Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
19.11.2011 | 18:32
Hanna Birna gagnrýnir Icesave-Bjarna, sem sjálfur VER stefnu sína þvert gegn síðasta landsfundi!
Hanna Birna Kristjánsdóttir gagnrýndi Bjarna, formann flokks síns, "fínlega" vegna afstöðu hans í Icesave-málinu skv. Rúv-frétt kl. 18. Þetta er prinsipmál, sem snýst um það eitt að íslenskur almenningur á aldrei, og ég endurtek aldrei, að sitja uppi með reikninga sem fyrirtæki skilja eftir sig þegar allt fer á versta veg," sagði hún, ennfremur að ríkisstjórnin hefði ítrekað reynt að skuldbinda íslenzka skattgreiðendur vegna Icesave-reikninganna.
En Bjarni Benediktsson lætur ekki skipast, hefur enn ekki iðrazt afstöðu sinnar með samþykkt Icesave III, þvert gegn þjóðarviljanum og þrátt fyrir að samþykkt þeirra ólaga hefði lagt á saklausa þjóðina gríðarlegar vaxtagreiðslur, tugi milljarða á ári hverju, fé sem hefði EKKI talizt til forgangskrafna, þegar greitt yrði að endingu úr þrotabúinu og væri því óafturkræft!
Hart er í ári nú hjá ríkinu, með miklum samdrætti, en hann væri margfaldur á við það, sem nú er, ef við hefðum samþykkt Icesave III. Ætlar formaður Sjálfstæðisflokksins aldrei að skilja þetta? Þykist þessi maður fær um að stjórna landinu?
Lesið hér um læpuskaps-ódygðir og vælugang hans á þessum landsfundi:
- Í ræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sagði Bjarni Benediktsson að hann hefði tekið það mjög nærri sér er hann fann að flokkurinn hafi ekki verið samstíga í Icesave-málinu.
- Mestu skiptir að vera heill og trúr sannfæringu sinni og gera allt sem best er fyrir hagsmuni íslensku þjóðarinnar [svo! innskot jvj.], sagði Bjarni er hann ræddi um klofninginn innan flokksins vegna Icesave. (Af vef Ruv-is.)
Bjarni Ben. er óiðrandi syndari í þessu máli og biðlar þó til flokksmanna sinna um stuðning, eftir að hafa þverbrotið gegn einarðri stefnu síðasta landsfundar á undan í þessu Icesave-máli!
Fleiri greinar hér á síðunni um landsfundar- og Icesave-mál !
Jón Valur Jensson.
![]() |
Stjórnin sér háa skatta í hillingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.11.2011 | 11:20
Gústaf Adolf Skúlason: Það er ekki "betri Svavar" sem Sjálfstæðisflokkinn vantar til að leiða þjóðina
Í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 17. nóv sagði Bjarni Benediktsson:
- "Ályktunin (nei við löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave-málinu) var í mínum huga fyrst og fremst til að brýna þingmenn flokksins og aðra til að standa órofa vörð um hagsmuni lands og þjóðar. Það gerði ég ásamt öllum þingmönnum, jafnt þeim sem greiddu atkvæði með síðasta samningi (Icesave III) og þeim sem stóðu gegn honum."
Liðhaup Bjarna Benediktssonar og meirihluta þingliðs sjálfstæðismanna, er þeir gengu í lið ríkisstjórnarinnar í Icesave III, neyddi þjóðina til að rísa upp eina ferðina enn til að endurtaka sama boðskap og öllum var kunnur: Nei við Icesave. Við borgum ekki skuldir óreiðumanna.
Varnir formanns Sjálfstæðisflokksins fyrir svikum sínum eru, að Icesave III hafi verið "gjörbreyttur samningur vegna 400 milljarða króna afsláttar," þar sem tillit var tekið til "gagnrýni talsmanna þjóðargjaldþrotasamninganna." Bara ef hægt væri að ná betri samning en Svavari Gestssyni og ríkisstjórninni hafði áður tekist væri það rétt, að þjóðin tæki skuldasúpu Landsbankans á sínar herðar. Bjarni fullyrðir, að Icesave III hafi verið í þágu hagsmuna lands og þjóðar! Gerir hann engan greinarmun á þeim, sem lögðu til samninginn og greiddu honum atkvæði og þjóðarmeirihlutanum, sem felldi samninginn. Samkvæmt Bjarna Benediktssyni stóðu báðar fylkingarnar "vörð um hagsmuni þjóðarinnar". Einn þingmaður Sjálfstæðismanna hótaði m.a. með innrásarliði górillu-innheimtumanna Breta og Hollendinga, ef Íslendingar segðu ekki já við afarkostum Icesave III.
Þjóðin stóð á hagsmunum sínum og ekkert bólar á górillum enn sem komið er. Lýðskrumurum af Jöhönnu og Steingrímstegund hefur hins vegar fjölgað.
Ég vona, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sjái, heyri og skilji þá samstöðu, sem þjóðin sýndi í Icesave-deilunni, þótt meirihluti þingflokks þeirra ásamt formanni flokksins hafi hafnað áskorun 40 þúsund Íslendinga um að draga Icesave III til baka og tekið afstöðu gegn hagsmunum þjóðarinnar.
Það var aldrei meining Bjarna, að þjóðin ætti að vera frjáls undan Icesave-klafanum. Hann vildi bara slá sjálfan sig sleginn til riddara sem betri samningamann en Svavar Gestsson. Þannig ætlar Bjarni Benediktsson líka að nota tækifærið varðandi ESB-samninginn, þegar afhenda á fullveldi Íslands til embættismannanna í Brussel. Ef "ríkisstjórnin þráast við og heldur viðræðunum til streitu" ætlar Bjarni enn á ný að skunda með liði sínu á vettvang og bjarga vonlausustu ríkisstjórn Íslandssögunnar með "betri" ESB-samning.
Vonandi hafa landsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bæði kjark og þor, að bjarga formannsstóli sínum frá Bjarna Benediktssyni. Formannstóllinn tilheyrir foringja, sem leiða á þjóðina í nýrri sjálfstæðisbaráttu hennar í breyttum heimi, þar sem óveðurskýin dragast saman á himni.
Í það verkefni þarf persónu með aðra hæfileika en að vera bara betri Svavar í samningum.
Gústaf Adolf Skúlason.
Viðauki: Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögfræðingur og sjálfstæðiskona, er í Vikulokunum á Rás 1 við birtingu þessarar greinar. Hún er stuðningsmaður Bjarna á landsfundi, en segir þó aðspurð, að afstaða hans til Icesave III "hái honum" í kosingabaráttu hans á landsfundinum og að sjálf hafi hún verið einörð í andstöðu sinni við Icesave III. Aths. JVJ.
Lesið ennfremur eftirfarandi nýlega pistla hér:
- Gústaf Skúlason: Formaðurinn stoltur af rangri hlið Icesave-deilunnar. VELKOMIN Í FORMANNSSTÓLINN, HANNA BIRNA!
- "Þegar þriðji Icesave-samningurinn kom inn á borð Bjarna [Benediktssonar] brást hann flokksmönnum sínum í einu og öllu."
- Orðrétt ósannindi Steingríms J. Sigfússonar um Svavarssamninginn
- Hvenær, ef nokkurn tímann, las Jóhanna Sigurðardóttir allan Svavarssamninginn? og um hrikalegar afleiðingar af samþykkt Icesave-samninga, þrátt fyrir endurheimtur!
- Hanna Birna Kristjánsdóttir á öndverðum meiði við Bjarna Benediktsson í Icesave-máli
![]() |
Stjórnmálaályktun lögð fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.11.2011 | 12:43
Hvenær, ef nokkurn tímann, las Jóhanna Sigurðardóttir allan Svavarssamninginn? - og um hrikalegar afleiðingar af samþykkt Icesave-samninga, þrátt fyrir endurheimtur!
Guðlaugur Þór Þórðarson alþm. benti á það í umræðu á Alþingi í morgun að vinnubrögð Jóhönnu Sigurðardóttur í Icesave-málinu hefðu einkennzt af pukri og launung og að "hæstv. forsætisráðherra" hefði samþykkt Icesave I án þess að hafa lesið hann og ennfremur ætlazt til þess af þingmönnum Vinstri grænna að þeir samþykktu hann án þess að hafa lesið hann.
Jóhanna svaraði fyrir sig, sagði rangt, að hún hafi ekki lesið samninginn, en orð hennar voru svo óskýr í því svari, að hún gæti allt eins átt við, að hún hafi lesið hann seinna!
Í dag bárust þau tíðindi, að skilanefnd Landsbankans upplýsti, að endurheimtur bankans séu nú orðnar um 1340 milljarðar, um 25 milljarðar umfram forgangskröfur, en þar eru bæði Icesave-kröfur og heildsölulán.
En við skulum áfram hafa hugfast, að ofgreiddir vextir vegna Icesave-krafna Breta og Hollendinga myndu EKKI teljast til forgangskrafna og væru því óafturkræfir, ef þeir hefðu verið reiddir fram úr illa stöddum ríkissjóði Íslands, sem bar raunar engin skylda til slíkra greiðslna!
Jóhanna og Steingrímur samþykktu gríðarlegar vaxtagreiðslur, tugi milljarða á ári hverju, í öllum Icesave-lögunum, sem mættu svo mikilli andstöðu þjóðarinnar, en ekki stjórnmálastéttarinnar, ekki leiðandi manna í viðskiptalífinu, samtaka atvinnurekenda og með fáum undantekningum ekki háskólaspekinga, og hinar ólögmætu vaxtagreiðslur mættu ekki einu sinni andstöðu verkalýðsforystunnar, og virtist þá fokið í flest skjól fyrir alþýðu manna eða flestir sótraftar á sjó dregnir til að réttlæta rangindin. (Meira um þau í öðrum pistli hér eftir kvöldmat!)
Biðraðir lengjast nú í heilbrigðisþjónustunni, spítölum lokað (Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og verulegar takmarkanir víðar, m.a. á Húsavík, í sjálfu kjördæmi Icesave-árátturáðherrans Steingríms J.). Menn geta einnig litið á Landakotsspítala, þegar farið er að rökkva um kl. 18 dag hvern, og séð þar slökkt ljós á heilu hæðunum í báðum álmum hússins, í meirihluta hans!
Hvernig væri nú ástandið orðið, ef fjármálaráðherrann hefði fengið leyfi þings og þjóðar til að skrifa upp á ríkisábyrgð fyrir tugmilljarðakröfum um ÓAFTURKRÆFA VEXTI til Bretlands og Hollands?! Yfir 40 milljarðar áttu vextirnir að vera strax á fyrsta árinu og það í erlendum gjaldeyri og svo bætt "rausnarlega" við, ár af ári! Og þessi maður situr enn á ráðherrastóli!
Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.11.2011 | 13:21
Hanna Birna Kristjánsdóttir á öndverðum meiði við Bjarna Benediktsson í Icesave-máli
Hver er afstaða þín til Icesave-málsins? Þannig spyr Hjörtur J. Guðmundsson þennan frambjóðanda í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins í fróðlegu viðtali í Mbl. í dag.* Svar Hönnu Birnu:
- Ég var algerlega á móti því að reynt væri að fara þá leið að semja um Icesave-málið og hengja þennan klafa á íslenska launþega. Ég fagna því að íslensk þjóð hafi fengið tækifæri til þess að hafna málinu og þetta ferli sýnir vel að þjóðin veit oft mun betur en stjórnmálamennirnir.
Þetta svar sýnir vel, að Hanna Birna var ekki einungis andvíg samþykkt formannsins Bjarna og mikils meirihluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins á svokölluðum Icesave-III-"lögum" þeim sem þjóðin felldi í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni heldur einnig á móti hjásetu mestalls sama þingflokks í afgreiðslu Icesave-II-laganna (fyrirvaralaganna, sem herra Ólafur Ragnar Grímsson staðfesti með sínum eigin viðbættu fyrirvörum í byrjun september 2009, en voru felld úr gildi á þessu ári).
Til hamingju með þessa afstöðu þína, Hanna Birna!
* Skiptir mestu að flokkurinn fylgi samþykktum landsfundar, Mbl. í dag, s. 6.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Vill hætta við ESB og halda í krónuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.10.2011 | 17:40
Úr öskunni í eldinn: ESB vill RÍKISTRYGGINGU á bankainnistæðum hér og nær FIMMFALDA á við tryggingu TIF áður!
Þetta kom fram í máli Lilju Mósesdóttur alþm. í ESB-þætti í Útvarpi Sögu í liðinni viku, þætti sem nú er endurtekinn. 100.000 á innistæðutryggingin að verða í stað 20.887 áður og nú á RÍKISSJÓÐI sjálfum! Þetta reyna þingmenn í viðskiptanefnd Alþingis að hindra að verði hér að veruleika með upptöku hinnar nýju ESB-tilskipunar um þetta mál. Vilja þeir fá undanþágu frá þeirri reglugerð, rétt eins og Norðmenn vilja líka, en í aðra átt. En stefna ESB er stórhættuleg.
100.000 evrur eru = 15.977.000 ísl. krónur! Upp að þeirri fjárhæð, sextán milljónum, vilja Brusselmenn, að íslenzka ríkið og allur almenningur verði ábyrgur fyrir bankainnistæðum fólks. En hvaða alþýðufólk á yfir fimm milljónir í banka?
Og hvers vegna ættu hin breiðu bök skattborgara að taka á sig drápsklyfjar til að tryggja oft illa fenginn, samanrakaðan auð hinna vellríku?
Þarna er um nær fimmfalda aukningu tryggingarinnar að ræða, hún öll sett á RÍKIÐ, þ.e. okkur, og sjá menn hér, að þarna er jafnvel úr öskunni farið í eldinn, miðað við það sem upp á borðinu var, þegar rætt var um hina alls ólögmætu leið, að ríkið skyldi ábyrgjast Icesave-reikninga Landsbankans.
Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.10.2011 | 13:15
Icesave hluti ESB-viðræðna!
"Nú hefur Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefnar Alþingis, upplýst að þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagnstæða séu tengsl á milli Icesave og ESB. Icesave verði því hluti af viðræðunum við ESB." Svo er ritað í leiðara Mbl. í dag: Icesave hluti ESB-viðræðna. Menn eru hvattir til að lesa þann leiðara!
Full ástæða er til að taka undir þessi orð þar:
- Afstaða Íslendinga gæti ekki verið skýrari í Icesave-málinu. Þeir hafa tvívegis fellt það í þjóðaratkvæðagreiðslu að taka á sig skuldir einkabanka, þrátt fyrir hvatningu Árna Þórs og annarra forystumanna VG um hið gagnstæða.
- Augljóst er þess vegna að ekki er um neitt að semja í málinu af Íslands hálfu en samt er samningaviðræðunum svokölluðu haldið áfram.
JVJ.
22.9.2011 | 23:54
Fótum kippt undan falsfrétt Fréttablaðsins um málssókn ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum
Kolbeinn Óttarsson Proppé er hæfileikamikill maður, en mislagðar eru honum hendur í fréttamennskunni. Hátt er fall fréttar, sem slegið er upp á forsíðu að morgni, en hrakin hefur verið fyrir hádegið! Forseti ESA bar "frétt" "Fréttablaðsins" til baka strax í morgun! Sjá um þetta tengilinn hér neðar. Þar geta menn einnig tengt sig inn á bloggskrif Gísla Bergsveins Ívarssonar og Páls Vilhjálmssonar um málið.
JVJ.
![]() |
Engin ákvörðun hjá ESA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.9.2011 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2011 | 07:50
Steingrímur vanmetur tjón af hryðjuverkalögunum ekki síður en mikla vexti sem "hefðu hlaðist upp" vegna Icesave
Kostnaður Íslands væri "þegar orðinn um 40 milljarðar króna," "hefði síðasti Icesave-samningur verið samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu og ríkisábyrgð verið veitt á greiðslum Tryggingasjóðs innistæðueigenda og fjárfesta (TIF) á greiðslum til ríkissjóða Bretlands og Hollands," segir Þórður Gunnarsson viðskiptablaðamaður í fróðlegri grein í viðskiptablaði Morgunblaðsins sl. fimmtudag, 15. september.
Hann segir þar einnig:
- "Samkvæmt samningum átti að greiða Bretum og Hollendingum 26 milljarða strax eftir veitingu ríkisábyrgðar, vegna tímabilsins frá gjaldþroti Landsbankans og fram að árslokum 2010 (þar af hefðu 20 milljarðar komið frá TIF).
- Áfallnir vextir 1,75 milljarðar á mánuði
- Þar sem útgreiðslur hafa ekki hafist úr þrotabúi Landsbankans, hefðu talsverðar vextir fallið til vegna þessa. Miðað við núverandi gengisskráningu Seðlabanka Íslands nema áfallnir vextir, samkvæmt Icesave-samningi númer III, um 1,75 milljörðum króna á mánuði. Á fyrstu átta mánuðum ársins hefðu því áfallnir vextir numið um 14 milljörðum króna, sem ríkissjóður Íslands hefði þurft að standa undir."
Miðað við kostnaðaráætlun um byggingu nýs gæzluvarðhalds- og öryggisfangelsis á Hólmsheiði, upp á 2,1 milljarð króna (sjá hér) fé sem ríkissjóður hefur ekki ráð á að reiða fram á byggingartímanum og verður því að fela verkið einkaaðilum og leigja síðan byggingarnar af þeim þá nema þessar vaxtagreiðslur, sem verið hefðu, ef Icesave-III hefði verið samþykkt, á hverjum 36 dögum jafngildi heils slíks fangelsis fullbúins! og það mánuð eftir mánuð og ár eftir ár!
Og vissi Steingrímur ekki hitt, að þessir vextir væru ÓAFTURKRÆFIR, þó að meira en nóg myndi reynast vera í eignasafni Landsbankans?! Þar myndi aldrei reynast svo mikið fé, að allar kröfur fengjust greiddar og sízt vextir, enda komast þeir ekki nálægt því að teljast forgangskröfur.
En lítum aftur á grein Þórðar:
- Matið breytist með hverri fréttatilkynningu
- Þegar Icesave-samningurinn var kynntur í desember miðuðust kostnaðarforsendur við að útgreiðslur hæfust í júní á þessu ári. Uppfært mat sem samninganefndin kynnti í mars gerði ráð fyrir því að útgreiðslur hæfust í ágúst á þessu ári. Í nýjustu frétt fjármálaráðuneytisins af þrotabúi Landsbankans segir loks að vonir séu bundnar við að útgreiðslur hefjist seint á þessu ári. Mat stjórnvalda á því hvenær útgreiðslur úr búinu hefur því breyst með hverri fréttatilkynningu, en ekki er útséð með hvenær greiðslur hefjast.
Öll hefði þessi frestun útgreiðslna úr búinu leitt til meiri kostnaðar vegna Icesave-III-samningsins heldur en ráðuneytið og matsaðilar höfðu reiknað með.
Bætum nú við smá-upprifun ofangreinds með því að skoða undirfyrirsagnir greinar Þórðar (sem sjálf nefnist Vextir hefðu hlaðist upp):
Áætlanir gerðu ráð fyrir að útgreiðslur úr búi Landsbankans hæfust í júní Útgreiðslur ekki hafnar Hefði síðasti Icesave-samningur verið samþykktur væri kostnaður Íslands orðinn 40 milljarðar króna
Þjóðin og forsetinn reyndust velja rétt, en Steingrími skjátlaðist enn einu sinni. Samt fór hann fram með rakalausar fullyrðingar í öndverðum þessum mánuði (sjá þessa grein HÉR) og barði sér á brjóst, því að betur hefðu (að hans mati) Íslendingar samþykkt Icesave-III!! Þetta varð reyndar upphaf mikilla yfilýsinga, orðahnippinga og árekstra milli forsetans og ýmissa ráðherra, eins og allir vita, því að herra Ólafur Ragnar lét það ekki viðgangast, að með þessum hætti væri staðreyndum umsnúið og ráðizt um leið á ákvörðun hans og þjóðarinnar í vetur (sbr. hér: Ólafur Ragnar: Rannsaka á hvernig ríki ESB gátu stutt kröfur Breta og Hollendinga, sem hann segir fáránlegar).
Mál þetta mun seint fjara út. Ráðherrar og flokkar hafa enn ekki bitið úr nálinni með það.
Ný sýndarmennsku-yfirlýsing?
En nú hefur Steingrímur enn á ný gengið fram með yfirlýsingu, sem virðist, í fljótu bragði séð, ætlað að bæta ímynd hans í tengslum við bankamálin, enda virðist ekki vanþörf á, sbr. til dæmis Icesave og nú síðast SpKef-málið, þar sem álitið er, að ríkið hafi tapað 30 milljörðum króna (já, á síðarnefnda málinu! sjá hér: Landsbanki metur kostnað ríkisins vegna SpKef á 30 milljarða og að margra mati vegna ákvarðana fjármálaráðherrans).
Hin nýja yfirlýsing Steingríms eða ráðuneytis hans gengur út á, að "beint tjón, vegna þess að Bretar beittu hryðjuverkalögum til að frysta eignir Landsbankans, hafi verið á bilinu tveir til níu milljarðar króna og líklegasta gildið sé um 5,2 milljarðar fyrir fyrirtækin í landinu."
Allt í einu virðist Steingrímur þannig kominn með bein í nefið til að snúa vörn í sókn og krefja Breta um bætur vegna hinnar stórskaðlegu beitingar hryðjuverkalaga þeirra gegn íslenzlum bönkum og lýðveldinu sjálfu ...
En ekki er allt sem sýnist. Í 1. lagi gerði Steingrímur EKKERT í þessu máli í meira en tvö og hálft ár, eftir að hann náði sæti fjármálaráðherra. En í 2. lagi eru þessar tölur hans um skaða Íslands vegna hryðjuverkalaganna sennilega margfalt vanmat. (Að vísu er tekið fram í matinu, að "flest bendi til þess að óbeint tjón sé mun hærra".)
Hér erum við að vísu komin út fyrir Icesave-málið. Þó var ítrekað minnt á það hér á vefsetrinu, bæði af stjórnarmönnum og almennum félagsmönnum Þjóðarheiðurs, að ráðherrum okkar og Alþingi stæði miklu nær að krefja Breta um skaðabætur vegna hryðjuverkalaganna heldur en hitt, að borga þeim eitt einasta penný vegna Icesave-skulda einkabanka.
Þar að auki, með orðum skarpgreinds verkfræðings, sem skrifaði okkur Lofti og öðrum í Þjóðarheiðri í gær: "Skaði Íslands af efnahagsárás Breta sem hófst haustið 2008 nemur þúsundum milljarða, ekki einstöku milljörðum." Á sama máli er bæði undirritaður og nefndur Loftur Þorsteinsson. Ef við höfum á réttu að standa, skuldar fjármálaráðherrann þjóðinni skýringar á þessu frumhlaupi sínu.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Milljarða tjón vegna hryðjuverkalaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Og þetta er sami forsetinn og mælti svo skörulega í sjónvarpsviðtali í gær um Icesave-gloríur innlendra og (sjá HÉR!) erlendra ráðamanna. Lítum nú á orð forsetans sem hann beindi á þeim ráðamönnum hér sem ábyrgir voru. Byrjum rólega, haltu þér, Steingrímur, já og þið, Álfheiður og Jóhanna.
Forsetinn taldi, að skynsamlegra hefði verið að bíða þess, að þrotabú Landsbankans yrði gert upp, heldur en hitt að fallast á fáránlegar kröfur Breta og Hollendinga um að íslenzk þjóð gengist í ábyrgð fyrir Icesave-skuldinni.
Og svo sagði hann fleiri sannleiksorð:
- Það var ekki gert heldur var bara látið undan þessum þrýstingi. Menn beygðu sig fyrir þessu ofbeldi af hálfu Evrópuþjóðanna og samþykktu fyrst samning sem var svo óheyrilegur að ekki aðeins hrópaði íslenska þjóðin hann af heldur hlupu Bretar og Hollendingar frá honum strax nokkrum mánuðum eftir að ákveðið var að setja á þessa þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hér var það ekki barnið, sem sagði sannleikann um keisarann, heldur forsetinn sem sagði sannleikann um afglöp þeirra sem hann fól stjórnartaumana eftir hálfgert byltingarástand í landinu. Eins og segir í leiðara Morgunblaðsins í dag:
- Það er vissulega sérstætt og orkar tvímælis þegar þjóðhöfðingi, sem er ábyrgðarlaus af stjórnarathöfnum, setur svo harkalega ofan í við réttkjörin stjórnvöld landsins. En forsetanum er nokkur vorkunn þegar fjölmiðlar lepja afkáralegar útleggingar fjármálaráðherrans athugasemdalaust upp og aðrir réttbærir aðilar verða ekki til að grípa til andsvara eða fá ekki tækifæri til þess.
Þarna er í leiðaranum vísað til nýlegrar viðleitni Steingríms til að snúa sannleikanum um Icesave á hvolf í sjónvarpinu fyrir helgina. Meira þungaviktarefni er um málið í leiðaranum.
En lesið fréttina á Mbl.is (tengill neðar).
Jón Valur Jensson.
![]() |
Vill forsetann í framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
4.9.2011 | 19:29
Ólafur Ragnar: Rannsaka á hvernig ríki ESB gátu stutt kröfur Breta og Hollendinga, sem hann segir fáránlegar
Forseti Íslands sagði í Rúv-viðtali í dag að góðar endurheimtur í þrotabúi Landsbankans staðfesti að stjórnvöld hér hafi látið undan þrýstingi og beygt sig undir ofbeldi Breta og Hollendinga í Icesave-málinu. Rannsóknarefni væri fyrir ESB hvernig ríki sambandsins gátu stutt fáránlegar kröfur Breta og Hollendinga.
Orðrétt sagði hann m.a., að hann hefði alltaf haldið því fram að eignir bankans myndu duga fyrir Icesave-skuldinni, en ...
- Það var ekki gert heldur var bara látið undan þessum þrýstingi. Menn beygðu sig fyrir þessu ofbeldi af hálfu Evrópuþjóðanna og samþykktu fyrst samning sem var svo óheyrilegur að ekki aðeins hrópaði íslenska þjóðin hann af, heldur hlupu Bretar og Hollendingar frá honum strax nokkrum mánuðum eftir að ákveðið var að setja þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig að það sem er að gerast núna er bara einfaldlega sýn á það að ef haldið hefði verið á málinu af skynsemi frá upphafi þá var bara algjör óþarfi að setja íslenska þjóð og samstarf okkar við Evrópuríkin í þessa spennitreyju.
Og feitletrum líka þetta úr frétt Mbl.is af þessu viðtali:
- Ólafur Ragnar sagði að réttast hefði verið að bíða og sjá hvað kæmi út úr eignum Landsbankans, frekar en að fallast á fáránlegar kröfur Breta og Hollendinga um að íslenska þjóðin gengist í ábyrgð fyrir Icesave-skuldinni.
Lokaorð Ólafs Ragnars í viðtalinu voru þessi:
"... það, sem Financial Times og Wall Street Journal sögðu allan tímann að væri réttur málstaður Íslendinga, hefur reynzt vera þannig. Og ég held að við eigum heldur ekki að gleyma því, að Financial Times og Wall Street Journal, þessi tvö helztu viðskiptablöð heims, þeir sáu í gegnum þetta gerningaveður Breta og Hollendinga; þeir studdu málstað Íslendinga allan tímann. Og ég spyr mig sjálfan mig að því og ég hef sagt við ýmsa forystumenn á vettvangi Evrópusambandsins: Fyrst Financial Times og Wall Street Journal sáu þetta, sáu í gegnum þetta gerningaveður, hvers vegna í ósköpunum stóð þá á því, að Evrópusambandið sá ekki í gegnum þetta gerningaveður?"
Vel mælt!
![]() |
Beygðu sig undir ofbeldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)