Færsluflokkur: Löggæsla

Ragnar Hall vill selja ömmu sína!

Muna menn eftir því þegar Ragnar Hall náði eyrum landsmanna með ábendingum sínum um gjaldþrotalögin ? Í grein eftir Ragnar sem birtist 10. júlí 2009 og nefndist Er þetta rétt reiknað? segir Ragnar:

 

»Þar sem Landsbanki Íslands hf. er gjaldþrota verða menn að nálgast viðfangsefnið eftir þeim reglum sem gilda um gjaldþrotaskipti - engu breytir í því sambandi þótt bankinn sé í umsjá skilanefndar og úrskurður hafi ekki verið kveðinn upp um gjaldþrotaskipti. Kröfur Icesave-eigenda eru forgangskröfur við gjaldþrotaskipti, hliðsettar launakröfum eftir þá breytingu sem gerð var á réttindaröð krafna með svokölluðum neyðarlögum í október síðastliðnum

 

Þetta er kjarni málsins, því að sjálfstætt ríki getur ekki látið af hendi lögsögu sína, hvað sem í boði er. Lögsöguleiðin er eina færa leið Íslands, hvort sem um er að ræða Icesave-málið eða önnur mál. Í Icesave-deilunni koma einkum við sögu Neyðarlögin, lög um TIF og gjaldþrotalögin.

 

Menn geta leikið sér að geta sér til um ástæður þess að Ragnar Hall hleypur núna frá þeim rökum sem hann varð þekktur fyrir. Eftir sem áður lifa rökin sjálfstæðu lífi og þótt Ragnar vilji nú gerast ómerkingur gerir það ekki rökin ómerk. Að manni læðist sá grunur að Ragnar Hall sé þeirrar gerðar að hann sé tilbúinn að selja ömmu sína. Fáum við að heyra einhver boð í gömlu konuna ?

 
Loftur A. Þorsteinsson.
 

mbl.is Hlynntur núverandi samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandsbanki er erlendur banki með erlenda hagsmuni

Það er ófyrirleitið af Íslandsbanka að skipta sér af innlendum stjórnmálum með jafn áberandi hætti. Bankinn er að fjalla um forsendlausar kröfur nýlenduveldanna Bretlands og Hollands, á hendur Íslendskum almenningi. Eins og vonandi allir vita, er Íslandsbanki í eigu erlendra fjárfesta. Afskipti þessara erlendu fjárfesta er afþökkuð og fordæmd.

 

Bankinn endurómar áróður Icesave-stjórnarinnar um að einungis tvær leiðir séu fyrir hendi í Icesave-deilunni. Ekki er minnst á þriðju leiðina sem er lögsöguleiðin. Þessi leið er leið sjálfstæðs ríkis og  byggir á virðingu fyrir lögsögu þess. Lögsaga merkir lög landsins og framkvæmd laganna. Öll sjálfstæð ríki halda fast í sína lögsögu og gefa hana ekki frá sér ótilneydd.

 

Ég bið menn að gefa því gaum, að álitsgerð Íslandsbanka dregur fram alla ókosti þess að hafna Icesave-lögunum, á mjög ósanngjarnan hátt. Hinir augljósu kostir þess að hafna Icesave-lögunum eru ekki nefndir á nafn

 

Jafnframt eru allir meintir kostir þess að samþykkja lögin stórlega ýktir og rétt væri að tala um lygar. Engir fjárhagslegir kostir eru við að samþykkja Icesave-kúgunina, en persónulegir hagsmunir stjórnmála-aðalsins og hinna erlendu banka eru augljósir. Þetta er eitt aumasta áróðursplagg sem sést hefur og það undir yfirskini fagmennsku - skammist ykkar !

 

Auðsjáanlega vilja hinir erlendu fjárfestar að Íslendingar greiði ólögvarðar kröfur nýlenduveldanna, en væri ekki vitrænt að fjalla örlítið um hvernig bankinn ætlar að starfa í landinu, eftir að hér er orðið greiðslufall bæði ríkis og almennings ? Ég fyrir mitt leyti mun taka út úr Íslandsbanka, það litla fjármagn mitt sem bankaræningjarnir eru ekki búnir að stela.

 
Loftur A. Þorsteinsson.
 

mbl.is Afar ólíkir kostir en síðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

9.430 áskorendur skrifuðu undir á Kjósum.is á nákvæmlega tveimur sólarhringum

Átakinu var hleypt af stokkunum kl. 22.15 í fyrrakvöld, skv. vefstjóra þess vinsæla vefs, Kjósum.is. Nú skelfast Icesave-sinnarnir, eins og sést á taugaveikluðum skrifum þeirra, og trúlega einnig Icesave-stjórnin innan sinna hallarmúra.

"Illt er í efni, að þjóðin ætlar að fara að ráða þessu einu sinni enn!" heyrast þeir stynja – kannski ekki orðrétt svona, en einn Samfylkingarsinninn, Stefán bróðir Katrínar Júlíusdóttur, sat úti í Berlín í dag og skrifaði í bloggi sínu: "Ég ætla nú rétt að vona að það komi ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave." Og í langsóttri vörn sinni átti hann þetta lokatromp á hendi:

  • "Í raun munu Íslendingar ekki greiða Icesave, heldur íslenska ríkið." [Svo!!!]

Þessi undarlegi Icesave-meinlokuþankagangur verður eflaust mikið rannsóknarefni síðar meir, en flestir heilsteyptir og eðlilega þenkjandi Íslendingar taka undir með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, sem sagði í þætti á Útvarpi Sögu sem þar var endurvarpað í kvöld:

  • "Við megum ekki skrifa upp á óútfyllta ávísun fyrir upphæð sem getur numið 200 milljörðum. Ef þeir ætla að láta þjóðina borga þetta, þá verða þeir að fá leyfi til þess í þjóðaratkvæðagreiðslu." (Skrifað hér upp nokkurn veginn orðrétt – og efnislega rétt.)

Þið sem hafið ekki séð vefsíðuna, hún er hér: Kjósum.is!

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Undirskriftir nálgast 9.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfir 7000 hafa skráð sig á Kjósum.is til að skora á Alþingi og forsetann að hafna Icesave-III-lagafrumvarpi

Það er rífandi gangur í þessari undirskriftasöfnun sem hófst seint í fyrrakvöld. Án einnar einustu auglýsingar eru áskorendur nú orðnir 7.185 (kl. 14.44). Einnig þetta er tækifæri þjóðarinar til að ræða við ráðamenn sína sem stundum villast af leið og ruglast jafnvel í ríminu þegar kemur að virðingunni fyrir stjórnarskrá og lögum landsins, eða vita þeir ekki, að þeim leyfist ekki að gefa út opinn víxil fyrir greiðslu seinni kynslóðar á uppspunninni ofurskuld – já, í því tilfelli þegar engin greiðsluskylda hafði myndazt (sjá 77. gr. stjórnarskrárinnar)?

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Sex þúsund manns gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5.700 undirskriftir á 36 tímum undir áskorun, sem beinist gegn Icesave-III, auglýsingalaust og án kynningar í blöðum og sjónvarpi

Þannig er staðan nú, seint á 11. tímanum á sunnudagsmorgni. Látum berast um allt, á Facebók, í bloggi, í spjalli og með bréfasendingum til vina og kunningja, að vefslóðin á undirskriftasöfnun Samstöðu þjóðar gegn Icesave er þessi: Kjósum.is ! Sjá nánar í greinum hér á síðunni: Þjóðarheiður.

Menn skora á þingið og forsetann að samþykkja ekki Icesave-frumvarpið

Átakið Kjósum.is á vegum Samstöðu þjóðar gegn Icesave – regnhlífarsamtaka fólks í mörgum flokkum og hreyfingum sem og þekktra einstaklinga – hefur gengið ágætlega þrátt fyrir sáralitla kynningu og engar auglýsingar. Frá því seint á 11. tímanum í gær til kl. 17.12 í dag hafa 3.000 manns skrifað undir áskorun þar um að Alþingi hafni frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans; heitið er á forseta landsins að synja slíku frumvarpi staðfestingar, verði það samþykkt á Alþingi.

"Ég vil að þjóðin fái að úrskurða um þetta mál," segir í lok þessarar áskorunar, þar sem fjölmargir eiga væntanlega eftir að tjá þennan vilja sinn.

Farið inn á Kjósum.is – smellið hér og kynnið ykkur síðuna, skrifið sem flest undir til að stuðla að því, að ykkar lýðræðislegi réttur til að úrskurða um þessa nýju risaskuldbindingu á okkar herðar og barna okkar verði virtur í verki með þjóðaratkvæðagreiðslu – rétt eins og daginn góða 6. marz 2010.

Efnt verður til blaðamannafundar á vegum aðstandenda þessarar áskorunar í Þjóðmenningarhúsi (Safnahúsinu við Hverfisgötu) á mánudagsmorgun kl. 11. 

Stöndum nú öll á réttinum, Íslendingar, látum ekki leggja á okkur ólögvarðar risafjárkröfur sem brjóta á sjálfri stjórnarskránni og lagalega tryggðum rétti okkar.

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Undirskriftir gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af úrtölumönnum fyrr og nú – hinum réttnefndu „Kúbumönnum norðursins“

  • Í útvarpsumræðum frá Alþingi í apríl [1971] kallaði þáverandi utanríkisráðherra, Emil Jónsson, kröfuna um 50 sjómílna landhelgi „siðlausa ævintýrapólitík“.*

Úrtölur af þessu tagi, háðs- og hræðsluáróður hefur oft heyrzt sem andsvar hinna hugdeigu gegn djarfri sókn og vörn annarra fyrir þjóðarréttindi okkar Íslendinga. 

Við upplifum það sama nú, þegar þrír flokkar á Alþingi hafa tekið stefnuna á vantrú á lög og rétt og bjóða upp á hreina vanvirðu við íslenzka þjóð með því að ætla henni að borga skuldir einkafyrirtækis, sem engin ríkisábyrgð er á (og heldur ekki á Tryggingasjóðnum, TIF).

Þessir þingflokkar segjast óttast, að við verðum að „Kúbu norðursins“, jungherrann Bjarni Benediktsson er farinn að flagga sínu afbrigði af þeirri hugdeigu „röksemd“, en sjálfir verðskulda þeir viðurnefnið „Kúbumenn norðursins“ vegna þessarar tilhæfulausu trúar sinnar á, að allt færi hér á hvolf, ef ekki yrði látið undan ólögvörðum frekjukröfum tveggja aflóga nýlenduvelda.

Sem betur fer létu menn ofangreind ummæli Emils heitins Jónssonar ekki telja sér hughvarf frá því að færa fiskveiðilögsöguna út í 50 mílur strax næsta ár, 1972, og í 200 mílur 1975. Við skulum ekki heldur láta þessa úrtölumenn nútímans, gaddfreðnu „Kúbumennina“ í Valhöll og víðar, tala okkur ofan af því að hafna Icesave-ólögum þess Alþingis, sem þjóðin treystir hvort eð er ekki lengur.

Jón Valur Jensson. 

___________________ 

* Dr. Gunnlaugur Þórðarson: Ævibrot. Setberg, Reykjavík, 1990, s. 198.


Eyverjar, félag Sjálfstæðismanna, birti texta sem Valhallarforystan fer í launkofa með!

Að því er ég fæ bezt fæ séð er búið að fjarlægja samþykkt landsfundarins um Icesave af öllum síðum Sjálfstæðismanna, nema þessa frábæru uppsetningu hjá Eyverjum. – Loftur.

 
Almenningur á ekki að ábyrgjast skuldir einkabanka
 
Eyverjar vilja árétta þá afstöðu Sjálfstæðisflokksins að almenningur á ekki að ábyrgjast skuldir einkabanka. Á 39. Landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var 25. og 26. júní 2010 var samþykkt ályktun Landsfundar þar sem meðal annars kemur fram eftirfarandi bókun:

                       "Landsfundur segir NEI við löglausum kröfum
                        
Breta og Hollendinga í Icesave-málinu."

Landsfundur er æðsta vald Sjálfstæðisflokksins og er flokknum ætlað að fara eftir þeim samþykktum. Eyverjar vona að þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni berjast áfram á móti þeirri áætlun vinstri flokkanna að láta almenning borga fyrir skuldir einkabanka.

 
9. des. 2010 kl.18:49
 
http://www.eyverjar.is/frettir/?p=400&i=235

 

TILVÍSANIR:

http://www.zimbio.com/Icesave/share?Content=/Icesave/articles/BGbFOPGfaUK/Almenningur+ekki+byrgjast+skuldir+einkabanka

http://www.zimbio.com/edit/Icesave/articles/BGbFOPGfaUK/Almenningur+ekki+byrgjast+skuldir+einkabanka


Sossarnir láta sér niðurlægingu Íslands vel líka


 

Ummæli Marðar Árnasonar eru dæmigerð fyrir þá fyrirlitningu sem þingmenn Samfylkingar hafa fyrir sjálfstæði Íslands. Höfð eru eftir honum þessi ótrúlegu ummæli:

 

  • »Við ættum að setjast niður og skoða og vinna í okkar eigin málum frekar en að þenja okkur með belging sem ekki gerir neinum gagn.«

 

Nú er það öllum ljóst, að beiting hryðjuverkalaganna gegn hagsmunum Íslands var grófleg atlaga að sjálfstæði landsins. Bæði ESB sjálft og Eftirlitsstofnum EFTA hafa úrskurðað að útibú Landsbankans hafi lotið Íslendskri lögsögu. Á grundvelli þeirrar lögsögu eru Icesave-kröfur nýlenduveldanna reistar. Það var því fullkomlega ólöglegt af Bretska ríkinu að gera aðför að útibúunum sem og öðrum eignum Íslendinga.

 

Það að skerða lögsögu ríkis á þann hátt sem Bretland gerði, jafngildir innrás á óumdeilt yfirráðasvæði Íslendska ríkisins. Hvað hefðu Sossarnir sagt ef Bretar hefðu gert innrás á Keflavíkurflugvöll og hirt þau verðmæti sem þar er að finna ? Raunar gerðu Bretar innrás í Ísland 1940 og hersátu landið í um eitt ár. Hvers vegna hefur ekki verið krafist bóta fyrir hernámið ?

 

Ekki kemur mikið á óvart að »Laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsþingsins« hafi lagst á málið og að það hafi kafnað undan þrýstingi nýlenduveldanna. Nefndin er búin að velta vöngum yfir málinu í 24 mánuði og komust loks að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að liggja lengur og tilgreindar ástæður væru eftirfarandi:

 

1.      Vegna þess að efasemdir voru um að æskilegt væri að Evrópuráðsþingið tæki afstöðu sem kynni að verða nýtt í dómsmálum í tengslum við fall Landsbankans.

 

2.      Þá hefði nefndin einnig komist að þeirri niðurstöðu, að gildissvið bresku hryðjuverkalaganna sé væntanlega nógu vítt til að frysting eigna Landsbankans félli innan þess.

 

Þá liggur réttlætisvitund Evrópuríkisins ljós fyrir. Ekki má fjalla um mál sem kynnu að koma fyrir dómstóla, sem kynnu að fella dóm yfir Bretlandi.

 

Innrás á lögsögu smáríkja er ekki metin nægileg ástæða til að sólunda í það pappír. Ef eitthvert ríkja Evrópusambandsins hefur nægilega víða löggjöf er allt í lagi að beita smáríki svívirðilegum bolabrögðum.

 

Ef í landinu væru alvöru stjórnvöld, væri þessi niðurstaða kynnt fyrir öllum heiminum, sem sá smánarblettur á ESB sem hún sannarlega er.

 

Loftur Altice Þorsteinsson.


mbl.is Rannsókn Evrópuþings á beitingu hryðjuverkalaga hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikur að kulnuðum glóðum kommúnismans

 

Það er rétt hjá Hr. Jóhönnu að trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar er enginn ! Hins vegar er það ekki ímyndar-vandi, eins og Sossunum er gjarnt að halda fram. Vantrú á Icesave-stjórninni stafar af getuleysi hennar og yfirgangi. 

 

Hagsmunir almennings eru fyrir borð bornir í hverju málinu á fætur öðru. Hugsunarlaust óðagot og ofstækisfull einsýni einkenna öll störf valdstjórnarinnar. Icesave-málið er dæmigert fyrir lotningu ríkisstjórnarinnar fyrir erlendu valdi. Við bætist sú framandi hugmyndafræði, sem báðir stjórnarflokkarnir tilbiðja.

 

Að kenna öðrum um eigin mistök hefur verið aðalsmerki Hr. Jóhönnu alla þá áratugi sem hún hefur setið við ríkisjötuna. Um vöntun á trúverðugleika ríkisstjórnarinnar sagði hún:

 

  • »Því er hins vegar ekki að leyna að sá óróleiki sem verið hefur í samstarfi við hluta þingflokks Vinstri grænna hefur skaðað stjórnarsamstarfið og dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar. Vegna órofa samstöðu innan Samfylkingarinnar og traust samstarf við formann og stærsta hluta VG hefur þetta hins vegar ekki stöðvað framgang mikilvægra mála ríkisstjórnarinnar.«

 

Hver eru þessi mikilvægu mál sem Hr. Jóhanna segir að ekki hafi tekist að stöðva ? Getur verið að hún telji mikilvægt að fórna sjálfstæði landsins sem friðþægingu á altari heims-kommúnismans ? Getur verið að Hr. Jóhanna telji Icesave-kröfurnar vera gott tækifæri til að beygja sig – sú líkamsrækt sem forsætisráðherra landsins kýs heldst ?

 

Hr. Jóhanna verður örugglega sannspá, þegar hún lýsir ótta sínum um endalok ríkisstjórnarinnar. Leikur hennar að »kulnuðum glóðum kommúnismans« er engin leikur heldur dauðans alvara. Íslendinga vegna ætti hún að láta þessum leik lokið.

 

Loftur Altice Þorsteinsson. 


mbl.is Eru að leika sér að eldinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband