a­ve eitt stærsta málið í sögu EFTA-dóm­stóls­ins

Bau­den­bacher seg­ir Ices­a­ve-málið eitt það stærsta, ef ekki stærsta sem hafi komið til kasta dóm­stóls­ins. Nefna þurfi til­tek­in sam­keppn­is­mál til sam­an­b­urðar.

Dóms­málið hafi vakið at­hygli um all­an heim og fjöl­miðlar í Banda­ríkj­un­um, Asíu og víðar sagt frá því.

„Það var ekki aðeins vegna staðreynda máls­ins. Það var líka dæmi um smáríki sem þorði að standa á rétti sín­um og dæmi um lít­inn dóm­stól sem fór sína eig­in leið.“

Þessi kafli er einnig rosalega afhjúpandi um málið allt, um góða frammistöðu nokkurra okkar manna fyrir EFTA-réttinum (einn Íslendingur tilgreindur), snilld forseta okkar, fjandskap ESB við okkur í málinu o.fl.:

Á máli Versala-samn­ings­ins

– Hvernig héldu Íslend­ing­ar að þínu mati á Ices­a­ve-mál­inu í upp­hafi?

„Upp­haf­lega voru þeir til­bún­ir að semja og fall­ast á skuld­bind­ing­ar. Þeir voru und­ir mikl­um þrýst­ingi. Ég sá Ices­a­ve-samn­ing­ana. Þeir voru mjög ein­hliða og skrifaðir á óviðeig­andi máli.“

– Hvernig þá?

„Það var tungu­tak ein­ræðis. Það var á máli Versala-samn­ing­anna. Á viss­um tíma­punkti áttaði for­seti ykk­ar sig á því að tæki­færi væri að skap­ast fyr­ir hann og hann kallaði til þjóðar­at­kvæðagreiðslu,“ seg­ir Bau­den­bacher og bæt­ir við að lög­fræðing­ar Íslands í Ices­a­ve-deil­unni hafi staðið sig vel. Þ.m.t. Tim Ward mál­flytj­andi, Migu­el Poiares Maduro, og Kristján Andri Stef­áns­son. (Leturbr. JVJ)

Hann vitn­ar svo í nýja bók sína, Judicial In­dependence, nán­ar til­tekið til­vitn­un í full­trúa ESB þess efn­is að Ices­a­ve-málið hefði farið á ann­an veg ef það hefði farið fyr­ir Evr­ópu­dóm­stól­inn. Þ.e.a.s. tap­ast.

„Hér er und­ir­liggj­andi ásök­un um að við höf­um gert Íslandi greiða.“

– Með því að fara gegn meg­in­regl­unni um eins­leitni?

„Svar mitt er í bók­inni – þetta er rang­ur skiln­ing­ur á eins­leitni,“ seg­ir Bau­den­bacher og rifjar upp stuðning dag­blaða á borð við Guar­di­an og Fin­ancial Times við málstað Íslands.

– Skipti sá stuðning­ur máli. Lög eru lög?

„Lög eru lög, en í slíku máli er einnig alltaf póli­tísk vídd.“

Að lokum ein perla enn:

– Fjöldi ríkja hef­ur glímt við skulda­vanda. Gæti Ices­a­ve-málið átt við þeirra stöðu?

„Eitt af vanda­mál­um sem ríki ESB standa frammi fyr­ir í þessu efni er að þau björguðu öll bönk­um sín­um. Og þau eru enn að hluta að borga til baka skuld­ir en Íslend­ing­ar gerðu það ekki. Þeir gátu það ekki og frá efna­hags­leg­um sjón­ar­hóli var það held­ur ekki rétt. Ekki all­ir spari­fjár­eig­end­ur Ices­a­ve-reikn­ing­anna voru fá­tækt fólk. Þar voru líka á ferð stór­ar stofn­an­ir sem höfðu fjár­fest. Annaðhvort erum við í markaðshag­kerfi, og þá þurf­um við að taka af­leiðing­um gerða okk­ar, eða við erum það ekki.“ (Og dómarinn fyrrverandi fer síðan nánar út í það atriði.)

Hjartans þakkir, Baldur Arnarson, fyrir þetta frábæra viðtal. Morgunblaðið er í fjöldreifingu í dag, þar geta allir lesið það. smile

Jón Valur Jensson.


mbl.is Icesave var á máli Versala-samninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Jón Valur fyrir að minnast Lofts heitins.

Rökhugsun hans og elja fóðraði endalaust okkur fótgönguliðanna af stálhörðum rökum gegn hálfsannleik borgunarsinna, eða þöggun hinna meðvirku.

Sérstaklega var það sláandi þegar Loftur sannaði það með solid gögnum að ICEsave útibú Landsbankans var tryggt bæði hjá breska og hollenska tryggingasjóðunum, enda hefði bankinn ekki fengið rekstrarleyfi á öðrum forsendum. 

Þau rök voru aldrei notuð í málflutningi ríkisstjórnarinnar, og fjölmiðlar þögðu.

Segir í raun hvað kerfið, og hagsmunir voru innvinklaðir í kröfugerð ESB, og hangandi höndin var alltaf við stýrið.

Síðan Jón Valur, í alvöru, má ekki gleyma eljunni sem þú sýndir, uppi fyrir haus í verkefnum þínum sem prófarkalesari, þegar þú skráðir jafn óðum niður umræðuna á þingi þegar ICEsave svikin voru til umræðu þegar stjórnarandstaðan snérist loks til varnar þjóðinni.

Nýjustu upplýsingar voru alltaf til reiðu.

Svona gera bara alvöru menn.

Það er alltaf gott að fá staðfestingu á réttmæti baráttu sinnar, og fyrir forseta EFTA dómsins er þetta á vissan hátt hans aðferð að tengjast ekki skítnum sem ESA var í.  Gangandi erinda fjárkúgara og ofríkismanna.

Því þessi saga gleymist ekki, hún er global og verður alltaf stærri með árunum.

Og hlutur ofríkismannanna og þeirra sem gengu erindi þeirra innanlands, smækkar með hverju árinu.

Þeirra arfur er smánin.

Og skömmin.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.2.2019 kl. 17:37

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hjartans þakkir, samherji og félagi í Þjóðarheiðri. Þetta var mikil saga og hefur enn ekki verið skrifuð til fulls. Ég þakka þér alla þína miklu liðveizlu við þennan málstað þjóðarinnar með staðföstum skrifum þínum -- menn eins og þú hafa hjálpað okkur að standa uppréttir.

Með kærri kveðju austur,

Jón Valur Jensson, 28.2.2019 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband