Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Björn Valur Gíslason vill, að forseti Íslands geri það, sem hann sjálfur ætti að gera!

Björn Valur Gíslason alþm. virðist ekki kunna að skammast sín. Þetta er einn alharðasti Icesave-sinninn á Alþingi og hringdi æstur utan af sjó í beina útsendingu á Bylgjunni til að ýta eftir að Svavarssamningurinn yrði samþykktur strax "og þótt fyrr hefði verið"! Þá stóð yfir sumarþing, en Björn Valur skrópaði og var þó varaformaður fjárlaganefndar, sem þá stóð í maraþonvinnu í Icesave-málinu. Þó að það mál hafi vissulega ekkert erindi átt inn á þing, var vanræksla og óðagot Björns Vals fjarri því að vera rétta aðferðin til að jarða málið. (Já, það ber að jarða málið, Björn, ekki "landa því," eins og þú og þínir líkar viljið, þvert gegn lögum og rétti þjóðarinnar!)

Í þingumræðum um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í kvöld veittist Björn Valur svo harkalega að forseta Íslands, að hann var beðinn að gæta orða sinna. "Sagði hann forsetann hafa dásamað útrásarvíkingana allt frá upphafi og hvatti Ólaf Ragnar til að segja af sér," segir í frétt Mbl.is, þrátt fyrir að Ólafur beri enga stjórnskipulega ábyrgð á stjórnarathöfnum.

Hér dúkkar einmitt upp gremjan í vinstri flokkunum við synjun forsetans og úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þetta fólk getur ekki fyrirgefið Ólafi Ragnari að hafa skotið málinu undir dóm þjóðarinnar.

En Ólafur Ragnar er okkar maður – stendur vörð um stjórnarskrárbundin rétt Íslendinga til að taka lokaákvörðun um lagasetningu sem miklu kann að varða hvert mannsbarn í landinu. Svo var í þessu máli, og þvílík blessun, að stjórnarskráin reyndist ekki pappírinn einn og formsatriði, heldur varnarvirki þjóðarréttinda.

Menn ættu að varast að hlusta á raddir eins og Kristínar Ástgeirsdóttur (sem af einhverjum undarlegum ástæðum fekk sæti í siðferðis-undirnefnd rannsóknarnefndar Alþingis, þeirri undirnefnd sem átti siðferðibindið í ritröðinni), sem kallar nú eftir róttækri uppstokkun á stjórnarskránni, því að Kristín er einmitt í þeirri pólitísku fylkingu, sem vildi með sem sneggstum hætti ryðja úr vegi öllum hindrunum – þ.m.t. lagalegum, jafnvel stjórnarskrárbundnum – gegn færibanda-afgreiðslu þessa ömurlega Icesave-máls.

Þókknumst ekki óskum þessa fólks! Og Björn Valur, segðu nú af þér! 

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Hvatti forsetann til að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótæk vanþekking nefndarmanna á tryggingum Icesave-reikninganna

Vinnubrögð stjórnvalda við varnir fjármálakerfisins í okt. 2008 voru e.t.v. ótæk (sjá HÉR!), en jafn-ótæk er sú skoðun nefndarinnar, að bankarnir hafi lagt "alla áhættuna" af Icesave á TIF, því að brezki tryggingasjóðurinn bar í raun alla yfirábyrgð á Icesave-reikningunum.

Þarna reynist nefndin annaðhvort hafa fengið rangar og úreltar upplýsingar eða hreinlega ekki gengið eftir þeim réttu frá Bretlandi og Hollandi. Full 35.000 punda trygging FSCS (brezka tyggingasjóðsins) var á innistæðum einstaklinga í Icesave-reikningum til október 2008 og síðan strax 50.000 punda trygging upp frá því. Síðarnefnda upphæðin er um 2,7-falt hærri en þær 20.887 evrur, sem áttu að vera hámarkstrygging innistæðuhafa í gegnum hinn íslenzka Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta.

Innistæðueigendur (einstaklingarnir) höfðu allt sitt á þurru, þeim þarf ekki að vorkenna – og heldur ekki brezku bönkunum, sem standa undir tryggingakerfinu brezka með eftirágreiddum tryggingum sínum.

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Ótæk vinnubrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanhæfi viðskiptaráðherra og FME var meðal höfuðorsaka Icesave-klúðurs stjórnvalda

Þetta má ráða af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Forstjóri FME, Jónas Fr. Jónsson, og menn í viðskiptaráðuneytinu héldu í fáfræði sinni, að ríkið væri ábyrgt fyrir Icesave-reikningum! Þetta notfærðu Bretar sér og Hollendingar, gengu á lagið og knúðu á um það með blekkingar-orðalagi, í 1. lagi hvort ráðherrann ætlaði ekki að standa við skuldbindingar gagnvart Tryggingasjóðnum (TIF) og í 2. lagi AÐ hann færi að lofa ríkisstuðningi við TIF og í 3. lagi fullum stuðningi, þótt hann ætti raunar enginn að vera samkvæmt tilskipun Evrópubandalagsins 94/19/EC!

Lesið þetta úr skýrslunni: 

  • „Við fall bankanna haustið 2008 voru embættismenn óvissir um lagalega ábyrgð á innstæðum bankanna, dygði tryggingasjóðurinn ekki. Forstjóri FME og menn í viðskiptaráðuneytinu virðast hafa talið ábyrgð fyrir hendi. Bankastjórar Seðlabankans töldu hins vegar ekki um ótvíræða lagaskyldu að ræða“.

Þarna voru Davíð og menn hans greinilega betur upplýstir en evrókratinn Björgvin G. Sigurðsson og sjálfur yfirmaður Fjármálaeftirlitsins á Íslandi!

Þetta kemur enn betur fram hér (leturbr. og hornklofar frá undirrituðum):

  • „Hins vegar verður ráðið af svörunum að forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafi litið svo á að af tilskipun ESB leiddi að ríkinu bæri að aðstoða TIF þannig að sjóðurinn gæti greitt lágmarkstrygginguna [!!!]. Sama viðhorf virðist hafa verið innan viðskiptaráðuneytisins. Bankastjórar Seðlabankans töldu ekki að um svo ótvíræða skyldu eða ríkisábyrgð væri að ræða, og ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins hafði uppi sjónarmið um að fara ætti varlega í að lýsa yfir að ríkið bæri ábyrgð á lágmarkstryggingunni.
  • Fram kom við athugun rannsóknarnefndarinnar að þrátt fyrir þessi mismunandi viðhorf var ekki leitað sérstaklega eftir lögfræðilegu mati eða ráðgjöf sérfræðinga utan ráðuneytanna um þetta atriði fyrr en eftir fall bankanna. Þá hafa ekki komið fram gögn sem sýna að umrætt atriði hafi verið sérstaklega kannað á þessum tíma af hálfu þeirra starfsmanna ráðuneytanna sem komu að málinu umfram athugun á texta innstæðutryggingatilskipunarinnar,“ segir í skýrslunni. (5. bindi, 17. kafla, s. 308)

Makalaust klúður! En sem betur fer átti íslenzk þjóð sér varnir gegn enn frekara undanhaldi vanhæfra stjórnvalda. Vörnin fólst í 1. lagi í valdi Alþingis, sem samþykkti EKKI  Svavarssamninginn fyrirvaralausan, í 2. lagi í baráttukrafti þjóðarinnar sjálfrar, sem jafnan lét í ljós eindregna (2/3–3/4) andstöðu við alla Icesave-samninga og lagasetningu og tók með eftirminnilegum hætti þátt í áskorunar-herferð InDefence-manna, í 3. lagi í valdi forseta Íslands sem í samræmi við 26. grein stjórnarskrárinnar beitti málskotsrétti sínum og þjóðarinnar og í 4. lagi í hinni geysiöflugu þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem 98,1% þeirra sem afstöðu tóku sögðu NEI við 30. des.-ólögunum (og tveimur dögum seinna kom í ljós í skoðanakönnun hartnær 60% andstaða aðspurðra gegn allri ábyrgð Íslendinga á Icesave-greiðslum til Bretlands og Hollands).

En það, sem skiptir þó umfram allt máli og er einn undirstöðuþáttur í baráttunni fyrir rétti og hagsmunum lands og þjóðar í þessu efni, er lagalegar forsendur málsins og þá ekki aðeins lögin frá 1999 um tryggingasjóð innistæðueigenda og tilskipun 94/19/EC, heldur allt eins okkar eigin stjórnarskrárákvæði um það, hvernig gera megi fjárhagssskuldbindingar fyrir hönd ríkisins. Af þeim er alveg ljós, að hvorki skussinn Björgvin G. Sigurðsson, vanhæfur Jónas Fr. Jónsson, starfsmenn viðskiptaráðuneytis né Árni Mathiesen gátu gefið út neinar Icesaveskuldar-ábyrgðar-viðurkenningar án beinnar aðkomu og samþykktar Alþingis.

Á þessum grunni höldum við áfram baráttunni. Rétturinn er okkar. Aldrei að víkja. 

Jón Valur Jensson, formaður Þjóðarheiðurs.


mbl.is Ráðherra óviss um lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVIK Á SVIK OFAN: Icesave-milljarðahundraða-gerviskuldarjátning fyrir bónbjargarlán!

Í gær var logið að Mogganum, að Icesave yrði ekki tengt 2. endurskoðun AGS-efnahagsáætlunar. Lygin kom í ljós í Fréttablaðinu* og Rúv í dag. Í kvöldfréttum Sjónvarps segist Steingrímur ekki ætla að birta leynisamkomulag við AGS um tenginguna, þ.e. hvað standi í textanum.

Hve lengi á að ganga á þessum svikum og þessu leynimakki? Um leynilega yfirlýsingu tengda nýgerðu samkomulagi við AGS sagði Ólafur Ísleifsson hagfræðingur (sem um árabil starfaði hjá AGS) í hádegisfréttum Rúv í dag: "Það er nauðsynlegt að sjá þá yfirlýsingu og hvort það sé eitthvert nýtt efni í þeirri yfirlýsingu." Þar með gerir hann þá kröfu, að hið leynilega samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn verði opinberað.

Viðbrögð fjármálaráðherrans eru þau að segja efni yfirlýsingarinnar vera trúnaðarmál og verði ekki gert opinbert fyrr en eftir fund stjórnar AGS" (sjá HÉR!).** Það væri þá ekki í fyrsta sinn sem þessi Icesave-ríkisstjórn væri að fela samninga við erlenda mótaðila; við munum eftir jafnvel Icesave1-samningnum sjálfum (kenndum við Svavar) sem ráðherrarir létu sem ekki mætti birta vegna kröfu útlendinganna þar um, en þá afsönnuðu Hollendingarnir það í næsta leik með því að gera hann opinberan á netinu!

Hver getur í alvöru treyst þessari ríkistjórn? Og hvers vegna er yfirhöfuð verið að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um Icesave, ef lánalínan skal opnuð án tenginga við Icesave og án þeirra skilmála að við þurfum að beygja okkur fyrir ólögvörðum ofurkröfum Breta og Hollendinga?

Og til hvers var verið að ljúga því að fréttamanni Morgunblaðsins í gær, að engin slík tenging væri í gangi? Út frá þeirri frétt skrifuðu margir græskulausir hér á Moggabloggi í gær, þ. á m. undirritaður (reyndar ekki alveg grunlaus um svik, en sá örpistill hét þó: Icesave-vitleysan og AGS-lán ekki kúpluð lengur saman í 2. endurskoðuninni ...).

Fréttablaðið virðist hafa fengið aðrar fréttir í hendur en Morgunblaðið, nýtur þar meiri sambanda við Icesave-stjórnina. Var tilgangurinn sá að láta Moggann ýta úr vör vitlausri frétt (bæði á netinu í gær og í prentuðu útgáfunni í dag) til þess að friða og blekkja stóran hluta landsmanna? – Ljótt, ef satt reynist!

Sjáið bara hvernig Mogganum var ætlað í dag að flytja gervifrétt af málinu:

  • Bretar, Hollendingar og Norðurlönd leggja þó enn áherslu á Icesave-málið innan AGS en ráðherrarnir telja þau ekki munu beita sér í stjórninni. „Við komum því skýrt á framfæri að það væri algjörlega ólíðandi að tvinna þessa endurskoðun saman við Icesave, það sjónarmið nýtur mikils stuðnings,“ segir Gylfi [Magnússon]. (Fréttin Líklega í gegn 16. apríl, á forsíðu Mbl. í dag.)

Og samt er það einmitt það, sem stjórvöld hér skrifuðu upp á: að tengja þetta tvennt í þessari 2. endurskoðun efnahagsáætlunar AGS um Ísland!!!

Sjáið hér refinn úr Þistilfirði, hvernig hann talaði í sömu frétt (leturbr. jvj):

  • Aðspurður vill Steingrímur þó ekki segja að efnahagsáætlunin sé, úr því sem komið er, óháð lausn Icesave-málsins. „Nei, það er nú því miður ekki hægt að segja það. Það er ekki svo að þetta hafi komið fyrirhafnarlaust,“ segir hann. Ekki megi taka neina sigra út fyrirfram. „Það er ekki hægt að draga þá víðtæku, altæku ályktun af þessu að tilvist Icesave-málsins sé hætt að trufla þetta mál til framtíðar, því miður.“ 

Þarna lætur hann eins og þetta sé EKKI nútíðar-vandamál, bara framtíðar, hugsanlega þá í þriðju endurskoðun AGS-tengdu lánanna. En það er rangt, og hann vissi það strax í gær og virðist hafa verið að blekkja lesendur Morgunblaðsins með þessu. Hvernig er annars hægt að skilja þær nánari fréttir, sem komu svo í Fréttablaðinu, Rúv og sjónvarpsfréttum kvöldins um leyniákvæði í samkomulagi ráðherrans við AGS þess efnis, að samið skuli um Icesave

Ráðherrann hefur þá svikið og blekkt þjóðina einu sinni enn. Slíkum manni er naumast stætt í embætti sem fulltrúa okkar gagnvart öðrum ríkjum, eftir að þjóðin hefur gefið þann vilja sinn skýrt til kynna, að hún viðurkenni alls ekki, að henni beri að borga neitt vegna Icesave-reikninga Landsbankans!

Það er því engin furða, að fjárlaganefndarmaðurinn Kristján Þór Júlíusson alþm. fari nú fram á, að fundur verði haldinn í nefndinni þegar þing kemur saman eftir helgi, um efnahagsáætlun Íslands með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, – "ekki síst í ljósi þess hvernig Steingrímur J. Sigfússon er að svara fyrir þetta samstarf við AGS núna," eins og hann segir í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins (sjá tengil hér neðst).

-------------------------

* Í stórri forsíðufrétt: 'Endurskoðun AGS ákveðin', þar sem segir í 7. línu og áfram (leturbr. jvj):

  • "Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins féllst stjórn AGS hins vegar á að taka áætlunina fyrir eftir að íslensk stjórnvöld bættu inn í viljayfirlýsingu við sjóðinn að stefnt yrði að því að ljúka samningunum um Icesave sem fyrst, að því gefnu að viðunandi niðurstaða náist."

** Í frétt Rúv um þetta segir nánar af málinu (undirstr. jvj):

  • "Þetta sé hefðbundin endurnýjun samstarfsyfirlýsingarinnar og í henni felist svör Íslands við ákveðnum atriðum sem sjóðurinn hafi farið fram á. Þetta bréf Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi hvorki verið borið fyrir Breta og Hollendinga til samþykktar eða synjunar. Bréfið hafi þó verið unnið í samstarfi við yfirstjórn Alþjóðagjaldeyrisjóðsins og með þeim fulltrúum innan hans sem hafi með málefni Íslands að gera. Þá vildi Steingrímur ekki upplýsa fréttastofu um það hvort í bréfinu séu einhver ákvæði um það hvenær og á hvaða forsendum samið verði um Icesave."

Leyndarhyggjan heldur áfram! Þessi maður hefur sannarlega eitthvað að fela!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Fjárlaganefnd fundi um AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver gaf Gylfa umboð til að agitera erlendis fyrir Icesave?

Um hvaða fjárfesta er Gylfi Magnússon að tala, menn sem hafi "áhuga á Íslandi," en áhyggjur af lánshæfi landsins? Er ekki rétt að hann upplýsi um það, í stað þess að flagga sífellt hræðslutaktík ætlaðri til að berja landsmenn undir Ísklafann?

Kínverjar hafa áhuga á byggingu álvers hér. Ekki halda einhverjar auka-míníprósentur á lánum ríkisins aftur af þeim að fjárfesta hér.

En nú stendur yfir markviss áróðursherferð Icesave-postula um nauðsyn þess að samþykkja ofurskuldina á herðar þjóðarinnar. Ólafur Stephensen og Magnús Orri Schram gengu fram í Fréttablaðinu með fráleitan málflutning, og það sama gera þar í dag Svavar Gestsson og Ólafur Darri Andrason hjá ASÍ. Þessir menn og stjórnvöld okkar í heild virðast ætla að keyra þjóðina í kaf á þessu máli, því að ekki er hún sammála þeim.

Núverandi ríkisstjórn hefur með mun eindregnari hætti spyrt sig og sína auðnu við þetta Icesave-lygaskuldarmál heldur en fyrri stjórnvöld. Hvorug höfðu þó lagalega heimild til þess sem þau (í svo mis-alvarlegum mæli) gerðu – og höfðu ekkert umboð til þess frá þjóðinni.

Nú hefur þessi sama þjóð, með 98,1% atkvæða þeirra, sem afstöðu tóku, gefið algert frat í lagasetningu 33 þingmanna hinn 30. desember, og munu fá, ef nokkur dæmi slíks í norðlægum löndum, enda hraðaukast óvinsældir ríkisstjórnarinnar og ekki sízt leiðtoga hennar. Í Gallupkönnun birtri sl. mánudag lýstu rúm 27% ánægju sinni með störf Jóhönnu Sigurðardóttur, en 56% aðspurðra sögðust óánægð með störf hennar.

Er ekki kominn tími til að kannast við óvinsældir þessa meginstefnumáls ráðherranna?

Jón Valur Jensson


mbl.is Fjárfestar hafa áhyggjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem sumum er efst í huga!

Nýjasta traktering viðskiptaráðherrans til þjóðarinnar er þessi: Hefur áhyggjur af því að fyrirhugaðar kosningar tefji Icesave, og á þar við kosningar í Bretlandi í maí og Hollandi í júní. Halda mætti, að Icesave hafi verið efst á jólagjafalistanum hjá þessum umboðslausa, bitlausa ráðherra.

Honum hugkvæmast engar varnir fyrir Ísland, stendur frekar með þeim trausti rúnu ráðherrum Vinstri grænna og Samfylkingar, sem leggja ofurkapp á að setja á okkur ísklafann þunga sem þjóðin hafði aldrei samþykkt að undirgangast og hafnaði nýlega með eindregnum hætti.

Hvað á að segja um svona ráðherra? Á að vorkenna þeim eða benda þeim á að taka pokann sinn, áður en þeir valda með orðum sínum og athöfnum meiri skaða en þegar er orðinn? Hvað finnst ykkur, lesendur góðir?

Jón Valur Jensson. 


Er enn verið að reyna að svíkjast á bak við þjóðina með samning um greiðslu á risavaxinni gerviskuld?

Svo má ætla á fréttum. Margir telja, að ef þetta er tilboð brezkra og hollenzkra ráðamanna um að falla frá einhliða skilmálum þeirra um Icesave, þá sé það til þess eins að blekkja okkur til samninga. Vitaskuld bætti synjun forsetans og þjóðaratkvæðagreiðslan vígstöðu Íslendinga, og í skoðanakönnun birtri tveimur dögum seinna kom í ljós, að 3/5 manna telja, að okkur beri alls ekki að ábyrgjast Icesave-greiðslurnar. Þetta er varnarlína þjóðarinnar, og þeir pólitíkusar, sem ætla sér að fara út fyrir hana og gera samninga við óvininn, munu ekki uppskera þakklæti né vinsældir fyrir þau ónytjuverk sín, sem svo sannarlega væri ástæða til að kalla óhæfuverk.

  1. Samkvæmt tilskipun Evrópubandalagsins 94/19/EC ber ríkinu EKKI að ábyrgjast innistæðurnar.
  2. Bretar og Hollendingar þora ekki að leyfa dómstólum að úrskurða um þetta mál.
  3. Bretar hafa beitt okkur efnahags- og viðskiptastríðs-aðferðum allt frá hausti 2008 til að kúga okkur í málinu.
  4. Áður höfðu ráðherrar landanna reynt að narra og knýja fram játningar ráðherra hér, að íslenzka ríkinu bæri að styðja og (síðar) jafnvel ábyrgjast Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta, þvert gegn okkar eigin lögum frá 1999 og tilskipun EU frá 1994.
  5. Brezk og hollenzk stjórnvöld hafa misbeitt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í viðleitni sinni til að fjárkúga okkur.
  6. Vinstri stjórnin íslenzka hefur hagað sér ósæmilega í máli þessu, og þess sér enn stað í yfirlýsingum fjármálaráðherra og annarra valdamanna hér.
  7. Þjóðin hafnaði með yfir 93% atkvæða smánarlögunum frá 30. des. 2009. Ef aðeins eru taldir þeir, sem afstöðu tóku í þjóðaratkvæðagreiðslunni, var meirihlutinn 98,1%.

mbl.is Falla frá einhliða skilmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrar nýlegar Icesave-greinar

Dæmi um pistla á vefsíðum félagsmanna: Svavar Gestsson skrökvar massíft um Icesave-málið í aprílgabbiLokaatlaga breta gegn íslenskri þjóð er hafin – KETTIRNIR Í ÓRÓLEGU DEILD VG – The “pointless” referendum which brought shame on the colonial powers – eftir formanninn, Ómar Norðfirðing, Elle ritara og Loft varaformann (í réttri röð): innbyrðis ólíkar greinar sem snúast þó um sömu baráttu fyrir rétti og hagsmunum lands og þjóðar.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband