10.6.2011 | 15:40
Svona skjátlast þeim enn í ESA!
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vogar sér enn að halda því fram, að með því að borga ekki brezkum og hollenzkum innistæðueigendum" hafi "íslenzka ríkið [brotið] í bága við löggjöf um evrópskar innistæðutryggingar. Þvílíkur öfugsnúningur.
Þessu er í 1. lagi þveröfugt farið um ákvæði innistæðutrygginga-lögjafarinnar.
Í 2. lagi var þegar búið að borga þessum innistæðueigendum, án þess að brezka og hollenzka ríkið skuldbintu með því íslenzka ríkið á nokkurn hátt!
Í 3. lagi geta t.d. brezk stjórnvöld fengið stóran (mestan?) hluta síns framlags til innistæðueigenda til baka úr þrotabúi Landsbankans.
Í 4. lagi fengu þau langtum auðveldara tækifæri til þess einmitt vegna íslenzku Neyðarlaganna; skilanefnd LGL (Landsbankans á Guernsey) mat það svo í greinargerð til brezka þingsins, að þar með hafi brezk stjórnvöld fengið kröfurétt til að ná 90% krafna sinna út úr þrotabúinu í stað 35% sjá þennan texta í fyrri grein á vefsíðu undirritaðs:
- Þar að auki hefur það orðið æ augljósara, að Neyðarlögin, sem Geir mun vera höfuðsmiður að, voru snilldarleg aðgerð til bjargar Íslandi og voru um leið göfugmannleg aðferð til að gefa Bretum allt það mesta, sem þem varð gefið með nokkrum rétti, jafnvel langt umfram það, sem þeir hefðu fengið út úr þrotabúi Landsbankans, hefðu Neyðarlögin ekki verið sett. Það viðurkenna brezk fjármálayfirvöld nú þegar. Í skýrslu sem skilanefnd Landsbankans á Guernsey (Joint Administrators of Landsbanki Guernsey Limited) sendi brezka þinginu og birt er HÉR!* (dagsetning þó óljós), kemur fram á blaðsíðum 27- 36, að vegna Neyðarlaganna fái brezk stjórnvöld, sem þóttust hafa tekið við kröfurétti Icesave-innistæðueigenda, 90% af þeim Icesave-kröfum sínum frá þrotabúi gamla Landsbankans, en að án Neyðarlaganna hefðu þau ekki fengið nema 35%!
Í 4. lagi skemmdu sömu brezku stjórnvöld fyrir getu íslenzkra stjórnvalda til að fást við þessi mál með sínum hryðjuverkalögum, sem steyptu m.a. tveimur brezkum bönkum, dótturfélögum Landsbankans og Kaupþings (Heritable og Singer & Friedlander), og ollu ómældum usla hér á landi í fyrirtækjum skráðum í Kauphöllinni og út um allt fjármálakerfið og á atvinnumarkaði.
En það er kannski ágætt, að Per Sanderud og ESA verði sér til skammar með fráleitum kröfum; það auðveldar sennilega eftirleikinn fyrir okkur, en þó að þessu skilyrði uppfylltu: að Steingrímur og Jóhanna setji ekki einhverja vanhæfa eða rangt "prógrammeraða" málafærslumenn í að sjá um vörnina!
Svo vísa ég ennfremur til góðs pistils hins þjóðholla manns Gunnlaugs Ingvarssonar um þessa sömu frétt, hér: ESA - Órökstuddar kúgunarkröfur þessa hlutdræga valdaapparts Evrópusambandsins ! Þeir geta ekki kúgað okkur til að greiða og hafa enga lögsögu í málinu.
Undirritaður ræddi þessi o.fl. mál í Útvarpi Sögu í hádeginu í dag (endurtekið kl. 18.00).
* http://www.parliament.uk/documents/upload/written-evidence.pdf
Jón Valur Jensson. (Endurbirt frá vef höfundar.)
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
10.6.2011 | 13:54
Icesave-slagnum er ekki lokið !
Þetta rökstudda álit frá ESA breytir stöðunni ekki neitt, enda var búist við að það kæmi fram. Við sjáum hins vegar að ESB-sinnar eru straks farnir á taugum, en engin ástæða er til þess. Ef Brussel ræskir sig, pissa ESB-sinnar á sig. Þetta taugaveiklaða lið má ekki ráða viðbrögðum þjóðarinnar.
ESA gefur ríkisstjórninni þriggja mánaða frest, en rökstudda álitinu má ekki svara einu orði heldur mæta nýlenduveldunum fyrir EFTA-dómstólnum. Ef álitinu er svarað gerir það bara stöðu okkar erfiðari, því að við gæfum þá upp málsvörn okkar.
Þótt góðir sprettir séu í andsvarinu til ESA frá 2. maí 2011, er fullt af sterkum rökum sem ekki koma þar fram. Mikilvægt er að Samstaða þjóðar gegn Icesave fái að koma af fullum krafti að málsvörninni og ekki í músar-líki, eins og raunin var með andsvarið. Aðkoma allra þjóðhollra afla að málsvörninni er algjört lykilatriði.
Um nokkra hríð hafa traustir heimilarmenn í Evrópu sagt mér að Bretar og Hollendingar væru að undirbúa það rökstudda álit sem nú hefur verið birt. Við þeim ósanngjörnu og ólöglegu kröfum sem í álitinu birtist verður að bregðast af fullri festu. Þar á meðal verður að hefja undirbúning að úrsögn Íslands úr Evrópska efnahagssvæðinu og í leiðinni er rétt að hefja úrsögn úr NATO. [Þetta síðastnefnda er álit höfundar, ekki Þjóðarheiðurs. Aths. JVJ.]
Samstaða þjóðar gegn Icesave er að undirbúa gagnsókn gegn Bretlandi og Hollandi. Ef Alþingi hefur einhvern sóma, verður þessum undirbúningi veitt liðsinni. Kvartað verður til framkvæmdastjórnar ESB vegna tröðkunar nýlenduveldanna á lögsögu Íslands og þar með brotum á meginstoðum Evrópska efnahagssvæðisins, hvað varðar frjálst flæði fjármagns og frelsi til þjónustustarfsemi.
Í núverandi stöðu eru því eftirfarandi atriði mikilvægust:
1. EKKI má svara rökstuddu áliti ESA fyrr en fyrir EFTA-dómstólnum, ef ESA leggur í slaginn.
2. Samstaða þjóðar gegn Icesave verður að fá aðgang að málsvörninni.
3. Undirbúa verður úrsögn úr EES og NATO. [Álit Lofts. Aths. JVJ.]
4. Alþingi verður að veita Samstöðu þjóðar gegn Icesave fullan stuðning við undirbúning gagnsóknar gegn Bretlandi og Hollandi.
![]() |
Þriggja mánaða Icesave-frestur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2.6.2011 | 15:43
Seðlabankinn tók þátt í Icesave-blekkingaleiknum!
Ívar Páll Jónsson á merkilegan pistil í viðskiptablaði Mbl., vekur athygli á því, að RANGAR "tölur Seðlabankans um erlenda stöðu þjóðarbúsins [voru] ítrekað notaðar til þess að sýna fram á að ríkið gæti auðveldlega tekið á sig Icesave-skuldbindingu Landsbankans.
Í pistlinum, Hentug skekkja hjá Seðlabanka, á forsíðu viðskiptablaðsins í dag, rifjar Ívar Páll fyrst upp, að 5. janúar 2010 skrifaði hann "fréttaskýringu um að Seðlabankinn ofmæti erlenda eign þjóðarbúsins líklega um hundruð milljarða króna. Ástæðan var einföld: Þessar eignir voru ekki í eigu Íslendinga lengur ... Þetta voru eignir Baugs, Bakkavarar og fleiri fyrirtækja ..."
- Nú, átján mánuðum seinna, birtir Seðlabankinn sitt ársfjórðungslega yfirlit. Þá hefur hann skyndilega áttað sig á þessari skekkju. Samkvæmt þessu nýja yfirliti er staðan nú neikvæð um 812 milljarða króna, ekki 434 eins og samkvæmt yfirlitinu um síðustu áramót. Útreikningarnir eru afturvirkir, þannig að í ljós kemur að þegar ég skrifaði úttektina var staðan neikvæð um 1.100 milljarða, ekki 534 (!).
Og takið svo eftir þessu í lokin hjá Ívari:
Í millitíðinni voru tölur Seðlabankans um erlenda stöðu þjóðarbúsins ítrekað notaðar til þess að sýna fram á að ríkið gæti auðveldlega tekið á sig Icesave-skuldbindingu Landsbankans.
Augljóst er nú orðið, að blekkingum var beitt í þeirri freklegu viðleitni að koma á okkur Icesave-klafanum. Sbr. einnig um þetta mál þessa grein hér á eftir í sama blaði í dag: Seðlabankinn lækkar erlenda eign.
En það er ekki ný frétt á þessum bæ (Þjóðarheiðurs), að Seðlabankamenn hafi gerzt þjónar valdsins, valdsherranna í Stjórnarráðinu, í landsfjandsamlegri Icesave-þókknunarstefnu þeirra. Már Guðmundsson sjálfur hefur margoft verið viðfang verðskuldaðrar gagnrýni vegna framgöngu sinnar á því sviði. Það er eitt sem víst er, að ekki munu allar næstu ríkisstjórnir hafa þann mann trónandi yfir Seðlabankanum.
En þeir voru fleiri þar, sem tóku þátt í leiknum. Þannig var undirritaður að fletta í gömum blöðum í gær og rakst þar óvænt á "frétt" í "Fréttablaðinu" 19. marz 2010: "Enn meiri samdráttur í spilunum". Þar var Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur bankans, með enn eina hrakspána í tengslum við Icesave og spáði bæði fjórðungsminnkun fjármunamyndunar og auknu atvinnuleysi, ef ekki væri lengur hægt að gera ráð fyrir "tiltölulega skjótri úrlausn Icesave-mála."
Í ljósi reynsluþekkingar ættu ýmsir að taka pokann sinn vegna vitlausra spádóma og skaðvænlegs hræðsluáróðurs um Icesave. Ábúðarmiklir háskólamenn eins og Gylfi Magnússon og Þórólfur Matthíasson eru þar ekki undanskildir!
Jón Valur Jensson.
Viðskipti og fjármál | Breytt 4.11.2015 kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.5.2011 | 10:58
Ríkisstjórnin fórnaði almannahag í þágu erlendra fjármálaafla
- "Nú vita menn að allt sem Jóhanna Sigurðardóttir sagði um Icesave var úr lausu lofti gripið. Nú vita menn að hún samþykkti Svavarssamning sem henni var sagt að væri upp á 500 milljarða, án þess að lesa hann. Og hún bætti um betur því hún krafðist þess að þingmenn stjórnarflokkanna gerðu slíkt hið sama. Nú síðast fór hún á gosstöðvarnar eystra að skoða ösku úr Grímsvötnum og lofaði aðstoð, sem var ágætt. En svo kom á daginn í viðtali við sveitarstjórann á Hvolsvelli að hún er ekki enn búin að efna ársgömul loforðin vegna Eyjafjallajökuls og öskunnar úr honum.
- Eins og menn muna var eitt helsta kosningaloforð Jóhönnu fyrir síðustu kosningar að "slá skjaldborg um heimilin". Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, segir: "Skjaldborgin er slegin um fjármálakerfið." Og hún segir einnig: "Þetta vekur auðvitað mikla reiði og vonbrigði. Vinnubrögð stjórnvalda eru svo öfugsnúin.""
Þetta er úr Reykjavíkurbréfi Sunnudagsmoggans í dag (bls. 2223.) Í framhaldi er þar sagt frá því, hvernig "skjaldborgin [var] framseld kröfuhöfum gömlu bankanna" (orðalag Andreu), og því er lýst nánar með upplýsingum bréfritarans um það mál, byggðum á nýframkominni bankaskýrslu, sem Steingrímur J. Sigfússon hefur lagt kapp á að menn næðu sem minnstum skilningi á, en afhjúpar hann greinilega, eins og Ólafur Arnarson benti á í frægri Pressugrein fyrir réttri viku (sbr. einnig pistil undirritaðs um það í dag, 'Gaf Steingrímur J. "erlendum vogunarsjóðum skotleyfi á íslenzkt atvinnulíf og heimili"...').
Það fer ekki hjá því, að þrengt hafi að ríkisstjórninni vegna augljóss og verðskuldaðs ósigurs hennar í Icesave-málinu og vegna nýframkominna upplýsinga um þjónkun hennar við erlenda kröfuhafa, "hrægammana á Wall Street", eins og Ólafur Arnarson kallar þá.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Segir fjármálaráðuneytið ekki skilja lausafjárfyrirgreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.5.2011 | 21:00
Enginn vill þá öfumælavísu kveðið hafa
Það hefur lengi verið krafa Þjóðarheiðurs samtaka gegn Icesave, að Icesave-lögin nr. 96/2009 verði felld úr gildi. Nú hefur Framsóknarflokkurinn lagt fram frumvarp um það, og óvænt fær það fullan stuðning í fjárlaganefnd. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, mikil Samfylkingarkona, var að vísu fjarverandi, en þar eru einnig Oddný G. Harðardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Björgvin G. Sigurðsson, og þau hafa þá samþykkt frumvarpið, ásamt hinum þrjózka Birni Vali Gíslasyni og Þuríði Backman í Vinstri grænum. Þór Saari var fjarverandi, en aðrir nefndarmenn úr stjórnarandstöðunni hafa stutt það (Ásbjörn Óttarsson, Höskuldur Þórhallsson, Kristján Þór Júlíusson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir).
Þetta veit á gott um samþykkt frumvarpsins í þinginu sjálfu. Það getur enginn verið þekktur fyrir það lengur að styðja Icesave-ólög né nein frumvörp í þessa sömu vitlausu átt.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Icesave-lögin frá 2009 verði felld úr gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2011 | 19:13
Ísland í dag sýnir dómsdagsspámenn um Icesave í skoplegu ljósi
Þátturinn hefði allt eins getað fengið yfirskriftina Nýju fötin keisarans, svo bersýnilega stóðu "rök" JÁ-sinna eftir sem leikhús fáránleikans. En skuldin hverfur ekki á morgun! (Jóhanna í apríl). Ég vona auðvitað að þetta verði samþykkt! (sama, um síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu). Og Gylfi Magnússon hæstvirtur talaði um Kúbu norðursins og að allt færi hér í rúst, ef við greiddum ekki Icesave-kröfuna allt er þetta ásamt mörgu öðru, m.a. ábendingum um, að lagalega höfðum við réttinn með okkur og að ekkert rættist af dómsdagsspánum, dregið saman í stuttu, en kröftugu máli í prýðilegum þætti Þorbjarnar Þórðarsonar og Símonar Arnar í Íslandi í dag á Stöð 2 um kl. 18.50-19.05 í kvöld, þar sem þetta Icesave-stuðningslið afhjúpar málflytning sinn.
En Steingrímur segist vera með hreina samvizku vegna Icesave-málsins, snýr upp á sig og sendir ásakanir út í loftið á aðra og ber sig illa vegna meintra hnífsstungna í bakið!!! Þessar ásakanir sendir hann Moggaritstjórum í nútímanum, en hins vegar kennir hann stjórn Geirs Haarde haustið 2008 um það, að hann og Jóhanna hafi talið sig verða að semja um málið, þegar þau komust til valda!
En þetta eru fráleit flóttarök manns með vonda samvizku! Sjá hér í fylgitexta!*
H É R er þessi merkilega afhjúpandi þáttur!
- * Hér sjáið þið hans eigin vitnisburð þvert gegn því, sem hann heldur fram nú:
- STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, stjórnarandstæðingur, janúar, 09:
- Framan af höfðu ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar uppi stór orð um að ekki kæmi til greina að Íslendingar létu kúga sig til uppgjafar í deilunni um hina lagalegu og þjóðréttarlegu ábyrgð landsins gagnvart Icesave-reikningunum. Eins og lögfræðingar hafa bent á var hlutverk innlánatryggingarkerfa samkvæmt reglum ESB/EES-svæðisins aldrei að takast á við allsherjarbankahrun, heldur aðeins fall einstakra banka.
- Eins og undirritaður lýsti yfir við atkvæðagreiðslu um málið í þinginu 5. desember síðastliðinn lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftanlegan eða ógildanlegan nauðungarsamning. Enn er hægt að afstýra stórslysi fyrir íslenska þjóð. Taki Tryggingarsjóðurinn hins vegar viðskuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn:
- http://www.amx.is/adgerd.php?adgerd=pdf&id=7628
- (Fylgitextinn tekinn héðan, af mjög fróðlegri vefsíðu:
- STEINGRÍMUR STJÓRNARANDSTÆÐINGUR, eftir Elle.)
Jón Valur Jensson.
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2011 | 11:24
Eiríkur Bergmann Einarsson fær verðugar athugasemdir við ýmsar fullyrðingar sínar í ritdómi eftir Baldur Arnarson
- "Blind alþjóðahyggja og trú á yfirburði útlendinga gagnvart eigin þjóð geta verið merki um skort á pólitískri siðfágun, rétt eins og lýðskrum af meiði þjóðernishyggju.
- Eiríkur Bergmann kýs að láta þessa hlið mála ósnerta þótt einnig megi tína til öfgar í þessa veru sem og þá staðreynd að í Icesave-deilunni var gripið til alþjóðaraka sem reyndust haldlaus þegar á hólminn var komið. Hvaða afstöðu sem menn tóku í deilunni er varla vafamál að ef gáfumannafélagið við Hallveigarstíg hefði fengið sínu framgengt í aðdraganda fyrri Icesave-kosningarinnar hefðu afleiðingarnar getað orðið þvílíkar að hroll vekur.
- Voru þeir ósiðfágaðir sem gripu til þjóðernisraka í þeirri deilu? Eiga allir þeir sem töldu íslenskri þjóð ógnað skilið að verða settir undir hatt þjóðrembu og lýðskrums? Getur verið að túlkun höfundar á þjóðernisvitund eigi lítið skylt við þá samkennd sem kom fram í blysför andstæðinga Svavars-samningsins? Var sú greining röng að erlend ríki beittu Ísland þrýstingi? Svo er það allur hræðsluáróðurinn. Bar hann pólitískri siðfágun vitni?
Þetta eru tímabær orð Baldurs Arnarsonar, blaðamanns Mbl. í ritdómi hans, Sögur af skríl, vegna nýútkominnar bókar Eiríks, Sjálfstæð þjóð: Trylltur skríll og landráðalýður. (Sbr. einnig hér.)
JVJ.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.5.2011 | 12:01
Matsfyrirtækin skiptu öll um skoðun á áhrifum Icesave eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna!
Menn ættu að lesa úttekt á því máli í viðskiptablaði Mbl. í dag, í þremur opnugreinum. Bjarni Ólafsson skrifar þar greinina Matsfyrirtæki á einu máli um áhrif þess að hafna Icesave en skiptu svo öll um skoðun, og á vef Mbl. eru þar einnig meðfylgjandi greinar hans (í dag): Átök um Icesave í erlendum miðlum, með yfirfyrirsögninni: Margir erlendir aðilar tjáðu skoðanir sínar, ennfremur: Sérfróðir reyndu að upplýsa Moody's með yfir-fyrirsögninni: Af hverju snerist matsfyrirtækjunum hugur?
Í aðalgreininni rekur Bjarni allan feril þessa máls, það eru mjög fróðlegar upplýsingar fyrir áhugamenn um Icesave-málið og sýna fram á, hve innantómir og þó glamrandi heimsendaspádómar þessara svokölluðu matsfyrirtækja reyndust vera. Sýnist undirrituðum tími til þess kominn að þau taki púlsinn á sjálfum sér og birti síðan "mat" sitt opinberlega.
Jón Valur Jensson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.5.2011 | 20:51
BRETAR HAFA ENGAN ÁHUGA Á ICESAVE
Bretar hafa engan áhuga á Icesave og vita ekkert um hvað þessi mál snúast. Þetta segir formaður Íslendingafélagsins í London, Friðþjófur Þorsteinsson. Hann segir það eflaust skipta máli að allir sem áttu Iceave reikninga í Bretlandi hafi fengið innistæður sínar greiddar í topp. Hann segir Breta hafa miklu meiri áhyggjur af ...
NÁNAR... á vef Útvarps Sögu.
10.5.2011 | 06:25
Vanhæfur forseti ESA á ekki að sitja yfir hlut okkar
Dr. Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við HÍ, sérfræðingur í Evrópurétti, segir í Mbl. í dag sitt persónulega mat, að Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), sé mjög nálægt því að hafa gert sig vanhæfan með ummælum sínum." Sanderud þessi hefur úttalað sig mjög frjálslega um, að Íslendingum beri að standa skil á lágmarksinnstæðutryggingu vegna Icesave-reikninga Landsbankans, allt að 20 þúsund evrum á hvern reikning," eins og segir í viðtengdri frétt á Mbl.is. M.a. hefur hann verið svo djarfur að tala með eftirfarandi hætti (skv. Mbl.is) og afar óvíst að hann hafi í raun spámannlegan vöxt til þess arna:
- Hann hefur einnig sagt það ljóst að EFTA-dómstóllinn muni úrskurða Íslendingum í óhag, komi málið til kasta hans.
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, reyndi mjög eindregið að fá þá kröfu setta inn í svarbréf efnahags- og viðskiptaráðuneytisins til ESA, að Sanderud rýmdi sæti sitt í ESA, þegar um Icesave-málið yrði fjallað þar, en ekki var við það komandi, stjórnarmeirihlutinn í utanríkismálanefnd beitti sér gegn því.
Við höfðum einnig lagt áherzlu á þetta sama, Loftur Altice Þorsteinsson, Borghildur Maack, Pétur Valdimarsson og undirritaður, á fundi okkar með Kristrúnu Heimisdóttur, aðstoðarmanni Árna Páls Árnasonar ráðherra, og Helgu Jónsdóttur, sem einnig starfar í ráðuneyti hans, á fundi okkar með þeim fimmtudaginn 28. fyrra mánaðar. Fundur okkar fjögurra, ásamt fleiri félögum í Samstöðu þjóðar gegn Icesave og tveimur þingmönnum í gær, með Eiríki Svavarssyni lögfræðingi og InDefence-manni, sem vann mjög góða vinnu í þeirri nefnd, sem undirbjó 32 blaðsíðna svarbréfið til ESA, hefur sízt dregið úr þeim ásetningi okkar að vinna áfram að þessu máli.
Sigurður Kári Kristjánsson, lögfræðingur og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fjallað skarplega um þetta málefni í grein í Morgunblaðinu sl. miðvikudag.
Þar telur hann Sanderud, "í ljósi ummæla sinna, líklega vanhæfan til þess að skera úr þeim ágreiningi í Icesave-málinu sem nú er til meðferðar hjá þeirri eftirlitsstofnun sem hann er forseti fyrir, enda má með réttu efast stórlega um óhlutdrægni hans í málinu."
- Sigurður Kári spyr hvers vegna þessum rökum sé ekki teflt fram í svarbréfi íslenskra stjórnvalda til ESA, sem afhent var í upphafi síðustu viku. (Mbl.is.)
Réttilega spurt hjá Sigurði, og ummæli dr. Stefáns Más í þessa átt ýta enn á eftir þessum sjálfsagða þætti í nauðsynlegri málsvörn okkar Íslendinga.
Sjá einnig hér:
Svarbréf ríkisstjórnar Íslands til ESA

Eftir Sigurð Kára Kristjánsson: "Ríkisstjórnin þarf að útskýra hvers vegna hún ákvað að tefla ekki fram ýtrustu vörnum íslenska ríkisins í svarbréfi sínu til ESA."
(Millifyrirsagnir þar:)
Ummæli forseta Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) Fyrirfram uppkveðinn dómur Réttlát málsmeðferð Dómarinn víki sæti
Grein Sigurðar Kára er alla að finna á Moggabloggi hans, hér:
Svarbréf ríkisstjórnar Íslands til ESA
Jón Valur Jensson.
![]() |
Forseti ESA líkast til vanhæfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 07:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)