Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
11.10.2010 | 08:00
BLEKKINGAR ÞORSTEINS PÁLSSONAR ERU HÆTTULEGAR.
Hvað fær Þorsteinn Pálsson að blekkja lengi í fjölmiðlum að við töpum ef við borgum ekki svívirðilegu rukkunina ICESAVE?? Hvers vegna kemst hann endalaust upp með villuáróður sem getur stórskaðað okkur?? Villt fólki sýn? Þó hann vilji ólmur inn í Evrópumiðstýringarveldið, hefur hann ekki leyfi til að skaða landið og þjóðina með villuskrifum.
Nú er hann kominn í Morgunblaðið með villusýnina. Var ekki nóg að hann kæmi fram í Evrópubandalagsmiðlinum Fréttablaðinu? Við hin munum ekki fallast á ríkisábyrgð á Icesave þó Þorstein langi inn í Evrópuríkið hvað sem það kostar okkur. Icesave er ekki skuld alþýðu landsins. Og meginþorri þjóðarinnar hefur harðneitað að borga svívirðinguna.
Ekki nokkur vitræn rök eru fyrir að maður tapi á að borga ekki skuld sem maður skuldar ekki. Nákvæmlega engin rök eru fyrir að við öðlumst traust og virðingu í heimi viti borinna manna með því að láta vaða yfir okkur eins og aumingjar og borgum ólöglegar rukkanir yfirgangsvelda. Nei, það er rakalaust þvaður. Ertu ekki bara að ljúga, Þorsteinn Pálsson?
Elle Ericsson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 05:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.10.2010 | 20:54
Úrslit dóms um neyðarlögin sögð geta HÆKKAÐ Icesave-kröfur Breta og Hollendinga um tæpl. 470 milljarða króna
Hér er átt við: umfram þau 10% af rúml. 1300 milljarða forgangskröfunum sem slitastjórn gamla Landsbankans taldi ekki nást með eignasafni hans. Greint er frá þessu í kvöldfréttum Rúv og Sjórnvarpsins. Þannig er fréttin (nokkuð stytt) á Rúv.is:
- Tekist á um neyðarlögin
- Stærsta kröfumál Íslandssögunnar er á leið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Þar er tekist á um gildi neyðarlaganna og hvort innistæður föllnu bankanna fái forgang á aðrar kröfur. Verði lögin felld úr gildi, gæti kostnaður ríkissjóðs vegna Icesave aukist um hundruð milljarða króna.
- Almennir kröfuhafar bankanna þriggja hafa í langan tíma mótmælt neyðarlögunum sem Alþingi setti í október 2008. Kannski engin furða því með þeim voru innistæður settar framar öðrum kröfum í bankana. Gamli Landsbankinn er þar undir sömu sök seldur og þar er tekist á um forgangskröfur vegna Icesave, samtals upp á ríflega 1300 milljarða króna eins og gengið á krónunni er um þessar mundir. Eins og útlitið er núna með eignir bankans, býst slitastjórn við að fá um 90% upp í forgangskröfur. Það breytist snögglega verði neyðarlögin, og þar með forgangur innistæðna, dæmdur ógildur, eins og fjölmargir kröfuhafar vilja. Þá má búast við að fáist aðeins um 30% upp í forgangskröfur. Munurinn þarna á milli er ríflega 900 milljarðar. Fari svo að á endanum yrði samið um Icesave, gæti íslenska ríkið borið ábyrgð á helmingnum - vegna ákvæða um lágmarkstryggingu - sem þýðir að fjárútlát vegna Icesave gætu í einu vetfangi hækkað um 4-500 milljarða. Sjö dómsmál sem öll snúast um gildi neyðarlaganna eru nú á leið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur, og það er slitastjórn Landsbankans sem fær það hlutverk að verja neyðarlögin. Málið verður tekið fyrir á næstu vikum. Niðurstöðu er að vænta á næsta ári, og henni verður án efa áfrýjað í Hæstarétt. (Ruv.is.)
Hér er reyndar hvergi hamrað á rétti Íslendinga í málinu, ekki frekar en svo oft í fréttaflutningi Rúv. Það er ekkert í lögum og reglum um tryggingasjóði innistæðueigenda í Evrópu, sem kveður á um ríkisábyrgð á þeim.
Á sama tíma og um þetta er svo yfirborðslega fjallað í Rúv, berst sú frétt úr Stöð 2, að Össur Skarphéðinsson sá hinn sami sem með afar ámælisverðum hætti LEYNDI mikilvægri skýrslu Mishcon de Reya um Icesave-málið hafi í útlöndum verið spurður um Icesave og svarað á þá lund, að vel gengi að ná sameiginlegum skilningi deiluaðila (sem hann kallar líklega málsaðila) og að þar stefndi í, að niðurstaða fengist, sem báðir aðilar gætu sætt sig við. En hvernig skyldi það ganga upp?!
Þá fylgdi fréttinni að hann hefði tekið sérstaklega fram, að það væri engin deila um að höfuðstólinn ætti að greiða, einungis væri verið að ræða um, hverjir vextirnir ættu að vera!!!
Eigum við ekki að senda þessum manni og sökunautum hans í málinu skilaboð á næsta útifundi á Austurvelli með því að fjölmenna nú, Þjóðarheiðurs-félagar, með mótmælaspjöld okkar og bæta þar nýjum við?
Jón Valur Jensson.
![]() |
Deilt um neyðarlögin fyrir dómi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.10.2010 | 11:44
Guðni Ágústsson er einarður um Icesave og skuld Breta við okkur
- Ég hef sannfrétt að útreikningar í Icesavemálinu séu með þeim hætti að hefði ríkisstjórnin komið samningi sínum áfram og gegnum Alþingi við Breta og Hollendinga án afskipta forsetans og þjóðarinnar í framhaldinu væru fallnir níutíu milljarðar í bara vexti á íslenska ríkið á tveimur árum, afborganir af upphæðinni þar fyrir utan. Þannig að ég verð að segja að þeir sem vörðust og börðust gegn samningnum á Alþingi í fyrrasumar ásamt forsetanum Ólafi Ragnari Grímssyni sem kom þjóðinni að borðinu með eftirminnilegum hætti í þjóðaratkvæðagreiðslu hafa unnið landi og þjóð gagn. Hefði samningurinn verið staðfestur á Alþingi væri fallin á fólkið í landinu vaxtaupphæð sem næmi öllum útgjöldum til heilbrigðisráðuneytisins í fjárlagafrumvarpi Steingríms J Sigfússonar og ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2011.
Svo segir Guðni Ágústsson, fyrrv. alþm. og ráðherra, í grein í Mbl. í dag: Rothöggið á tveggja ára afmæli í dag. Hann segir þar í upphafi greinar sinnar (og fylgir þar eftir því máli, sem frá greinir í fyrirsögninni, auk þess að koma líka inn á Icesave-málið):
- Þennan dag fyrir tveimur árum var Ísland slegið út af borði viðskiptanna með heiftarlegri hryðjuverkaárás og aðgerð Gordons Browns forsætisráðherra Bretlands. Enn undrast ég þar sem ég stend að ekkert vitrænt hefur verið gert í því stóra máli. Forsætisráðherra Bretlands beitti vopnlausa bræðraþjóð í NATO hryðjuverka-lögum þann 8. okt. 2008. Hann lýsti Ísland gjaldþrota og felldi Kaupþingsbankann breska með þeim afleiðingum að móðurfélagið féll hér heima og Íslendingar stóðu einir þjóða frammi fyrir algjöru bankahruni.
- Hryðjuverkalögin voru sett á ríkisstjórn Íslands og Seðlabankann, héngu yfir þessum stofnunum og Íslandi í nokkur missiri og í öllum peningamusterum umheimsins voru íslendingar útskúfaðir sem glæpalýður. Hér neituðu menn að munnhöggvast við vin sinn Gordon Brown. Ja, það var nú meiri vinurinn. En vinskapurinn við Breta og Hollendinga hefur birst okkur aftur og aftur í því að íslenska ríkisstjórnin ætlar að borga Icesaveskuldina þrátt fyrir rök færustu lögmanna og sérfræðinga í alþjóðasamningum, innlendra og erlendra, að okkur beri ekki að taka þessa skuld bankabraskaranna yfir á almenning á Íslandi. Ennfremur snúist vörn í málinu um gat í evrópskri löggjöf og ESB beri mikla ábyrgð á því sem gerðist hér í hruni bankanna. Hvergi sjást nein áform uppi um að beita gagnsókn og eða ákæra þjóðníðinginn sem sló landið okkar niður á lægsta plan.
Menn eru hvattir til að þesa þessa athyglisverðu grein Guðna í heild. "Enn stöndum við frammi fyrir Icesave-rollunni," segir hann líka í síðasta málslið sínum, ásamt fleira, en endar á því að geta þess, að hin þríþætta skaðabótakrafa, sem við ættum að gera á hendur Breta, telji "þúsundir milljarða." Það sama taldi Max Keiser.
Jón Valur Jensson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.10.2010 | 20:05
Ráðleysissvör Steingríms í Icesave-máli
Fyrirspurn um Icesave á þingi dag virðist leiða í ljós, að sama ráðleysið sé hjá fjármálaráðherra í því efni og í öðrum ríkisstjórnarmálum nú um stundir. En þótt enga ákvörðun hafi þau tekið um að vísa málinu til EFTA-dómstóls, er nýkomin yfirlýsing hans um að unnið sé að Icesave-málinu, og það sama sagði Jóhanna í fyrradag (á afmælisdaginn eftirminnilega þegar um 8.000 manns stóðu utan dyra þinghússins að mótmæla vesaldómi stjórnvalda).
Við vitum það af biturri reynslu, að þessu tvíeyki er ekki treystandi þau ætla ekki að virða dóm þjóðarinnar.
Það er ekki stefna okkar í Þjóðarheiðri, að setja eigi málið án tafar í EFTA-dómstólinn, því að fyrst og fremst ber að huga að málflutningi þess fyrir íslenzkum rétti.
En sannarlega væri það skárri frétt, ef þau Steingrímur vísuðu málinu fyrir EFTA-dómstólinn, heldur en hitt að láta ófyrirleitin stjórnvöld Breta og Hollendinga skammta okkur réttleysi, lagaátroðslu og upplogna, ólögvarða risarukkun.
En í reynd er ekkert sem bendir til að Steingrímur myndi velja skárri leiðina í þessu máli hingað til hefur hann heldur viljað hafa það, sem verr stendur, en hitt, sem þjóðinni kæmi bezt og hún á heimtingu á.
Burt með Icesave-stjórnina! það ætti að vera ein af kröfum dagsins.
JVJ.
![]() |
Icesave ekki vísað til EFTA-dómstólsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.10.2010 | 21:15
Icesave-uppvakningur í boði AGS
Góða kvöldið, gott fólk.
Enn skýtur upp sama gamla Icesave-uppvakningnum.
Hér er tilvitnun í vef Útvarps Sögu:
- Frekari úrræði fyrir skuldug heimili verða ekki í boði af hálfu ríkisstjórnarinnar að því er fram kemur í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Með stofnun embættis skuldara sé skuldavandaáætlun stjórnvalda komin í sinn farveg og nú verði þess krafist að heimilin taki þátt. Ekki verði frestun uppboða framlengd. Þá kemur fram á heimasíðu AGS að lausn á Icesavedeilunni sé í sjónmáli að því er íslensk stjórnvöld segi.
Mér sýnist staðan vera einhvern veginn á þennan veg:
Erlendir vogunarsjóðir, sem sumir halda að hafi verið að einhverju leyti í eigu íslenskra útrásarhunda, keyptu bankana á slikk.
Ríkið mokaði peningum og eða ábyrgðum inn í Landsbankann til þess að endurreisa hann. Hann rekur síðan svívirðilegar aðgerðir gagnvart almenningi til þess að hámarka endurheimtur til greiðslu Icesave-skuldarinnar. Af hverju tala menn um skuld íslensku þjóðarinnar?!!!
Þetta verða dulbúnar Icesave-greiðslur, þ.e. það sem skilar sér frá bankanum !!
Arion banki og Íslandsbanki eru hins vegar sagðir í eigu erlendu aðilana.
AGS krefst þess svo að eignir fólksins sé boðnar upp án tafar til þess að einhverjir erlendir aðilar, sem keyptu bankana fyrir slikk, fái sitt í hvelli.
Síðan er þessi gamli uppvakningur að íslenska þjóðin ætli að greiða þessa svokölluðu Icesave-skuld. AGS stjórnar þessu öllu greinilega.
Hvernig er þetta, geta Steingrímur og hans lið ekki gert AGS það ljóst að ríkisstjórnin má ekki brjóta íslensk lög !!
Nú er nauðsynlegt að benda ráðherrunum á lögin um ráðherraábyrgð. Að vísu er talað um að breyta eða afnema lögin.
Páll R. Steinarsson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.10.2010 | 19:35
NÝTT FRÉTTABLAÐ HEFUR GÖNGU MEÐ RANGFÆRSLUM Á FORSÍÐU.
Nýtt fréttablað, FRÉTTATÍMINN, kom inn um lúguna mína óbeðið nú um helgina og allt í lagi með það þangað til ég las fyrstu orðin og rangfærslurnar á forsíðu blaðsins í yfirsögn: Dómsmál gæti þurrkað út Icesave-skuld þjóðarinnar. ORÐRÉTT. Já, þarna stóð ICESAVE-SKULD ÞJÓÐARINNAR. Hafa fréttamenn þar ekkert kynnt sér málið? Ætla þeir að hefja göngu nýs blaðs með rangfærslum og þvættingi um að við, landsmenn, íslenskir skattgreiðendur, höfum nokkru sinni skuldað Icesave?? Það er engin ríkisábyrgð á Icesave, hefur aldrei verið og mun aldrei verða.
Næst undir yfirsögninni stóð skrifað: Dómsmál sem slitastjórnir Glitnis og Landsbankans standa í þessa dagana gætu haft mikla þýðingu fyrir íslensku þjóðina. Um er að ræða túlkun á því hvort svokölluð heildsölulán og peningamarkaðslán séu forgangskröfur í þrotabú bankanna. Verði áðurnefnd lán dæmd sem almennar kröfur minnka forgangskröfur í bú bankanna, sem gerir það til að mynda að verkum að Landsbankinn ætti auðveldlega að geta staðið undir skuldbindingum sínum vegna Icesave miðað við núverandi áætlanir um endurheimt vegna bankans. Fréttamaðurinn mætti vita: Forgangskröfur eða ekki forgangskröfur um Icesave koma ekki íslenskum skattgreiðendum nokkrum sköpuðum hlut við.
Og hinn kaldi fréttamaður segir næst: Það myndi þýða að Steingrímur J. Sigfússon gæti hætt að reyna að semja um Icesave og íslenska ríkið slyppi við hundraða milljarða vaxtagreiðslur. Með þessu lýkur fréttinni og rangfærslum fréttamannsins, Óskars nokkurs (oskar@frettatiminn.is), ekki. Það er lágmarkskrafa að blaðamenn og fréttamenn sem ætla að koma með fullyrðingar um hættulegt Icesave hafi í það minnsta skoðað málið. Steingrímur J. Sigfússon hefur aldrei haft leyfi til semja um neinn nauðungarsamning fyrir hönd okkar. Og óskiljanlegt að stjórnarandstaðan hafi ekki fyrir löngu lýst yfir vantrausti á hann og stuðningsmenn hans eins og Guðbjart, Gylfa, Jóhönnu, Össur og dregið þau fyrir dóm vegna Icesave.
NEI VIÐ AGS OG ICESAVE.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.9.2010 | 07:00
Það sem Páll I Blöndal Sigurbjörnsson vill ekki sjá
Páll Blöndal lokar á þessa athugasemd undirritaðs á vefsíðu sína:
- Þú mælir enn með þínum hætti með Icesave-svikasamningum stjórnvalda hér, þrátt fyrir að þjóðin hafi hafnað þeim og enda þótt um ólögvarða kröfu sé að ræða!
- Þjóðverjar fóru í stríð gegn öðrum löndum, það gerðum við ekki sérðu ekki reginmuninn?!
- Þar að auki hafa menn sýnt fram á óheyrilega miklu þyngri álögur af þessum Icesave-samningum heldur en lagðar voru á Þjóðverja með Versalasamningunum!
- En ykkur Samfylkingarmönnum er víst slétt sama!
- (JVJ kl. 1.42 30.9. 2010)
Þetta var aths. (http://pallblondal.blog.is/blog/pallblondal/entry/1100460/#comment-add), sem fekk þetta svar á vefsíðu Páls: "Þér er ekki heimilt að skrá athugasemdir".
Viðkomandi vefpistill Páls heitir: Icesave hvað, hljóðar þannig í heild:
- "Nú 92 árum eftir lok FYRRI heimstyrjaldarinnar eru Þjóðverjar loks búnir að greiða síðustu greiðslu.
- Þá er það seinni heimstyrjöldin sem þeir þurfa að greiða.
- Kannski ná þeir að klára þann reikning þann 8. maí 2037 eða sléttum 92 árum eftir að þjóðverjar gáfust upp.
- Samt eru þeir eitt af sterkustu ESB ríkjunum í efahagslegu tilliti."
Páll hefur margsinnis talað gegn varnarmönnum þjóðarinnar í Icesave-málinu.
Jón Valur Jensson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.9.2010 | 19:25
Skringileg hugsun úr herbúðum Samfylkingar
Iðnaðarráðfrúin Katrín Júlíusdóttir notaði tækifærið í fréttatíma Sjónvarpsins í kvöld til að agitera fyrir brezk og hollenzk stjórnvöld, að þau fari nú að fá hjá okkur samning um Icesave, en réttlæting hennar var sú, að Landsvirkjun fái annars ekki lán til Búðarhálsvirkjunar!
Illa mega menn vera komnir, að þeir samþykki að axla ólögvarða risakröfu til að fá kannski lán upp á 10. eða 20. part þeirrar kröfu!
JVJ.
![]() |
Landsvirkjun fær meira að láni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2010 | 11:49
Ófyrirleitni Steingríms J. að tala í nafni íslenzku þjóðarinnar um mál sem hún hefur HAFNAÐ með afgerandi hætti!
Nú er hann mættur í hollenzkt dagblað, De Telegraaf, heldur því fram að Ísland muni standa við skuldbindingar sínar og greiða hollenskum sparifjáreigendum það fé sem þeir töpuðu vegna IceSave-reikninganna"!
Jæja, karlinn, Ísland?! Já, og hann bætir gráu ofan á svart: Hollendingar geta andað létt. Peningunum þeirra verður skilað, segir hann í þessu viðtali við blaðið í dag.Við viljum leysa þetta mál, segir Steingrímur ennfremur. Íslendingar vilji borga (!!!), en það fari hins vegar eftir því hvaða skilyrði verði sett." (Mbl.is.)
Íslendingar vilja EKKI borga, er það ekki ítrekað komið fram?! Sjá hér:
Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave eftir landshlutum (pistill löngu eftir á, 20.8. 2010)
Rétt tæplega 60% þjóðarinnar vill EKKERT ICESAVE og:
Nær 60% þjóðarinnar segir: EKKERT ICESAVE! Samtökin Þjóðarheiður hafa rétt fyrir sér!
Það er annar maður sem ver þjóðina um þessar mundir, forseti Íslands, og gerir það betur en allir ráðherrarnir í Icesave-stjórninni samanlagðir (það eru svo margir mínusar!).
Eftirfarandi orð félaga í Þjóðarheiðri voru skrifuð í frábærum pistli til Bjarna Benediktssonar, en eiga ekki síður við um þig, herra Steingrímur:
Þú veist vel, eins og við hin, að við skuldum ekki Icesave, höfum aldrei skuldað Icesave og munum aldrei skulda Icesave ...
Ef þú kannt ekki að segja NEI, þarftu að læra það. Menn verða að kunna að standa í lappirnar og segja NEI. Þú hefur ekki leyfi til að vinna með ógnarstjórnum Bretlands, Hollands og Íslands og semja um neitt Icesave. Það verður alfarið að hafna þessari nauðung ...
Hafnaðu þessu núna strax - ef þú gerir það ekki, mun það verða þitt fall. Við munum ALDREI borga Icesave. Við munum koma ykkur burt, burt úr stjórn, burt frá völdum og fella alla ógilda Icesave-nauðungarsamninga sem verða píndir yfir okkur. Og þið munuð þurfa að svara fyrir voðaverkið.
... enda er nú farið að tala um Landsdóm sem réttu leiðina í því máli.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Steingrímur: Íslendingar munu borga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
15.9.2010 | 12:27
Forseti Íslands á CNN: Hollendingar og Bretar halda enn uppi ósanngjörnum kröfum gagnvart Íslandi
Skuldir sem hafa orðið til vegna misgjörða einkabanka eiga ekki að lenda á almennum borgurum, segir hann, kröfur um það séu ósanngjarnar. Og svo ráðast sumir að forsetanum og vilja að hann verði settur í farbann, eins fáránlega og það nú hljómar. Maðurinn hefur varið okkur gegn fjárkúgun stórvelda og gegn okkar eigin ríkisstjórn og ríkisstjórnarflokkum. Hann hefur fullt leyfi til að tala um Icesave eins og hver önnur mál. Núverandi ríkisstjórn ætlaði að koma nauðunginni yfir okkur og er óhæf að verja okkur.
Forsetinn stendur fastur á því í þessu sama kröftuga CNN-viðtali, að það sé engin ríkisábyrgð á Icesave og hafi aldrei verið. Hann segir, að Bretar og Hollendingar hafi ekki viljað kannast við málið eins og það var.
Icesave-hluti viðtalsins verður birtur hér í textaformi í dag.
Svo sannarlega var ærin ástæða til að vísa málinu í þjóðaratkvæði, þegar mælirinn var fullur hjá þessum Icesave-stjórnvöldum okkar. Forsetinn hafði fulla lagaheimild til að synja ólögum þeirra frá 30. des. 2009 staðfestingar og fela þjóðinni úrslit málsins. Nú heldur hann réttilega áfram varðstöðunni um lífshagsmuni og réttindi Íslands. Það er gleðilegt, að forsetinn stendur með þjóðinni.
![]() |
Ósanngjarnar kröfur um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)