Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
5.4.2011 | 22:44
GETUR FORSETINN SKRIFAÐ UNDIR GLÆP??
Getur forsetinn skrifað undir kúgun? Hvílíkt fáránlegt. Mun forsetinn geta staðfest ólögin ef meirihluti þjóðarinnar kýs þau yfir minnihlutann?? Mundi hann nokkuð skrifa undir lögbrot eða stjórnarskrárbrot eins og ICESAVE þó brjálaðri stjórninni hafi tekist að pína það í gegnum löggjafarvaldið?
Ríkisábyrgð verður ekki til úr engu og ekki með fölsunum og hótunum. Rukkunin er ólögleg og verður ekki liðin. Stærri hluti þjóðarinnar ætti ekki að geta kosið glæp yfir minni hlutann eða brotið stjórnarskrána gegn honum. Stjórnarskráin á að verja okkur gegn hættulegum og skaðlegum stjórnmálamönnum og mannréttindabrotum og ofbeldi meirihlutans.
Vildi geta heyrt hvað lögmenn segja um þetta og þá meina ég ekki aumar málpípur ICESAVE-STJÓRNARINNAR. Það getur aldrei orðið löglegt og verður aldrei liðið þó við værum í minnihluta að við yrðum pínd til að borga ólöglega rukkun erlendra velda. Við segjum NEI. Við getum ekki leyft þeim að komast upp með níðingsskapinn.
Elle Ericsson.
5.4.2011 | 19:10
NEI, VIÐ ERUM EKKI DRULLUSOKKAR.
Maður nokkur, ÞORBERGUR STEINN, spyr í Pressunni hvort við ætlum að verða drullusokkar og meinar ef við borgum ekki kúgunarsamninginn ICESAVE.
Hann kemur þarna með langar og merkilegar stærðfræðilegar skýringar og útreikninga um hagstæði kúgunarinnar fyrir okkur en minnist ekki einu orði á ólögmæti rukkunarinnar.
Forsendur mannsins eru þannig forhertar og rangar og geta ekki verið teknar alvarlega. Og ég nenni ekki einu sinni að hugsa um eða skilja útreikninga hans í samhenginu sem hann vill að við gerum.
Hann getur líka ekkert vitað hver endalok málsins verða og ætti ekki að koma fram með neina útreikninga á kolröngum forsendum fyrir okkur hin. Hefði málið farið fyrir dóm og við dæmd til að borga værum við fyrst komin með alvöru forsendur fyrir alvöru mál.
Maður með fullu viti og minnsta manndóm semur ekki eins og aumingi eða óviti um handrukkunarkröfu við villimenn. ALDREI. Og það eru næg rök til að segja NEI. Við ætlum ekki að vera DRULLUSOKKAR og segjum NEI. Við viljum að farið verði að lögum.
Elle Ericsson.
5.4.2011 | 11:19
FÆRA LÖGSÖGU OKKAR TIL ÓVINARINS. HVÍLÍKUR FÁRÁNLEIKI.
Getur ríkisstjórnin fært lögsögu okkar í einu stærsta hagsmunamáli okkar undir lög erlends ríkis eins og ætlunin er með ICESAVE 3? Nánar, undir ensk lög eins og segir í kúgunarsamningnum. Og hvað haldið þið nú að það muni þýða fyrir hin ætluðu vinaríki?? Við vitum að það var ekki út af engu sem þeir vildu lögsöguna færða, heldur verður það notað.
Hafa engir lögmenn kært framgöngu ríkisstjórnarinnar í ICESAVE málinu? Hvað á það að líðast lengi að alþingi og stjórnmálamenn brjóti lög og stjórnarskrá gegn borgurum landsins í eigin þágu og í þágu peningaafla, erlendra sem innlendra, og vegna þrýstings þeirra og vinnumanna þeirra á stjórnmálamenn um að almúginn borgi glæpaskuldir þeirra?
Hvernig á jörðinni komst núverandi ríkisstjórn, ICESAVE-STJÓRNIN, svona langt með lögbrot, mannréttindabrot og stjórnarskrárbrot gegn okkur? Hví hefur vitleysan ekki verið stoppuð af dóms- og lögregluyfirvöldum? Ríkisábyrgð verður alls ekki til þó okkur sé hótað. Verða ekki yfirvöld að stoppa firrta menn sem geta ekki staðið í lappirnar gegn kúgun og spillingu og ætla að fara heill landsins að voða?
Elle Ericsson.
5.4.2011 | 08:00
Þakið á árlegar greiðslur skv. Icesave-III: jafnhátt og hlutfall alls rekstrarkostnaðar skandinavísku herjanna!
Þórunn Sveinbjarnardóttir er öldungis sammála Illuga Jökulssyni, sæl og glöð með Icesave-III-áþjánina. Illugi segir í stórmerkilegri Eyjugrein, Verðum að trappa okkur niður: "Langlíklegast er náttúrlega að við munum varla eða jafnvel alls ekki taka eftir greiðslubyrði Icesave-samninganna."
En hvernig stendur á því, að Bretar og Hollendingar virðast hugsa þetta allt öðruvísi en alfræðingurinn Illugi?
ÞEIR virðast telja sig sanngjarna með því að setja visst ÞAK á árlegar greiðslur frá okkur, og hvert er það? Jú, 1,3% af vergri landsframleiðslu* (sjá hér í Icesave-samningnum: http://www.fjarmalaraduneyti.is/media/skjal/DRIA_Isl_Bret.pdf).
En það vill svo til, að þetta er NÁKVÆMLEGA SAMA HLUTFALL og öll varnarmálaútgjöld Svía voru árið 2009, Noregs árið 2008 og Danmerkur 2007**: 1,3% af vergri landsframleiðslu (GDP)! sjá hér: http://data.worldbank.org/indicator/MS.MIL.XPND.GD.ZS?cid=GPD_42
Ætli sænskir skattborgarar (þ.m.t. rithöfundar) myndu léttilega samþykkja að BÆTA VIÐð skatta sína öðrum eins útgjöldum og öllum heildar-árskostnaði sænska hersins ... og ekki bara eitt undantekningarár, heldur ca. 37 ár?
* Athugið, að verg landsframleiðsla er annað og meira en raunveruleg landsframleiðsla.
** PS. Hér er ekki bara átt við landherina, heldur sjóher, flugher og landher samanlagða í hverju landi.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Hvetur til samþykktar Icesave-samninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hún segir það ekkert leyndarmál, að Gylfi Arnbjörnsson er stuðningsmaður Jóhönnu Sigurðardóttur. Guðrún Jóhanna var í viðtalsþætti hjá Bjarka Steingrímssyni og Lúðvík Lúðvíkssyni. Þar kom ýmislegt skrýtið í ljós um VR.
Hún tók undir með Lúðvík, að Gylfi hefði brugðizt sínum skjólstæðingum, en Lúðvík orðaði það svo, að þar hefði Gylfi "mokað [Icesave-]flórinn" fyrir sína pólitísku samherja að sínum 120.000 félagsmönnum forspurðum.
Heyrt á Útvarpi Sögu í endurflutningi, en þátturinn hefur trúlega verið á dagskrá 4. apríl.
Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.3.2011 | 10:00
SIÐLEYSI
Menn eiga að borga skuldir sínar, en börnin okkar eiga ekki að borga skuldir óreiðumanna næstu 35 árin. Foreldrar þeirra stofnuðu ekki til þeirrar skuldar og ekki ríkisvaldið, heldur eigendur einkabanka. Það væri SIÐLEYSI að Guðs og manna lögum að leggja þessa gerviskuld á herðar barna okkar, punktur og basta.
Tvö erlend ríki, sem eru 250 sinnum fólksfleiri en við og hafa beitt okkur ofríki, hafa þó fengið AFAR SANNGJARNA úrlausn þessara Icesave-mála með Neyðarlögunum, sjá hér í nýrri grein: Íslendingar hafa (án Icesave-samninga) verið mjög sanngjarnir gagnvart Bretum og Hollendingum með mjög athyglisverðum staðreyndum Jóns Gunnars Jónssonar.
Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2011 | 06:47
Íslendingar hafa (án Icesave-samninga) verið mjög sanngjarnir gagnvart Bretum og Hollendingum
Jón Gunnar Jónsson sannar í markverðri grein í Viðskiptablaði Mbl. í dag, að "Ísland hafi sýnt mikla sanngirni í Icesave-málinu. Miðað við fyrirliggjandi samning við Breta og Hollendinga sé öll áhætta sem neyðarlögunum fylgir færð yfir á Ísland, en Bretar og Hollendingar njóti alls ábata sem af þeim stafar." Efni greinar hans er ennfremur helzta forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag (lesið það eða tengilinn hér neðar!).
- Vegna setningar neyðarlaganna munu breskir og hollenskir innistæðueigendur fá allar eignir Landsbankans í sinn hlut, tæplega 1.200 milljarða, sé miðað við nýjasta mat skilanefndar bankans.
- Hefðu neyðarlögin ekki verið sett og innistæður ekki settar í forgang, hefðu innistæðutryggingasjóðir Breta og Hollendinga aðeins fengið um helming þeirrar upphæðar, eða um 600 milljarða króna. (Mbl.is.)
Og hverjir hafa borið kostnaðinn af þessum 600 milljörðum? Ekki aðeins einhverjir útlendir kröfuhafar Landsbankans, heldur líka lífeyrissjóðir hér á landi og Seðlabankinn sjálfur, sem lánað höfðu bankanum!
Það er ótrúleg ósvífni af brezkum og hollenzkum yfirvöldum að mæta svo hér á skítugum blankskónum og krefjast enn meira fjár af íslenzkum almenningi, vegna einkabanka sem hann bar enga ábyrgð á!
Ótrúlegast af öllu er þó endalaus þjónkun ýmissa aðila, sem eiga að heita íslenzkir, m.a. forystumanna í atvinnulífi (t.d. formanns SVÞ, varaþingmanns Samfylkingar) og jafnvel í verkalýðshreyfingunni (t.d. Starfsgreinasambandsins og ASÍ) þjónkun við þessar fáheyrðu, löglausu kröfur útlendinga á hendur alþýðu manna.
Þessir sömu aðilar, sem ganga þannig í skrokk á þjóðinni, gerðu það nota bene líka í þágu Icesave-I- og Icesave-II-samninganna!
Hvenær fá menn nóg? Eða á að leyfa þessu landlausa liði að auglýsa þessa svívirðu sína inn á lesendur fjölmiðla og gabba fólk með fagurgala, loforðum upp í ermina og hreinum lygum um lagalegan málstað okkar til að samþykkja yfir sig skuldaþrælkun?
Þá er íslenzkri þjóð illa farið aftur, ef hún lætur þessa menn villa sér sýn. Þeim mun fleiri fletir þesssara mála sem skoðaðir eru, þeim mun augljósara er, að lagalegi rétturinn, siðferðið og sanngirnin er okkar, ekki hinna sem settu fram eða styðja hinar ólögvörðu kröfur.
Jón Valur Jensson.
![]() |
600 milljarða neyðarlög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2011 | 12:13
Úr svari til Icesave-borgunarsinna
Já, bíðum níunda apríl! Við skulum bara vona, að mánudaginn 11. apríl hverfi ekki 46 milljarðar í erlendum gjaldeyri út úr hagkerfi okkar, þ.e. 26 úr ríkissjóði og 20 úr TIF (Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta).
Ef Lárus Blöndal & Co. hefðu staðið sig og a.m.k. heimtað, að Bretar krefðu okkur ekki um ólöglega vexti skv. EES-jafnræðisreglum (af því að þeir lánuðu eigin tryggingakerfi á 0,9% vöxtum, ekki 3,3%!), þá hefðu áföllnu heildarvextirnir (þótt Hollendingar hefðu trúlega fengið að halda sínum 3% vöxtum) verið í kringum 28,5 milljarðar, ekki 46. Þar af hefði TIF borgað 20, en ríkissjóður 8,5 milljarða, þ.e.a.s. skv. Icesave-III-samningnum, EF Lárus Blöndal & Co. hefðu unnið vinnuna sína. Skylda þeirra var gagnvart íslenzku þjóðinni og hennar lögum, ekki Steingrími J. og hans fyrirskipunum (hvaðan sem þær komu!).
En bæði í þessu og varðandi skýlausan rétt TIF til að borga í ísl. krónum FYRIRGERÐI samninganefndin þeim rétti TIF (og ísl. ríkisins, úr því að þeir samþykktu ríkisábyrgð, þvert gegn lögum) að fá að borga þetta í ísl. krónum og með 0,9% vöxtum.
Hrósar þú mönnum, sem hlunnfara þig svona?
Jón Valur Jensson.
27.3.2011 | 22:29
Áður en varir, er búið að kjósa. Vandarðu val þitt?
Á morgun verða Icesave-ólögin send inn á hvert heimili landsins. 9. apríl nálgast! En hver eru aðalatriði þessa máls? Teljum upp þau helztu.
- Nánast allir eru orðnir sammála um, að krafa Breta og Hollendinga er ólögvarin, sbr. það tilskipunarákvæði ESB, 94/19/EC, sem sýnir og sannar sakleysi íslenzka ríkisins og þjóðarinnar í Icesave-málinu
- Þá er ennfremur ljóst og viðurkennt af ESA (Eftirlitsstofnun EFTA) í des. 2010, að um málið gilda íslenzk lög, ekki ensk eða hollenzk.
- Samkvæmt því eiga kröfuhafar vegna Icesave-innistæðna upp að markinu 20.887 evrur (3.390.000 kr.) að njóta forgangs við kröfur í þrotabúið.
- Þetta er ekki virt í kröfum brezkra og hollenzkra stjórnvalda, þau ætla sér að gera kröfur vegna innistæðna YFIR þessu marki sömuleiðis að forgangskröfum og hirða þannig 49% af þrotabúi Landsbankans í það; ef þeir gerðu þetta ekki, væri krafan engin á hendur Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF), því að eignasafn Landsbankans myndi þá duga fyrir raunverulegu forgangskröfunum. "Ragnars H. Hall-ákvæðið" heitir sú krafa okkar (en ekki svikulla íslenzkra stjórnvalda), sem minnir á og hamrar á þessum rétti TIF. (Nú hefur aumingja Ragnar H. Hall reyndar heykzt á þessari eigin kröfu sinni og gerzt samstarfsmaður stjórnvalda með því að agítera fyrir ólögvarða, R.H.Hall-ákvæðislausa Icesave-III-samningnum!)
- Bretar og Hollendingar krefjast vaxta af kröfunni. Það er óvenjulegt. Þar að auki eiga þeir engan rétt á slíkri kröfu á hendur ríkissjóði Íslands né skattborgurum hér á landi, í mesta lagi á hendur TIF. Í 3. lagi er vaxtakrafan margföld á við það, sem Bretum ætti í mesta lagi að vera heimilt, ef höfuðstóls-krafan væri á annað borð gild (en það er hún ekki). Hún er margföld á við það leyfilega, vegna þess að brezki ríkissjóðurinn lánaði brezka tryggingakerfinu á margfalt lægri vöxtum en þeim 3,3%, sem TIF er krafinn um í hliðstæðu tilfelli, og slíka mismunun banna jafnræðisreglur á EES-svæðinu (Bretland er þar eins og Ísland).
- Þessir vextir eru ekkert smámál. Steingrímur J. Sigfússon er tilbúinn með penna sinn að morgni mánudagsins 11. apríl ef þið segið JÁ 9.apríl til að skrifa upp á að taka 26.100.000.000 kr. af gjaldeyrisforða Íslendinga og afhenda brezkum og hollenzkum stjórnvöldum sem einungis fyrstu vaxtagreiðslu okkar! Þetta er 26,1 milljarður og það áður en nokkuð er byrjað að borga af sjálfum höfuðstólnum, sem enginn veit hver er! og allt vegna ólögvarinnar kröfu! Ennfremur er þess að geta, að 26,1 milljarður er ekki allt og sumt, sem fer í þetta, því að "TIF er ætlað að greiða um 20 milljarða, sem líka er gjaldeyrir og mjólkun á hagkerfinu," eins og undirritaður var minntur á í bréfi Lofts, varaformanns Þjóðarheiðurs. Þannig fara þá um 46 milljarðar úr íslenzku hagkerfi á einu bretti í vikunni næstu eftir Icesaveökosningarnar, EF þjóðin segir ekki NEI!
- Í þrotabúi Landsbankans eru eignir, sem skilanefndir reiknar upp í topp, en teljast verða vafasamar. A) Þar er fyrirtæki Jóns Ásgeirs, Iceland Foods, sem skilanefndin og íslenzka Icesave-III-samninganefndin reikna á 200 milljarða, enda væri mikill áhugi á henni og hún alveg að fara að seljast, þannig var talað báðum megin við síðustu áramót. Síðan er það reyndar komið í ljós, að hæsta tilboð í hana er 120 milljarðar. Ennfremur er skilanefndin nú farin að tala um að hún búist við, að Iceland Foods seljist undir árslokin, enda væri verið að laga til í bókhaldinu til að gera þessa verzlanakeðju útgengilegri. Jafnvel við, ófaglært fólk í þessu, sjáum í gegnum svona sýndarmennsku.
- Önnur stór eign er B) skuldabréf upp á 310320 milljarða, skuld nýja Landsbankans (NBI) við þann gamla, og skal allt greiðast í dollurum, pundum og evrum. En fram er komið, að nýi bankinn verður í miklum erfiðleikum með að útvega nægan gjaldeyri til að standa skil á afborgunum skuldabréfsins. Verði vanhöld á greiðslum, lendir tjónið á TIF og (samkvæmt Icesave-III-samingnum og vegna hans eins) á ríkissjóði Íslands og okkur skattgreiðendum.
- Kostnað vegna allra tafa á greiðslum úr þrotabúinu yrðum við einir að bera, þ.e.a.s. ef við samþykkjum Icesave-samninginn, og sá kostnaður yrði verulegur og er ekki reiknaður inn í hinar uppgefnu leikaraskaps-tölur frá skilanefnd/samninganefnd, jafnvel ekki vegna þeirra tafa sem þegar eru orðnar.
- Gengisáhætta er mikil vegna Icesave-samningsins. Gegn henni má hamla með gjaldeyrishöftum, en einnig þau hafa kostnað í för með sér. Nú hafa gjaldeyrishöftin verið framlengd frá 31. ágúst nk. til ársins 2015, og má þá kalla það m.a. fórnarkostnað vegna Icesave-samningsins þó ekki vegna þess að þjóðin ætlar að hafna honum!
Í VINNSLU
Jón Valur Jensson.
![]() |
Icesave-lögin fara í póstdreifingu á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2011 kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Það er að vonum, að 86,5% landsmanna vilja draga Breta fyrir dóm vegna beitingar hryðjuverklaga (skv. MMR-skoðanakönnun 8.11. þ.m.).
- Ekki er marktækur munur á afstöðu kynja. Mikill meirihluti í öllum aldurs-, menntunar-, tekju- og starfshópum telur að draga hefði átt Breta fyrir dóm vegna beitingar hryðjuverkalaganna. Úrtak var 902 einstaklingar á aldrinum 18 67 ára. Afstöðu tóku 72,7% (Mbl.is).
Það er þannig mikil eining um þessa stefnu meðal þjóðarinnar. Guðni Ágústsson, fyrrv. þingmaður og ráðherra, hefur lengi minnt á þetta mál og það með réttu. Má vísa til skrifa hans í Morgunblaðinu um málið. Nú hefur þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson, lagt þar fram tillögu, ásamt 13 öðrum þingmönnum, um málshöfðun á hendur breska ríkinu fyrir alþjóðlegum dómstól vegna beitingar hryðjuverkalaganna.
Það er ólíkt meira tak í því fólki, sem þannig ver þjóðina, heldur en þeim hræðslukór, sem lagzt hefur í ólaunaða Bretavinnu og kýs í leiðinni að vinna að skuldaþrælkun þjóðar sinnar vegna ólögvarinnar kröfu þess sama ríkis, sem réðst á okkur með hryjuverkalögum sínum.
Illt er háttalag stjórnvalda, sem lagt hafa í mikinn kostnað ríkisins minn og þinn kostnað, lesandi góður til að gera ólögvarða samninga við Breta og Hollendinga og hugsanlega að hluta til að halda uppi áróðursmaskínu sem á að stuðla að samþykkt Icesave-samningsins, sbr. þessar greinar:
Segjum stórt NEI í kosningunum 9. apríl, og fylgjum því eftir með því að fara að kröfu þjóðarinnar: að draga Breta fyrir dóm vegna beitingar hryðjuverkalaganna.
Jón Valur Jensson.
![]() |
86% vilja fara í mál við Breta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)