Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
18.7.2010 | 16:10
Hugleiðingarefni
Ef Svavars-svikasamningurinn hefði verið samþykktur sumarið 2009, væru vextirnir til Breta og Hollendinga nú þegar orðnir rúmlega 60 milljarðar króna!
Þetta jafngildir 200.000 krónum á hvert mannsbarn í landinu, 800 þúsundum á hverja fjögurra manna fjölskyldu áður en nokkuð er byrjað að borga niður sjálfan höfuðstólinn!
Umhugsunarvert?!
JVJ.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2010 | 07:07
Sjáið hvernig LEYNISKJALIÐ afhjúpar 'PLOTT' íslenzkra stjórnmála- og embættismanna GEGN ÞJÓÐINNI
Eðlilega voru íslenzkir embættismenn gagnrýndir í Staksteinum Mbl. í vikunni fyrir að vinna á óeðlilegan hátt með stjórnvöldum í ESB-málinu. En aðrir tveir gerðu það sama í Icesave-málinu. Þessi AFHJÚPUN er í leyniskjali bandaríska sendiráðsins sem lekið var á Wikileaks, og þetta er bara einn parturinn af því:
4. (C) Gunnarsson and Burgess were extremely pessimistic regarding the national referendum and said that the Government of Iceland was exploring other options to resolve the Icesave situation. They hinted that renegotiation might be a viable alternative and referenced recent meetings between the government and the opposition at which this option was discussed. Everyone could potentially save face, they suggested, if a new repayment agreement was reached with the British and Dutch that could possibly include a lower interest rate for the loan. This solution, they felt, would be palatable to the Icelandic people [!!! innskot JVJ.] and potentially to the opposition as well. They did not know, however, whether the British and Dutch would agree to another round of negotiations. They also acknowledged that any new agreement would have to be approved in parliament and, of course, signed by the president.
Gunnarsson er Einar Gunnarsson, Burgess er Kristján Guy Burgess, CDA er Chargé d'Affairs, 1. sendiráðsritarinn í bandaríska sendiráðinu, Mr. Watson, þáverandi hæstráðandi þar, eftir að Össur Skarphéðinsson virtist hafa hrakið bandarískan sendiherra héðan með vansæmandi hætti og þar með móðgað ráðamenn þessa bezta vinaríkis okkar á 20. öld svo mjög, að afar langur tími leið, unz nýr sendiherra var skipaður.
Feitletranir í birta tewxtanum eru mínar. Jón Valur Jensson.
![]() |
Stal skeytum um Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 04:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2010 | 17:49
Icesave-útsendarar Breta og Hollendinga í Reykjavík fyrir helgina!
Þessi frétt birtist í DV í fyrradag, 5. júlí, s. 4:
Icesave-fundir í Reykjavík
Starfsmenn fjármálaeftirlitsins [sic] hittu starfsbræður sína frá Bretlandi og Hollandi fyrir helgi til að ræða um Icesave-deiluna. Fréttastöðin Sky segir að William Hague, utaríkisráðherra Breta, hafi gefið til kynna að hann vilji reyna að hindra inngöngu íslands í ESB verði deilan ekki leyst.
Sky hefur eftir starfsmanni fjármálaráðuneytisins að útsendarar Breta og Hollendinga hafi verið í Reykjavík fyrir helgi þar sem rætt hafi verið um Icesave. "Tilgangur fundanna var í meginatriðum að skiptast á upplýsingum og undirbúa frekari fundi síðar á árinu," segir fjármálaráðuneytið íslenska.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 7.7.2010 kl. 04:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2010 | 22:55
Ótæk vanþekking nefndarmanna á tryggingum Icesave-reikninganna
Vinnubrögð stjórnvalda við varnir fjármálakerfisins í okt. 2008 voru e.t.v. ótæk (sjá HÉR!), en jafn-ótæk er sú skoðun nefndarinnar, að bankarnir hafi lagt "alla áhættuna" af Icesave á TIF, því að brezki tryggingasjóðurinn bar í raun alla yfirábyrgð á Icesave-reikningunum.
Þarna reynist nefndin annaðhvort hafa fengið rangar og úreltar upplýsingar eða hreinlega ekki gengið eftir þeim réttu frá Bretlandi og Hollandi. Full 35.000 punda trygging FSCS (brezka tyggingasjóðsins) var á innistæðum einstaklinga í Icesave-reikningum til október 2008 og síðan strax 50.000 punda trygging upp frá því. Síðarnefnda upphæðin er um 2,7-falt hærri en þær 20.887 evrur, sem áttu að vera hámarkstrygging innistæðuhafa í gegnum hinn íslenzka Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
Innistæðueigendur (einstaklingarnir) höfðu allt sitt á þurru, þeim þarf ekki að vorkenna og heldur ekki brezku bönkunum, sem standa undir tryggingakerfinu brezka með eftirágreiddum tryggingum sínum.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Ótæk vinnubrögð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.4.2010 | 00:24
Hver gaf Gylfa umboð til að agitera erlendis fyrir Icesave?
Um hvaða fjárfesta er Gylfi Magnússon að tala, menn sem hafi "áhuga á Íslandi," en áhyggjur af lánshæfi landsins? Er ekki rétt að hann upplýsi um það, í stað þess að flagga sífellt hræðslutaktík ætlaðri til að berja landsmenn undir Ísklafann?
Kínverjar hafa áhuga á byggingu álvers hér. Ekki halda einhverjar auka-míníprósentur á lánum ríkisins aftur af þeim að fjárfesta hér.
En nú stendur yfir markviss áróðursherferð Icesave-postula um nauðsyn þess að samþykkja ofurskuldina á herðar þjóðarinnar. Ólafur Stephensen og Magnús Orri Schram gengu fram í Fréttablaðinu með fráleitan málflutning, og það sama gera þar í dag Svavar Gestsson og Ólafur Darri Andrason hjá ASÍ. Þessir menn og stjórnvöld okkar í heild virðast ætla að keyra þjóðina í kaf á þessu máli, því að ekki er hún sammála þeim.
Núverandi ríkisstjórn hefur með mun eindregnari hætti spyrt sig og sína auðnu við þetta Icesave-lygaskuldarmál heldur en fyrri stjórnvöld. Hvorug höfðu þó lagalega heimild til þess sem þau (í svo mis-alvarlegum mæli) gerðu og höfðu ekkert umboð til þess frá þjóðinni.
Nú hefur þessi sama þjóð, með 98,1% atkvæða þeirra, sem afstöðu tóku, gefið algert frat í lagasetningu 33 þingmanna hinn 30. desember, og munu fá, ef nokkur dæmi slíks í norðlægum löndum, enda hraðaukast óvinsældir ríkisstjórnarinnar og ekki sízt leiðtoga hennar. Í Gallupkönnun birtri sl. mánudag lýstu rúm 27% ánægju sinni með störf Jóhönnu Sigurðardóttur, en 56% aðspurðra sögðust óánægð með störf hennar.
Er ekki kominn tími til að kannast við óvinsældir þessa meginstefnumáls ráðherranna?
Jón Valur Jensson.
![]() |
Fjárfestar hafa áhyggjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.3.2010 | 17:31
Þjóðarheiður blogg,,,,,,,,,,,,,
Inn á bloggsíður Þjóðarheiðurs kemur efni sem unnið hefur verið af stjórn Þjóðarheiðurs til birtingar. Einnig munu stjórnarmenn eins og Jón Valur og Loftur, svo dæmi séu tekin, verða fengnir til að skrifa inn pistla um Icesave-deiluna.
Þeim félögum í Þjóðarheiðri sem eru annaðhvort með eigið blogg og/eða tölvutengdir er velkomið að koma með athugasemdir og hugmyndir hér inn.
Blogg þetta er enn ein viðbótin við flóruna okkar. Við í stjórn "vinnum nótt sem nýtan dag" við að semja efni til að senda út í þjóðfélagið.
Við eigum orðið fullt af efni og erum að vinna sem stendur að grein sem mun hafa mikil áhrif á Icesave-deiluna þegar hún verður birt.
**
Til félagsmanna Þjóðarheiðurs.
1. fréttabréf mun berast félagsmönnum fljótlega.
2. fyrirhugað er að halda fund með félagsmönnum fljótlega.
Heimasíða Þjóðarheiðurs:
http://wix.com/Thjodarheidur/main
Þjóðarheiður segir: NEI við Icesave!
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)