Höfnum Icesave-III umsvifalaust! Enga 26 milljarða gjöf til árásarríkisstjórna! Þingmenn og þjóðin öll lesi tímamótagrein Sigmundar Davíðs í dag!

Hann er enn við sama heygarðshornið, þingmeirihlutinn sem nýtur 25% fylgis meðal þjóðarinnar! Enn vill hann brjóta lög og stjórnarskrá, þjóðinni til skaðræðis!

Icesave – Áhættan er enn til staðar, svo nefnist grein Sigmundar Davíðs, sem með réttu fær heiðursstað og mikið rúm í leiðaraopnu Morgunblaðsins í dag. Undirritaður hefur kallað hana albeztu Icesave-greinina frá upphafi ... Smellið á þetta til að lesa hana.

  • "Það virðist orðið óumdeilt að íslenska ríkinu beri ekki lagaleg skylda til að greiða kröfur breska og hollenska fjármálaráðuneytisins. Hins vegar kunna einhverjir að telja að það sé engu að síður rétt að verða við kröfunum af öðrum ástæðum. Af þeim sökum er nauðsynlegt að fara yfir staðreyndir málsins svo leggja megi á þær rökrétt mat: ..."

Svo ritar Sigmundur Davíð í inngangi greinar sinnar. Þið verðið að lesa hana, undirritaður veit fátt mikilvægara þjóðinni á þessari stundu, en þó umfram allt þingmönnum hennar!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ríkið greiði 26 milljarða vegna Icesave í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband