Þjóðarheiður blogg,,,,,,,,,,,,,

Inn á bloggsíður Þjóðarheiðurs kemur efni sem unnið hefur verið af stjórn Þjóðarheiðurs til birtingar. Einnig munu stjórnarmenn eins og Jón Valur og Loftur, svo dæmi séu tekin, verða fengnir til að skrifa inn pistla um Icesave-deiluna.

Þeim félögum í Þjóðarheiðri sem eru annaðhvort með eigið blogg og/eða tölvutengdir er velkomið að koma með athugasemdir og hugmyndir hér inn.

Blogg þetta er enn ein viðbótin við flóruna okkar. Við í stjórn "vinnum nótt sem nýtan dag" við að semja efni til að senda út í þjóðfélagið.

Við eigum orðið fullt af efni og erum að vinna sem stendur að grein sem mun hafa mikil áhrif á Icesave-deiluna þegar hún verður birt.

 

**

Til félagsmanna Þjóðarheiðurs.

1. fréttabréf mun berast félagsmönnum fljótlega.

2. fyrirhugað er að halda fund með félagsmönnum fljótlega.

Heimasíða Þjóðarheiðurs:

http://wix.com/Thjodarheidur/main

 

Þjóðarheiður segir: NEI við Icesave!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Til hamingju með þessa nýju síðu okkar ágætu samtaka, ég vona að með tímanum muni landsmenn lýta tilbaka og sjá að það er aðeins með einum hætti hægt að bæta lífskjör á landinu sem  við elskum svo heitt, að huga að grasrótinni og hætta að treysta ávalt á gelda fjórflokkana sem engu hafa skilað í  gegnum tíðina nema hruni okkar ástkæra föðurlands svo um munar!!

Nú er tími til að breyta þessu svo um munar, nýtt sjórnmálaafl í dag kæmi á hárréttum tíma og myndi án efa ná fylgi sem gæti skipt sköpum!

Guðmundur Júlíusson, 19.3.2010 kl. 20:07

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Tek heilshugar undir með nafna mínum hér á undan. Hef lengi talað fyrir ÞJÓÐLEGU STJÓRNMÁLAAFLI.  Nú er rétti tíminn!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.3.2010 kl. 20:17

3 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Góðir félagar. Fyrst um sinn er Þjóðarheiður að snúa sér að berjast gegn kröfum nýlenduveldana um Icesave og fyrir heiður þjóðarinnar.

Hvað sem síðar verður.....................??

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 19.3.2010 kl. 22:28

4 Smámynd: Halldóra Hjaltadóttir

Þjóðarheiður... á facebook

Til hamingju með síðuna

kv HH

Halldóra Hjaltadóttir, 19.3.2010 kl. 22:43

5 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Þakka þér Halldóra

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 19.3.2010 kl. 22:54

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Flott síða, ég er stoltur meðlimur í þjóðarheiðri. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.3.2010 kl. 02:03

7 identicon

Vil vera bloggvinur thjodarheidur.blog.is

Kv. Kristján

Kristján Tryggvi Sigurjónsson (IP-tala skráð) 20.3.2010 kl. 12:32

8 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Kristján Tryggvi. Til að gerast bloggvinur Þjóðarheiðurs þarftu sjálfur að vera með Blogg svo við gætum tengt á hana.

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 20.3.2010 kl. 16:26

9 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Þökkum öllum fyrir innilegar hamingjuóskir til okkar.

Þjóðarheiður.

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 20.3.2010 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband