Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
5.12.2010 | 14:37
Þrátt fyrir "tilboð" um 2,7% vexti á ríkisstjórnin að hafna Icesave-samningi og svara áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA!!!
Getur einhver útskýrt, hvers vegna Icesave-stjórnin hefur svo mikla ánægju af að endurvekja Icesave-málið aftur og aftur? Getur verið að henni þyki svo vænt um nafngiftina, að hún ætli að tryggja að nafnið »Icesave-stjórnin« lifi að eilífu í minni þjóðarinnar?
Allir vita að Icesave-reikningarnir voru endurgreiddir fyrir langa löngu. Það gerðu tryggingasjóðir í Bretlandi og Hollandi. Hvar fengu þeir fjármagn til þess? Það var tekið af venjubundnum iðgjöldum bankanna sem starfa í þessum löndum.
Hafa þá komið kröfur á hendur almenningi á Íslandi um greiðslu til tryggingasjóðanna, eða bankanna? Nei engum manni hefur dottið það í hug, enda þurfti ekki að hækka iðgjöldin um Pund eða Evru. Þar að auki segja tilskipanir ESB og reglugerðir nýlenduveldanna, að ríkissjóðir megi ekki koma að innistæðu-tryggingum.
Hvaðan koma þá þessar Icesave-kröfur? Þær koma frá ríkisstjórnum Bretlands og Hollands, sem ekki eru aðilar að málinu. Þessar kröfur eru forsendulausar, hvort sem litið er á lagahlið, pólitískar forsendur eða siðferðilegar. Málið er löngu afgreitt þótt Icesave-stjórnin haldi áfram að skemmta skrattanum. Þessari alræmdu ríkisstjórn hefur tekist að skrá sig í söguna sem hóp hinna aumustu af öllum aumum.
Loftur Þorsteinsson.
Vekja ber athygli á meðfylgjandi frétt (tengill hér fyrir neðan), byggðri á óstaðfestri frétt Stöðvar 2. Lokafrestur ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, til stjórnvalda hér að bregðast við áminningarbréfi stofnunarinnar, rennur út nk. þriðjudag, 7. desember. Við minnum hér á fyrri grein um það mál: Hætt við svikum í Icesave-máli og erkiklúðri ef Steingrímur sendir ekki Eftirlitsstofnun EFTA rökstudda höfnun!
Brezk og hollenzk stjórnvöld vita upp á sig skömmina og er vel ljóst, að þau hafa ekki réttinn með sér í þessu máli. Þeim er fyrir mestu, að íslenzk stjórnvöld grípi ekki til lagavarna í málinu, þess vegna eru þau nú að pressa á Icesave-stjórnina hér með agni sínu. En greiðsluskyldan er engin af íslenzka ríkisins hálfu, og m.a.s. 2,7% vextir (ekki helmingurinn af þeim 5,55% sem Svavar vildi láta okkur greiða og Steingrímur kallaði "glæsilegt!") eru kolólöglegir!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Samkomulag að nást um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
3.12.2010 | 09:22
Icesave stendur íslenzkum stórfyrirtækjum ekki fyrir þrifum
Morgunblaðið segir fátt benda til "að Icesave-deilan standi í vegi fyrir fjármögnun íslenskra fyrirtækja erlendis." Icelandic Group hefur nú endurfjármagnað erlendar skuldir sínar fyrir 125 millj. með tæpl. 300 punkta álagi á LIBOR. Marel gerði það sama nýlega með enn hagstæðari lánum frá bönkum í Hollandi, eins og sagt hefur verið frá hér, þ.e. með hagstæðari kjörum en íslenzka ríkið fekk frá meginlandsríkjum Norðurlanda í tengslum við efnahagsáætlun AGS. Nánar er fjallað um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.
Jafnvel Þorvaldur Gylfason prófessor talaði í gær í viðtali á Útvarpi Sögu á þá lund, að Íslendingar gætu nú þæft Icesave-málið enn lengur gagnvart Bretum og Hollendingum og komizt upp með það, einnig gagnvart norrænu ríkjunum sem nú hafa nokkurn veginn lokið sínum þætti í AGS-áætluninni um lán til íslenzka ríkisins.
J.V.J.
![]() |
Icesave hefur ekki áhrif á erlenda fjármögnun fyrirtækja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2010 | 05:09
Í alvöru svona óvinsæl? – Bent á leið til úrbóta.
Ætli Icesave-málið sé ein ástæðan fyrir tæplega 21% vinsældum Jóhönnu Sigurðardóttur í valdamesta embætti þjóðarinnar eða kannski ástæða 63% óvinsælda hennar? Fleira kann þó að koma til, "skjaldborgin" m.a. Steingrímur hefur einnig misst ánægjufylgi: 55% aðspurðra eru óánægðir með störf hans, en 31% ánægð.
Þau gætu nú híft sig svolítið upp, ef þau fylgdu þjóðinni að málum í Icesave-deilunni.
JVJ.
![]() |
Yfir 60% óánægð með störf forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2010 | 01:03
InDefence-menn ræða Icesave-málið í Útvarpi Sögu
Icesave er til umræðu NÚNA, kl. 12 e.m., í endurteknum þætti á Útvarpi Sögu frá liðnum degi. Eiríkur S. Svavarsson og Jóhannes Þ. Skúlason úr InDefence-hópnum sitja þar fyrir svörum í þætti Markúsar Þórhallssonar. HLUSTIÐ á þáttinn!
Þeir nefna í byrjun, að það er ekkert á dagskrá að gefast upp í þessu máli. Hve satt!
Eiríkur: Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. marz var nánast á borð við það, hve margir greiddu lýðveldisstofnun atkvæði sitt 1944. Og niðurstaðan snerist ekki bara um það að hafna háum vöxtum.
Þá kom hann einnig að þessu: Lögbundin greiðsluskylda er í raun ekki fyrir hendi. Í 2. lagi segir hann líka liggja fyrir, að ábyrgðin á þessu máli eigi að skiptast milli samningsaðila. (Hér er hann að lýsa afstöu InDefence, ekki Þjóðarheiðurs.)
Minnzt er á aðkomu og ummæli forseta Íslands í þættinum. Jóhannes: Forsetinn minnti á sínum tíma á skilmála Alþingis í fyrri samþykt þingsins um málið; meðal þeirra séu Brussel-viðmiðin, sem InDefence-hópuinn leggi líka áherzlu á.
Eiríkur: Það var tigangur InDefence með fréttatilkynningu á föstudaginn var, að þeir vilja sjá þessar nýju tillögur og taka svo afstöðu til þeirra fá þetta upp á borðið, svo að við getum metið tillögurnar, kosti þeirra og galla, það er fyrst og fremst það sem við erum að biðja um núna, sagði hann.
Um tíma, áður en komið var að núverandi samningaviðleitni, var talað um að kostnaðurinn gæti orðið 170 milljarðar auk vaxta (segir annar þeirra). Jón Daníelsson komst að því, að það gætu þó verið um og yfir 500 milljarðar sem fallið gætu til, sagði hann.
Og áfram skal haldið að greina frá málflutningi tvímenninganna í þættinum:
Hér hefur verið mikill áróður fyrir því, að ekkert gæti gengið hér í lánamálum fyrirtækja, ef ekki yrði samið; enginn myndi vilja tala við okkur, fullyrt var, að við yrðum"Kúba norðursins" o.s.frv. Þvert gegn þessu bendir Nannar InDefence-maðurinn á, að skuldatryggingarálag Íslands hefur farið hríðlækkandi, það er t.d. miklu lægra en Írlands núna. Eins hefur Landsvirkjun lýst því yfir, að hún sé búin að endurfjármagna öll sín lán.
3. dæmi er Marel, sem er eitt af okkar mikilvægustu útflutningsfyrirtækjum, og þeir voru að ljúka sínum lántökum. Dæmið um fjármögnun þess sýnir, hver varasamur þessi málflutningur er, sem að var vikið. Þetta er stórfyrirtæki og alveg príma dæmi um þetta. Það er slegizt um að lána þeim! Það eru 6 bankar sem lána þeim, og það eru hollenzkir bankar. Ef það eru einhverjir, sem ættu að vera tregir til þess vegna Icesave, þá eru það Hollendingar! En þeir bjóða m.a.s. svo lága vexti sem 3,2%, sem er mun betra en íslenzka ríkið fær það er t.d. að fjármagna sig núna með 5,6% vöxtum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum!
Jóhannes: Ég held því fram, að þetta (Icesave) hafi ekki valdið okkur vandræðum. Þó að Orkuveita Reykjavíkur hafi verið í vandræðum með sín mál, er það fyrst og fremst vegna þess að það fyritæki er sjálft í djúpum skít, forsvarsmenn þess hafa talað um það á þann veg, og það eykur ekki tiltrú lánveitenda.
Hve stórt er Icesave-málið fyrir Breta Hollendinga? spyr Markús.
Eiríkur: Ekki mjög stórt mál, þótt það hafi verið það fyrir þá einstaklinga sem áttu þarna inneignir. En Financial Times benti á, að þetta væri í raun mjög litill hluti af þjóðarframleiðslu Breta, sem þarna var verið að krefja Íslendinga um með mjög vafasömum aðferðum. Ég hef, sagði Eiríkur, sjaldan séð stjórnvöld skömmuð svona harkalega í skrifum þess virðulega blaðs.
740 milljarðar punda er heildarpakki brezka ríkisins gagnvart bönkum sínum, en hér er (eða var) um 2,3 milljarða punda að ræða vegna Icesave. En þeir beittu hér hryðjuverkalögum gagnvart okkur! Upphaf InDefence-hópsins var einmitt að rekja til beitingar þessara hryðjuverkalaga í okt. 2008. Menn eru nú að tala um að fara í mál við Breta vegna þessa.
Minntu á Aftenposten-viðtal við brezkan ráðherra sem baðst afsökunar á hryðjuverkalögunum.
Ísland og Seðlabankinn voru sett á lista brezka stjórnarráðsins yfir hryðjuverkaríki, ásamt Norður-Kóreu!
InDefence-menn ræddu við brezka stjórnsýslumenn um málið snemma í þessu ferli, en þeir voru harðir og sögðu: "Fyrst semjum við um Icesave. Svo afléttum við hryðjuverkalögunum." Þeir brugðust ekki vel við, þegar InDefence-menn sögðu, að þetta væri eins og fjárkúgun. Þeir voru ekki vanir svona ódiplómatísku orðalagi! En samninganefnd okkar vann undir þessari hótun og gerði [Svavars-]samninginn. En það átti aldrei að reyna að semja við þá fyrr en eftir að þeir myndu aflétta hryðjuverkalögunum, sagði annar hvor InDefence-maðurinn í ÚS-þættinum.
Menn eru að tala um, að þessar fjárhæðir séu komnar langt niður. Engu að síður eru þetta 60 milljarðar. Það eru 740.000 kr. á hverja 4 manna fjölskyldu, og það væru peningar sem væru að falla á einstaklinga vegna einkafyrirtækis sem féll.
Bara þessar vikurnar eru menn að deila um að ná 30 milljarða viðbótargreiðslum vegna fjárlaga.
Icesave-vextirnir skv. Icesave-2-lögunum voru 40 milljarðar á hverju ári. Veltu því fyrir þér (sagði Jóhannes við Markús heyrðist mér! JVJ.) hvað hefði gerzt, ef við hefðum samið um þessa 5,55% vexti, þ.e. 40 milljarða á ári ofan á allt annað hjá okkur nú. Okkur tekst ekki einu sinni að ná niður 30 milljörðum á ári nú þegar.
60 milljarða tala menn um nú, en verða að hyggja betur að, sagði sami viðmælandi. Það verður að koma fram, hvernig til standi að þessar greiðslur verði. Þær geta t.d. auðveldlega breytzt í 100 milljarða, ef gjaldeyrishöftin verða afnumin.
Endursögn þáttarins lokið, og skal viðurkennt, að þetta er ágripskennt; undirritaður er ekki hraðritari á tölvuna!
Jón Valur Jensson.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 02:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.11.2010 | 12:48
Icesave hefur engin áhrif á lántökumál fyrirtækja – samt liggur ekkert fyrir enn um samninga um þessa gerviskuld
Komið er í ljós í nýrri frétt, að þótt Icesave- misvísaða -rukkunin hafi ekki verið greidd né um hana samið, er það engin fyrirstaða fyrir góðum lánasamningum fyrirtækja. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom einmitt inn á þetta í ágætu innleggi sínu í Vikulokunum nú fyrir hádegið.
Marel var að fá stórt lán, einkum frá hollenzkum bönkum (ING Bank, Rabobank og ABN Amro) til endurfjármögnunar á skuldum sínum, alls upp á 350 milljónir evra, um 54 milljarða króna, og er fjármagnskostnaður af þessu nýja láni aðeins 3,2%. Við samninga um lánið kom það ekkert til umræðu, að Icesave þvældist þar eitthvað fyrir né ylli Marel þyngra skuldatryggingarálagi en eðlilegt væri. Hrakspár um þetta reyndust því út í hött eins aðrar slíkar eða eilífur hræðsluáróður stjórnvalda í tengslum við Icesave.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var með athyglisverðar áherzlur um Icesave-málið í þættinum Vikulokunum rétt í þessu. Hann gat þess m.a., að þau samningskjör, sem um var rætt nýlega,* hafi í raun ekki verið í neinum samningsdrögum, "heldur það sem fjármálaráðherra taldi sig geta náð í svona samningum."
Vegna ummæla þáttarstjórnanda (Hallgr. Thorsteinsson) sagði Sigmundur, að hann yrði að viðurkenna, að forsetinn hafi staðið sig ákaflega vel að mæla fyrir málstað Íslands.
Þá kom hann inn á það, sem sagt er frá hér í fréttinni (nánar á tengli hér neðar), og nefndi, að menn hafi verið að segja, að það sé ekki hægt að fjármagna sig, þ.e. að stór, íslenzk fyrirtæki hafi ekki getað það vegna þess að Icesave-málið væri óleyst, en það væri "auðvitað bara vitleysa," eins og nú hefði sannazt, og Landsvirkjun, sem fekk stórt lán hjá þýzkum banka, og annað fyrirtæki, sem Sigmundur nefndi, auk Marles, sýndu þetta glöggt.
Þá gat Sigmundur fullyrðinga um, að ef Icesave-málið verði ekki samþykkt, muni gjaldmiðillinn falla, "en hvað hefur gerzt? eftir að forsetinn synjaði, hefur krónan styrkzt!" (nokkurn veginn orðrétt eftir haft).
"Svo átti skuldatryggingarálagið að fara upp úr öllu valdi," ef um Icesave yrði ekki samið, en það hefði líka reynzt vitleysa!
Aðspurður hvort stjórnarandstaðan teldi þetta ásættanlegt, sem nú sé verið að ræða, sagði Sigmundur Davíð, að þeir viti í raun ekkert um það. "Ég hef ekki séð eina einustu tölu á blaði," mælti hann að lokum.
Það er ástæða til að þakka Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir varðstöðu hans og skýra rödd í þessu máli.
* Sbr. næstsíðustu grein á þessum vef og greinina þar á undan.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Icesave kom ekki til tals |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.11.2010 | 05:02
Hætt við svikum í Icesave-máli og erkiklúðri ef Steingrímur sendir ekki Eftirlitsstofnun EFTA rökstudda höfnun!
Góðu fréttirnar frá deginum áður kunna að reynast tálbeita. Þegar eftir er gengið, fæst ekki einu sinni vitað hvort meintar nýjar samningshugmyndir séu síðasti samningur breyttur eða glæný drög. Agnes Bragadóttir var með glögga greiningu á málunum i Mbl., en stjórnarandstöðunni sem slíkri hefur EKKI verið haldið upplýstri, ekki einu sinni þeim þingnefndum, sem fjallað hafa um þetta Icesavemál sem kemur, nota bene, ríkinu og skattborgurum ekkert við, einungis Tryggingasjóðnum (það sem hann megnar) og Landsbankanum gamla.
Bjarni ungi Benediktsson virðist vita flest um málið, sem vitað verður, og hefur fengið vitneskju sína frá Vilhjálmi Egilssyni Valhallarmanni og e.t.v. öðrum "hagsmunaaðilum", eins og kallað var á liðnum degi, en hvers vegna er talað við gamla Icesave-málsvara, en ekki við þjóðina? Á hún ekki mestu hagsmuna að gæta? Bjarni vill reyndar ekkert með samkomulagshugmyndirnar hafa, virðist manni. En Sigmundur Davíð fær hins vegar ekkert að vita!
Það er sjaldan verið að fela hlutina nema af því að menn hafa eitthvað að fela!
Tal Jóns Sigurðssonar í Össuri frá morgni til kvölds var blöskranlegt, en Icesave-predikurum er gert hátt undir höfði í Samfylkingar- og ESB-sinnuðum Spegli Rúvsins. Þeir eru aftur vaknaðir til lífsins, verkalýðsforingjar og fulltrúar atvinnurekenda, sem fylktu liði í fyrrasumar með skammarlegum áskorunum um að samþykkja bæri Icesave-svikasamninga Svavars sem fyrst. Jón þessi heldur því jafnvel fram, að samþykkja hefði átt samningana strax í fyrra! Undarlegt er, að þetta skuli gerast á sama tíma og talað er um, að nú séu upphæðirnar komnar niður í 60 milljarða og vextirnir í 3% (og eru samt enn ólöglegir og þar að auki ólögvarðir eins og höfuðstóllinn).
Var þetta kannski allt tálbeita, sem ekkert er að marka? Af hverju heyrist ekki um hrifningu þessara manna yfir því, að í alvöru sé um einhver skömminni skárri kjör að ræða en í fyrra? Er það kannski af því, að þetta er allt saman tómur sýndarleikur?
Það er eins gott að hér sé ekki um brezkt-hollenzkt samsæri að ræða til að narra auðtrúa Steingrím til að trúa þeim og til að stela af okkur þeim tíma sem þarf til að gera svar Íslands til EFTA bæði mögulegt og nógu vandað til að hægt sé að hafa stoð af því sem réttarvörn. En lagaleg vörn okkar Íslendinga er það sem hvítflibbakarlarnir frá Whitehall óttast mest og það sem Bretavinnumenn okkar eru hugdeigastir að reyna.
Það Á AÐ SVARA vitleysunni frá EFTA, Steingrímur! ekki glata því tækifæri !
Jón Valur Jensson.
![]() |
Sósíalistar og stórkapítalistar ná saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 05:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.11.2010 | 19:59
Nýtt Icesave-samkomulag um greiðslu þess, sem ekki ber að greiða?
Stöð 2 sagði frá því kl. 18.30 að samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands hafi komið sér saman um grundvallaratriði nýs samkomulags um Icesave-málið. Þar er talað um 4060 milljarða kr. höfuðstól og 3% vexti. Hér kunna samningaviðræður, sem voru teknar upp aftur í júlí, að vera að nálgast sín endalok.
Allt er þetta enn byggt á ótilgreindum heimildum fréttastofu Stöðvar 2.
Afstaða okkar í Þjóðarheiðri samtökum gegn Icesave hefur frá upphafi verið ljós: hún er sú sama og meirihluta þjóðarinnar: að við eigum ekkert að borga af einkaskuld einkafyrirtækisnins Landsbankans.
Hér er hins vegar ólíkt skárra útlit fyrir stafni en þegar Icesave-ólögin voru samþykkt með naumum meirihluta þingmanna á Alþingi 30. desember sl. Menn já, stjórnarþingmenn líka! geta prísað sig sæla, að ekki er lengur samið á þeim smánar- og manndrápsklyfja-kjörum. Strax eru umtalaðir vextir nú t.d. næstum helmingi lægri en þeir 5,55% ólöglegu vextir (sbr. líka hér!), sem samið var um í vetur þeir sem vitaskuld voru svo felldir "með öllu heila gillinu" 6. marz sl., sbr. HÉR um hinar áhugaverðu niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar, flokkaðar eftir landshlutum.
Þessi barátta hefur því líka verið mörkuð sigurvinningum, fyrst og fremst staðfastrar þjóðarinnar, en einnig forseta Íslands og samtaka fjölda fólks og stöðugum þrýstingi, m.a. af hálfu systur- eða öllu heldur bræðrasamtaka okkar, InDefence-hópsins (því að allir munu þeir vera karlmenn, þeir ágætu baráttumenn; og við þökkum samráð við þá).
En áfram skal barizt til sigurs. Framkvæmdastjórn ESB hafði þegar viðurkennt það (reyndar með semingi og ekki fyrr en í sumar), að einstök ríki á ESB- og EES-svæðinu beri ekki ábyrgð á tryggingasjóðum sínum. Tvenns konar fullyrðingar sömu framkvæmdastjórnar, um að undantekning yrði að vera þar á varðandi Íslendinga eina þjóða, voru hvorar tveggja byggðar á rökleysu, eins og við höfum fjallað ýtarlega um hér í greinum í sumar, m.a. með hliðsjón og stuðningi af erlendum og innlendum sérfræðingum. Þess vegna er alls engin réttmæt né lögvarin skuldakrafa hvílandi á íslenzku þjóðinni vegna þessara kröfumála!
Í frétt Stöðvar 2 kom fram eitt atriði, sem er ekki í frétt Mbl.is, þ.e. að lengt verði í vaxtalausu tímabili á samningstímanum, það verði 9 mánuðir.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Vextir 3% í Icesave-samkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
22.10.2010 | 06:35
HVAÐA SKULDIR ÍSLANDS, MÁR GUÐMUNDSSON?
Í fréttum kemur fram að seðlabankastjóri, Már Guðmundsson, talaði um ICESAVE-SKULDIR ÍSLANDS í fyrradag á erlendum vettvangi í Bandaríkjunum, þó það sé löngu vitað og vel vitað að ICESAVE hefur aldrei verið skuld Íslands eða íslenska ríkisins og þar með íslenskrar alþýðu. Hann hlýtur að vita þetta maðurinn, hann er seðlabankastjóri landsins. Nei, nú er hann farinn að tala eins og Gylfarnir - Gylfi Arinbjörnsson, Gylfi Magnússon, Gylfi Zoega, Jóhanna Sigurðardóttir og allur heili flokkurinn að meðtöldum Jóni B. Hannibalssyni, Kristinn Gunnarsson, Steingrímur J. Sigfússon, Vilhjálmur Egilsson, Þorsteinn Pálsson, Þorvaldur Gylfason, Þórólfur Matthíasson og aðrir snillingar hafa löngum gert. Gert okkur alþýðu landsins skuldug að ósekju. Og það vegna annarra manna fáráða og glæpa.
Hvað nákvæmlega liggur að baki einbeittum vilja þeirra við að koma yfir okkur skuld sem við skuldum ekki, skuld einkabanka á erlendri grundu, ofurskuld upp á kannski 500-1000 MILLJARÐA? Hví eru þau endalaust að draga okkur niður og ergja okkur með þessu? Halda þau að við höfum ekki nóg með að draga fram lífið á meðan almenningi landsins er kastað út á stétt í gjaldþroti?? Og á meðan sjúkrahúsum í landinu er lokað og læknar flýja land?? Hvað vakir endalaust fyrir þeim? Ætla þau aldrei að hætta? Og einu sinni enn: Það verður að fara fram rannsókn á ódauðlegum vilja seðlabankastjóra, stjórnvalda og formönnum verkalýðsins á að koma þessum óþverra yfir okkur. Það geta ekki verið eðlilegar orsakir þar að baki.
E.S. Og Þorvaldur Gylfason gerðist svo forhertur að segja í RUV okkar landsmanna einu sinni að það væri HOLLT fyrir okkur að borga ICESAVE.
Elle Ericsson.
![]() |
Kostnaður við Icesave hugsanlega minni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.10.2010 | 00:58
Situr Fjórflokkurinn á svikráðum við Íslendinga ?
Grein frá 10.2. 2010, endurbirt hér af Blog Central að gefnu tilefni vegna fréttar í gær: "Skriður kominn á Icesave"
Landráð
High treason Højforræderi
Hochverrat - Haute trahison - Alto tradimento
Hoogverraad Forræderi - Zdrada stanu
Veleizdaja - Valtiopetos
Högförräderi
Þær fréttir sem nú berast um hugsanlega samninga við nýlenduveldin, áður en þjóðaratkvæðinu lýkur, eru skýr merki um að forustumenn stjórnmálastéttarinnar eru reiðubúnir að svíkja hagsmuni þjóðarinnar. Staðan er ekki þannig að forustan sé neydd til að gefa eftir fyrir ofurvaldi Breta og Hollendinga, heldur er um að ræða eindreginn vilja þessa fólks, að slaka út hagsmunum okkar.
Á forsíðu Morgunblaðsins er eftirfarandi frásögn:
Bæði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingar, telja hins vegar að ekki þurfi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu ef nýir samningar takast... Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, segir að þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave eigi að fara fram, jafnvel þótt hagstæðari samningur náist við Breta og Hollendinga. Þá yrði kosið á milli laganna sem forsetinn synjaði staðfestingar og laga sem byggjast á hinum nýja samningi.
Ef fréttin er rétt sem flestir landsmenn eiga vafalaust erfitt með að trúa, þá er fjórflokkurinn að ná saman um stórkostlegustu landráð Íslands-sögunnar. Þjóðaratkvæðið sem nú þegar er hafið, er lykill að við losnum við Icesave-klafann fyrst með því að koma málinu á byrjunarreit með afnámi þeirra samninga og laga sem sett hafa verið og síðan með harð-fylgni við að koma lagarökum málsins á framfæri erlendis.
Þúsundir landsmanna eru búnir að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðinu, eða munu gera það áður en til einhvers samtals kemur við nýlenduveldin. Þessir kjósendur og er ég þar á meðal munu ekki taka þegjandi að atkvæðisréttur þeirra verði svívirtur með afnámi hans á síðasta degi. Að semja úr veikri stöðu, áður en úrslit atkvæðagreiðslunnar liggur fyrir, er til þess gert að nýir samningar verði okkur óhagstæðir.
Ekki verður því trúað að forustumenn fjórflokksins séu svo heimskir, að þeir skilji ekki að staða okkar getur bara styrks er tíminn líður. Sérstaka styrkingu fáum við með höfnun Icesave-ábyrgðarinnar í þjóðaratkvæðinu. Sjáið bara hvað skeði við það eitt að þjóðaratkvæðið var ákveðið. Nú er ástæða til að rifja upp hverjir hafa talað um að úrslit kosninganna gætu fallið þjóðinni í óhag og Icesave verið samþykkt. Auðvitað verður Icesave-ábyrgðin felld úr gildi með miklum meirihluta, enda er fullveldi þjóðarinnar að veði.
Eitt þeirra atriða sem staðfesta að svik eru í undirbúningi, er sú skoðun forustumanna fjórflokksins að ekki megi upplýsa um afstöðu samninganefndar Íslendinga til Icesave-málsins. Því er haldið fram að það veiki samningsstöðu okkar að nýlenduveldin viti hver séu samningsmarkmið okkar. Minnumst þess að leyndarhyggjan var einmitt boðorð Icesave-stjórnarinnar þegar kropið var fyrir Bretum og Hollendingum og allar kröfur þeirra samþykktar.
Okkar samningsmarkmið er að fjarlægja Icesave-klafann algerlega af herðum Íslendsks almennings. Okkur ber hvorki lagaleg né siðferðileg skylda að axla þessar glæpsamlegu kröfur nýlenduvelda Evrópu. Okkar undirbúningur á að vera fólginn í að kynna þessa afstöðu og sanna fyrir umheiminum að hún er rétt. Það einungis styrkir stöðu okkar að ræða þessa afstöðu opinskátt og af hreinskilni. Okkar samningsmarkmið er einnig að heimta bætur af Bretum fyrir beitingu hryðjuverkalaganna. Vakna Íslendsk þjóð og rís úr rekkju. Látum ekki sannast, að okkar eigið fólk sé okkar verstu óvinir.
Loftur Altice Þorsteinsson.
![]() |
Skriður kominn á Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.10.2010 | 19:56
Eva Joly snýr athygli Skandinava að Íslandi með eftirminnilegum hætti
Eva Joly segir að tilvera Íslands sé í húfi vegna Icesave o.fl. bankamála, en umheimurinn, m.a. Norðurlöndin, beri mikla ábyrgð á óförum landsins. Heil kynslóð Íslendinga verði veðsett, nái Icesave-kröfur Breta og Hollendinga fram að ganga. Þetta kemur fram í viðtali hennar við sænska blaðið Dagens Industri.
- Hvernig gátu svona margir verið svo blindir? spyr Joly. Hún kallar þjóðir heims til ábyrgðar vegna þess hversu íslenska bankakerfinu var leyft að vaxa mikið. Bresk yfirvöld bera líka ábyrgð vegna íslensku bankanna í Bretlandi. Það kemur skýrt fram í reglum Evrópusambandsins um innistæðutryggingar. ... Þetta er spurning um áframhaldandi tilveru Íslands. Nú þegar hafa um 8000 flutt úr landi, þar eru þeir ungu og framtakssömu í meirihluta.
Hún minnist einnig á reiði Íslendinga, fjöldamótmæli fyrir utan Alþingi og eggjakast í fyrirmenn, jafnvel forseta lýðveldisins, og verðskuldar hann það þó sízt allra ráðamanna okkar.
Það er ánægjulegt, hvernig hún segir norrænum ráðamönnum til syndanna og vekur frændþjóðir okkar af værum svefni til að beina athygli þeirra að svikum þeirra eigin ráðamanna við málstað Íslands í Icesave-málinu.
Mikið væri það yndislegt fyrir þjóðina ef við ættum þó ekki væri nema einn slíkan ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Joly: Tilvera Íslands í húfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 12.10.2010 kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)