Færsluflokkur: Fjármál
8.12.2010 | 08:44
Mótspyrnan gegn nýjustu Icesave-svikunum er rétt að byrja
Í skugga fréttar af sístritandi manni í Bretavinnunni: Icesave samningur á morgun?, ættu menn að kynna sér vel það, sem fram hefur komið í fjölda greina á vef Þjóðarheiðurs og nú síðast í samantektinni NB, NB, NB: Afhjúpandi upplýsingar um Icesave-málið á WikiLeaks! Þar koma bellibrögð brezkra stjórnvalda og íhlutun í okkar innanríkismál skýrt í ljós.
En ætla menn að láta það yfir sig ganga að leyfa stjórnvöldum þessa ólögmætu samninga?
Vera má, að Íslendingar séu seinþreyttir til vandræða, jafnvel til sumra nauðsynjahluta, en þeir sönnuðu það í blysförinni til Bessastaða og í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. marz sl., að þeir láta ekki stjórnvöld endalaust vaða yfir sig og sinn fæðingarrétt til landsins og hafsins gæða.
Verum minnug þess, að Bretar hafa gert kröfu til ríkisábyrgðar á öllum Icesave-greiðslum og fengu hjá okkar eigin Icesave-stjórnvöldum uppáskrift fyrir því að gera megi kröfu til eigna ríkisins, ef greiðslur verða ekki inntar af hendi. Meðal þeirra eigna eru til dæmis Landsvirkjun, allt hennar virkjananet og jafnvel ónotaðar orkulindir, sem og þær umfram-fiskveiðiheimildir sem ríkisstjórnin ætlar sér að hafa drjúgar tekjur af í náinni framtíð!
Við stoppum þessa menn af, Íslendingar, og forsetinn bregzt okkur ekki.
Jón Valur Jensson.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 02:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.12.2010 | 01:30
NB, NB, NB: Afhjúpandi upplýsingar um Icesave-málið á WikiLeaks!
Athyglisverðar eru þær upplýsingar af WikiLeaks, að Bjarni Benediktsson, form. Sjálfstæðisflokksins, "sagði á fundi í bandaríska sendiráðinu í fyrra að best væri fyrir íslenzku þjóðina að Icesave-samningarnir yrðu felldir og málið þvingað fyrir dómstóla. Töf á lausn málsins myndi hins vegar tefja endurreisn efnahagslífsins" (hér skv. frétt á Vísir.is: (Wikileaks: Vildi þvinga Icesave fyrir dómstóla). Þar segir ennfremur:
- Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins átti fund með Sam Watson, varasendiherra Bandaríkjanna hér á landi þann 11. nóvember á síðasta ári. Watson lýsir fundinum í leyniskjali sem sent var utanríkisráðuneytinu í Washington nokkrum dögum eftir fundinn og fréttastofa hefur undir höndum.
- Þar segir Watson að Bjarni hafi óskað eftir fundi með háttsettum embættismanni í Hvíta húsinu. Á fundinum vildi hann tjá reiði sína yfir því hvernig Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi verið notaður sem tól gegn Íslandi í Icesave deilunni. Hann vildi einnig ræða framtíðarmöguleika í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna.
- Bjarni hafi sagt á fundinum að á þessum tímapunkti væri best fyrir þjóðina að samkomulagið yrði fellt í þinginu. Þannig yrðu Bretar og Hollendingar þvingaðir til að leita skaðabóta fyrir dómstólum. Dómstólaleiðin væri ákjósanlegri en þáverandi samningar.
- Watson segir að Bjarni hafi þó viðurkennt að ef þetta yrði niðurstaðan og samningarnir féllu þá myndi það tefja endurreisn efnahagslífsins. Það þýddi töf á lánum frá AGS og þar með töf á afnámi gjaldeyrishafta.
- Bjarni hafi ennfremur greint frá því að hann væri ekki spenntur fyrir því að komast í ríkisstjórn að svo stöddu, hann vildi heldur halda áfram í stjórnarandstöðu þar til eftir sveitarstjórnarkosningarnar á þessu ári, til að styðja við frambjóðendur flokks síns.
Hér er upplýst um sitthvað, sem fram fer að tjaldabaki. Lesendur, ekki sízt félagar í Þjóðarheiðri, ættu að ræða þetta hér í athugasemdum.
Þá er þarna önnur ennþá athyglisverðari frétt á sama miðli: Reyndu að koma sér hjá atkvæðagreiðslu. Þar ritar Guðsteinn á Fréttablaðinu:
- Bandaríska sendiráðið í Reykjavík hefur greinilega frá fyrstu stundu fylgst grannt með samningum um Icesave-reikninga Landsbankans. Í skýrslu frá Carol van Voorst, þáverandi sendiherra, sem dagsett er 23. október 2008, segir hún frá viðræðum sínum við Martin Eyjólfsson, sviðsstjóra viðskiptasviðs utanríkisráðuneytisins, um framgang viðræðna við Breta, en í vikunni á undan hafði bráðabirgðasamkomulag við Hollendinga verið undirritað.
- Martin nefnir þar að Bretar hafi boðið Íslendingum að greiða upphæðina á tíu árum með 13,5 prósent vöxtum, en Íslendingar hafi á móti boðið 6 prósent vexti til 20 ára.
Þetta eru fróðlegar upplýsingar um "vinsemdarhug" Breta til okkar! Þarna er um eitt næsta nágrannaríki okkar að ræða, eitt þeirra mörgu sem Össur Skarphéðinsson leggur gríðarmikið traust á, ef við skiljum hann rétt. Þeir ætluðu sér m.ö.o. að leggja á okkur 13,5% vexti (níu sinnum meiri en það, sem löglegt gæti talizt samkvæmt EES-jafnræðisreglum) og það á upplogna skuldarkröfu á hendur íslenzku þjóðinni, þvert gegn ESB-reglum!
Þá segir í fréttinni:
- Sendiherrann segir í athugasemdum sínum að fáir á Íslandi virðist átta sig á því í hverju ábyrgð Íslendinga sé fólgin og hve gríðarlega há skuldin sé. Margir þeirra sem átta sig á þessu eru á barmi örvæntingar." [Leturbr. jvj.]
Já, við þekkjum þetta hér, félagarnir í Þjóðarheiðri og eins InDefence-menn!
- Í janúar á síðasta ári [rangt, þetta var í janúar síðastliðnum, innsk. jvj], nokkrum dögum eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti neitaði að undirrita lög um Icesave-samninginn, ræddi Sam Watson sendiráðunautur, sem þá var staðgengill sendiherra, við Einar Gunnarsson og Kristján Guy Burgess frá íslenska utanríkisráðuneytinu.
- Þeir sögðust þá afar svartsýnir á framtíð Íslands og að almenningur á Íslandi myndi fagna því mjög ef opinberlega væri hægt að lýsa því yfir að Bandaríkjamenn myndu lofa stuðningi eða hjálpa til við að fá málið á dagskrá hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
- Einnig er haft eftir þeim að þeir vilji komast hjá því að lögin fari til þjóðaratkvæðagreiðslu, en þeir séu að kanna aðrar leiðir til að leysa málið.
Þetta síðastnefnda var áður komið fram og er staðfest hér enn.
Þá segir þarna í beinu framhaldi að lokum (leturbr. jvj):
- Í sömu skýrslu er fullyrt að Ian Whiting, sendiherra Breta hér á landi, hafi sagt bandaríska sendiráðunautnum að Bretar væru einnig að leita leiða til að koma í veg fyrir að málið yrði borið undir þjóðaratkvæðagreiðslu.
- Breski sendiherrann sagði Breta hins vegar hafa fengið misvísandi skilaboð frá Íslendingum, sem fyrir viku virtust sáttir við að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu," eins og segir í skýrslunni en virðast nú vera að leita annarra leiða".
- Haft er eftir Whiting að ein möguleg lausn gæti verið fólgin í því að Norðmenn myndu lána Íslendingum fé, sem myndi duga fyrir Icesave-skuldinni. Þessi lausn gæti gert bæði Bretum og Íslendingum kleift að lýsa yfir sigri. Þetta gæti líka dregið að einhverju leyti úr gagnkvæmri andúð í viðræðunum".
Þetta var einnig áður komið fram, að brezki sendiherrann reyndi hér beinlínis íhlutun um íslenzk innanríkismál, þegar til stóð að beita helgasta rétti þjóðarinnar, sem hins æðsta úrskurðarvalds samkvæmt stjórnarskránni.
Og brall hans til að reyna að nota Norðmenn gegn íslenzkum þjóðarhag er nú afhjúpað! Hvar er þessi maður? Er búið að vísa honum úr landi?
Jón Valur Jensson.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.12.2010 | 07:53
Icesave-stjórnin nörruð með „Icesave-samningagulrót“ til að verja sig ekki gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA
Og svo er það ekki gefið, eins og Árni Þór Sigurðsson segir, að samkomulag í Icesave-deilunni muni liggja fyrir í vikunni! Hvað verður um freistandi tilboðin sem Bretar og Hollendingar létu skína í, verður vanrækslan að svara ESA til að bæta samningsstöðu stjórnvalda hér eða gera hana enn erfiðari? Mun ekki þjóðin samt hafna nýjum Icesave-samningi með sömu einurðinni og áður?
Eftirfarandi grein var send Morgunblaðinu, barst of seint til að fá þar birtingu í dag, en er þó enn sennilega tímabærari en flest það sem rætt er um í fréttum á þessum morgni:
Frestur til að senda ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, rökstutt svar við áminningarbréfi stofnunarinnar rennur út í dag, þriðjudaginn 7. desember. Á í alvöru að fara svo, að ríkisstjórnin svíki Ísland um lagavarnir í málinu? Sér hún ekki, að tilgangur brezkra og hollenzkra stjórnvalda með "tilboðum" sínum er trúlega sá að narra fjármálaráðherrann til að láta landið fara á mis við réttar varnir gegn ólögvörðum kröfum þeirra? Brezk og hollenzk stjórnvöld vita upp á sig skömmina og er vel ljóst, að þau hafa ekki réttinn með sér í þessu máli. Þeim er fyrir mestu, að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttar grípi ekki til lagavarna í málinu, þess vegna eru þau nú að pressa á Icesave-stjórnina hér með agni sínu. En greiðsluskyldan er engin af íslenzka ríkisins hálfu, jafnvel framkvæmdastjórn ESB hefur í sumar viðurkennt, að það sé ekki ríkisábyrgð á tryggingasjóðum innstæðueigenda á Evrópska efnahagssvæðinu. M.a.s. 2,78% vextir, sem nú er látið skína í sem tilboð (helmingurinn af því 5,55% "tilboði" sem Svavar vildi láta okkur greiða og Steingrímur kallaði "glæsilegt!"), eru í reynd ólöglegir vextir skv. EES-jafnræðisreglum vegna brezkra ríkislána til bankakerfisins þar með langtum lægri vöxtum. Fréttir af Icesave-bralli stjórnvalda og atvinnurekenda vekja einnig áhyggjur. Skammarlegt má heita, að SA o.fl. aðilar láta Icesave-ríkisstjórnina nota sig til að þrýsta á stjórnarandstöðuna til að fá hana til að taka þátt í nýjum svikasamningi gegn þjóðarhag og rétti landsins. Eiga stjórnarandstöðuþingmenn þakkir skildar að hafa hingað til staðið gegn þessum óeðlilega þrýstingi. Ekki seinna en núna, í dag, þarf tvennt að gerast: 1) mótmælastaða við Alþingi, með kröfu um, að ýtrasta rétti Íslands verði haldið á lofti í Icesave- og ESA-málinu, eins og stjórnvöldum er skylt gagnvart bæði okkur skattborgurum og börnum okkar, 2) að einhverjir þingmenn gangi fram fyrir skjöldu og geri það, sem skyldan krefst, að heimta utandagskrárumræðu um málið á þessum örlagadegi, ennfremur að stjórnvöld sýni þingheimi, hverjar séu þær lagavarnir, sem stjórnarráðið á tilbúnar í pússi sínu, en hefur enn ekki notað. Þá gefst vonandi færi á að fullkomna þær með snörum handbrögðum glöggra þingmanna, því að þeir eru svo sannarlega til. Áfram Ísland! Ekkert Icesave! Jón Valur Jensson. Höfundur er formaður Þjóðarheiðurs -- samtaka gegn Icesave.
![]() |
Ekki gefið að Icesave-deilan leysist í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvers konar njóli er þessi Vilmundur Jósefsson, að hvetja til að Íslendingar gangist við forsendulausum Icesave-kröfum nýlenduveldanna. Finnst þessum formanni SA gáfulegt að beygja sig fyrir fjárkúgun til að óskilgreindir aðilar geti tekið erlend lán? Hverra hagsmuna eru Samtök atvinnulífsins að gæta?
Allir landsmenn vita að Icesave-stjórnin lagði hart að stjórn SA, að hún beitti sér gagnvart þingmönnum stjórnarandstöðunnar og reyndi að fá þá til að fallast á fyrirætlanir um undanlátsemi í Icesave-málinu. Að enginn stjórnarþingmaður vildi ræða málið við Vilmund Jósefsson, er hól um þá þingmenn en ekki að sama skapi um þennan Vilmund, auðmjúkan þjón Evrópuríkisins.
Fullyrðingar Vilmundar um erfiðleika Landsvirkjunar eru rangar, því að fyrirtækið er ekki í erfiðleikum með fjármögnun. Hins vegar verður varla um áframhaldandi samvinnu að ræða við Evrópska fjárfestingarbankann, vegna þess að hann er tregur til að lána í Bandaríkjadölum (USD).
Landsvirkjun vill taka lán í USD vegna þess að 70% tekna fyrirtækisins er í Bandaríkjadölum og eðlilega er hagkvæmara að taka erlend lán í þeim gjaldmiðli. Hægt er að taka gjaldmiðla-tryggingar, en því fylgir kosnaður og Evrópski fjárfestingarbankinn verður að taka þann kostnað á sig, með lægri vöxtum. Á vef Landsvirkjunar er hægt að sjá staðfestingu á þessari stöðu:
»Landsvirkjun gerði í ársbyrjun 2008 Bandaríkjadal að starfrækslumynt fyrirtækisins á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS), enda eru um 70% tekna hennar í þeirri mynt ásamt stórum hluta skuldanna. Landsvirkjun hefur fyrir vikið sloppið við hin gríðarlegu gengisáhrif sem íslensk fyrirtæki hafa almennt orðið fyrir við fall krónunnar. Innlendar tekjur og rekstrarkostnaður Landsvirkjunar eru í jafnvægi og gengisáhætta Landsvirkjunar vegna krónunnar er því óveruleg.«
Vilmundur segir:
»Einkafyrirtæki semji yfirleitt um lán hjá einkabönkum á meðan opinber fyrirtæki semji um lán hjá bönkum eins og NIB og Evrópska fjárfestingarbankann.«
Þetta er merkingarlaus alhæfing hjá Vilmundi. Fyrirtæki af öllu tagi taka lán þar sem lánskjörin eru hagstæðust. Er ekki furðulegt að formaður stjórnar Samtaka atvinnulífsins skuli ekki vita þetta ? Auðvitað veit aulinn þetta, en hann heldur að almenningur taki mark á svona blekkingum.
Loftur Altice Þorsteinsson.
![]() |
Vonast eftir samkomulagi sem fyrst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
5.12.2010 | 14:37
Þrátt fyrir "tilboð" um 2,7% vexti á ríkisstjórnin að hafna Icesave-samningi og svara áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA!!!
Getur einhver útskýrt, hvers vegna Icesave-stjórnin hefur svo mikla ánægju af að endurvekja Icesave-málið aftur og aftur? Getur verið að henni þyki svo vænt um nafngiftina, að hún ætli að tryggja að nafnið »Icesave-stjórnin« lifi að eilífu í minni þjóðarinnar?
Allir vita að Icesave-reikningarnir voru endurgreiddir fyrir langa löngu. Það gerðu tryggingasjóðir í Bretlandi og Hollandi. Hvar fengu þeir fjármagn til þess? Það var tekið af venjubundnum iðgjöldum bankanna sem starfa í þessum löndum.
Hafa þá komið kröfur á hendur almenningi á Íslandi um greiðslu til tryggingasjóðanna, eða bankanna? Nei engum manni hefur dottið það í hug, enda þurfti ekki að hækka iðgjöldin um Pund eða Evru. Þar að auki segja tilskipanir ESB og reglugerðir nýlenduveldanna, að ríkissjóðir megi ekki koma að innistæðu-tryggingum.
Hvaðan koma þá þessar Icesave-kröfur? Þær koma frá ríkisstjórnum Bretlands og Hollands, sem ekki eru aðilar að málinu. Þessar kröfur eru forsendulausar, hvort sem litið er á lagahlið, pólitískar forsendur eða siðferðilegar. Málið er löngu afgreitt þótt Icesave-stjórnin haldi áfram að skemmta skrattanum. Þessari alræmdu ríkisstjórn hefur tekist að skrá sig í söguna sem hóp hinna aumustu af öllum aumum.
Loftur Þorsteinsson.
Vekja ber athygli á meðfylgjandi frétt (tengill hér fyrir neðan), byggðri á óstaðfestri frétt Stöðvar 2. Lokafrestur ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, til stjórnvalda hér að bregðast við áminningarbréfi stofnunarinnar, rennur út nk. þriðjudag, 7. desember. Við minnum hér á fyrri grein um það mál: Hætt við svikum í Icesave-máli og erkiklúðri ef Steingrímur sendir ekki Eftirlitsstofnun EFTA rökstudda höfnun!
Brezk og hollenzk stjórnvöld vita upp á sig skömmina og er vel ljóst, að þau hafa ekki réttinn með sér í þessu máli. Þeim er fyrir mestu, að íslenzk stjórnvöld grípi ekki til lagavarna í málinu, þess vegna eru þau nú að pressa á Icesave-stjórnina hér með agni sínu. En greiðsluskyldan er engin af íslenzka ríkisins hálfu, og m.a.s. 2,7% vextir (ekki helmingurinn af þeim 5,55% sem Svavar vildi láta okkur greiða og Steingrímur kallaði "glæsilegt!") eru kolólöglegir!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Samkomulag að nást um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
3.12.2010 | 09:22
Icesave stendur íslenzkum stórfyrirtækjum ekki fyrir þrifum
Morgunblaðið segir fátt benda til "að Icesave-deilan standi í vegi fyrir fjármögnun íslenskra fyrirtækja erlendis." Icelandic Group hefur nú endurfjármagnað erlendar skuldir sínar fyrir 125 millj. með tæpl. 300 punkta álagi á LIBOR. Marel gerði það sama nýlega með enn hagstæðari lánum frá bönkum í Hollandi, eins og sagt hefur verið frá hér, þ.e. með hagstæðari kjörum en íslenzka ríkið fekk frá meginlandsríkjum Norðurlanda í tengslum við efnahagsáætlun AGS. Nánar er fjallað um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.
Jafnvel Þorvaldur Gylfason prófessor talaði í gær í viðtali á Útvarpi Sögu á þá lund, að Íslendingar gætu nú þæft Icesave-málið enn lengur gagnvart Bretum og Hollendingum og komizt upp með það, einnig gagnvart norrænu ríkjunum sem nú hafa nokkurn veginn lokið sínum þætti í AGS-áætluninni um lán til íslenzka ríkisins.
J.V.J.
![]() |
Icesave hefur ekki áhrif á erlenda fjármögnun fyrirtækja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2010 | 05:09
Í alvöru svona óvinsæl? – Bent á leið til úrbóta.
Ætli Icesave-málið sé ein ástæðan fyrir tæplega 21% vinsældum Jóhönnu Sigurðardóttur í valdamesta embætti þjóðarinnar eða kannski ástæða 63% óvinsælda hennar? Fleira kann þó að koma til, "skjaldborgin" m.a. Steingrímur hefur einnig misst ánægjufylgi: 55% aðspurðra eru óánægðir með störf hans, en 31% ánægð.
Þau gætu nú híft sig svolítið upp, ef þau fylgdu þjóðinni að málum í Icesave-deilunni.
JVJ.
![]() |
Yfir 60% óánægð með störf forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2010 | 01:03
InDefence-menn ræða Icesave-málið í Útvarpi Sögu
Icesave er til umræðu NÚNA, kl. 12 e.m., í endurteknum þætti á Útvarpi Sögu frá liðnum degi. Eiríkur S. Svavarsson og Jóhannes Þ. Skúlason úr InDefence-hópnum sitja þar fyrir svörum í þætti Markúsar Þórhallssonar. HLUSTIÐ á þáttinn!
Þeir nefna í byrjun, að það er ekkert á dagskrá að gefast upp í þessu máli. Hve satt!
Eiríkur: Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. marz var nánast á borð við það, hve margir greiddu lýðveldisstofnun atkvæði sitt 1944. Og niðurstaðan snerist ekki bara um það að hafna háum vöxtum.
Þá kom hann einnig að þessu: Lögbundin greiðsluskylda er í raun ekki fyrir hendi. Í 2. lagi segir hann líka liggja fyrir, að ábyrgðin á þessu máli eigi að skiptast milli samningsaðila. (Hér er hann að lýsa afstöu InDefence, ekki Þjóðarheiðurs.)
Minnzt er á aðkomu og ummæli forseta Íslands í þættinum. Jóhannes: Forsetinn minnti á sínum tíma á skilmála Alþingis í fyrri samþykt þingsins um málið; meðal þeirra séu Brussel-viðmiðin, sem InDefence-hópuinn leggi líka áherzlu á.
Eiríkur: Það var tigangur InDefence með fréttatilkynningu á föstudaginn var, að þeir vilja sjá þessar nýju tillögur og taka svo afstöðu til þeirra fá þetta upp á borðið, svo að við getum metið tillögurnar, kosti þeirra og galla, það er fyrst og fremst það sem við erum að biðja um núna, sagði hann.
Um tíma, áður en komið var að núverandi samningaviðleitni, var talað um að kostnaðurinn gæti orðið 170 milljarðar auk vaxta (segir annar þeirra). Jón Daníelsson komst að því, að það gætu þó verið um og yfir 500 milljarðar sem fallið gætu til, sagði hann.
Og áfram skal haldið að greina frá málflutningi tvímenninganna í þættinum:
Hér hefur verið mikill áróður fyrir því, að ekkert gæti gengið hér í lánamálum fyrirtækja, ef ekki yrði samið; enginn myndi vilja tala við okkur, fullyrt var, að við yrðum"Kúba norðursins" o.s.frv. Þvert gegn þessu bendir Nannar InDefence-maðurinn á, að skuldatryggingarálag Íslands hefur farið hríðlækkandi, það er t.d. miklu lægra en Írlands núna. Eins hefur Landsvirkjun lýst því yfir, að hún sé búin að endurfjármagna öll sín lán.
3. dæmi er Marel, sem er eitt af okkar mikilvægustu útflutningsfyrirtækjum, og þeir voru að ljúka sínum lántökum. Dæmið um fjármögnun þess sýnir, hver varasamur þessi málflutningur er, sem að var vikið. Þetta er stórfyrirtæki og alveg príma dæmi um þetta. Það er slegizt um að lána þeim! Það eru 6 bankar sem lána þeim, og það eru hollenzkir bankar. Ef það eru einhverjir, sem ættu að vera tregir til þess vegna Icesave, þá eru það Hollendingar! En þeir bjóða m.a.s. svo lága vexti sem 3,2%, sem er mun betra en íslenzka ríkið fær það er t.d. að fjármagna sig núna með 5,6% vöxtum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum!
Jóhannes: Ég held því fram, að þetta (Icesave) hafi ekki valdið okkur vandræðum. Þó að Orkuveita Reykjavíkur hafi verið í vandræðum með sín mál, er það fyrst og fremst vegna þess að það fyritæki er sjálft í djúpum skít, forsvarsmenn þess hafa talað um það á þann veg, og það eykur ekki tiltrú lánveitenda.
Hve stórt er Icesave-málið fyrir Breta Hollendinga? spyr Markús.
Eiríkur: Ekki mjög stórt mál, þótt það hafi verið það fyrir þá einstaklinga sem áttu þarna inneignir. En Financial Times benti á, að þetta væri í raun mjög litill hluti af þjóðarframleiðslu Breta, sem þarna var verið að krefja Íslendinga um með mjög vafasömum aðferðum. Ég hef, sagði Eiríkur, sjaldan séð stjórnvöld skömmuð svona harkalega í skrifum þess virðulega blaðs.
740 milljarðar punda er heildarpakki brezka ríkisins gagnvart bönkum sínum, en hér er (eða var) um 2,3 milljarða punda að ræða vegna Icesave. En þeir beittu hér hryðjuverkalögum gagnvart okkur! Upphaf InDefence-hópsins var einmitt að rekja til beitingar þessara hryðjuverkalaga í okt. 2008. Menn eru nú að tala um að fara í mál við Breta vegna þessa.
Minntu á Aftenposten-viðtal við brezkan ráðherra sem baðst afsökunar á hryðjuverkalögunum.
Ísland og Seðlabankinn voru sett á lista brezka stjórnarráðsins yfir hryðjuverkaríki, ásamt Norður-Kóreu!
InDefence-menn ræddu við brezka stjórnsýslumenn um málið snemma í þessu ferli, en þeir voru harðir og sögðu: "Fyrst semjum við um Icesave. Svo afléttum við hryðjuverkalögunum." Þeir brugðust ekki vel við, þegar InDefence-menn sögðu, að þetta væri eins og fjárkúgun. Þeir voru ekki vanir svona ódiplómatísku orðalagi! En samninganefnd okkar vann undir þessari hótun og gerði [Svavars-]samninginn. En það átti aldrei að reyna að semja við þá fyrr en eftir að þeir myndu aflétta hryðjuverkalögunum, sagði annar hvor InDefence-maðurinn í ÚS-þættinum.
Menn eru að tala um, að þessar fjárhæðir séu komnar langt niður. Engu að síður eru þetta 60 milljarðar. Það eru 740.000 kr. á hverja 4 manna fjölskyldu, og það væru peningar sem væru að falla á einstaklinga vegna einkafyrirtækis sem féll.
Bara þessar vikurnar eru menn að deila um að ná 30 milljarða viðbótargreiðslum vegna fjárlaga.
Icesave-vextirnir skv. Icesave-2-lögunum voru 40 milljarðar á hverju ári. Veltu því fyrir þér (sagði Jóhannes við Markús heyrðist mér! JVJ.) hvað hefði gerzt, ef við hefðum samið um þessa 5,55% vexti, þ.e. 40 milljarða á ári ofan á allt annað hjá okkur nú. Okkur tekst ekki einu sinni að ná niður 30 milljörðum á ári nú þegar.
60 milljarða tala menn um nú, en verða að hyggja betur að, sagði sami viðmælandi. Það verður að koma fram, hvernig til standi að þessar greiðslur verði. Þær geta t.d. auðveldlega breytzt í 100 milljarða, ef gjaldeyrishöftin verða afnumin.
Endursögn þáttarins lokið, og skal viðurkennt, að þetta er ágripskennt; undirritaður er ekki hraðritari á tölvuna!
Jón Valur Jensson.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 02:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.11.2010 | 12:48
Icesave hefur engin áhrif á lántökumál fyrirtækja – samt liggur ekkert fyrir enn um samninga um þessa gerviskuld
Komið er í ljós í nýrri frétt, að þótt Icesave- misvísaða -rukkunin hafi ekki verið greidd né um hana samið, er það engin fyrirstaða fyrir góðum lánasamningum fyrirtækja. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom einmitt inn á þetta í ágætu innleggi sínu í Vikulokunum nú fyrir hádegið.
Marel var að fá stórt lán, einkum frá hollenzkum bönkum (ING Bank, Rabobank og ABN Amro) til endurfjármögnunar á skuldum sínum, alls upp á 350 milljónir evra, um 54 milljarða króna, og er fjármagnskostnaður af þessu nýja láni aðeins 3,2%. Við samninga um lánið kom það ekkert til umræðu, að Icesave þvældist þar eitthvað fyrir né ylli Marel þyngra skuldatryggingarálagi en eðlilegt væri. Hrakspár um þetta reyndust því út í hött eins aðrar slíkar eða eilífur hræðsluáróður stjórnvalda í tengslum við Icesave.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var með athyglisverðar áherzlur um Icesave-málið í þættinum Vikulokunum rétt í þessu. Hann gat þess m.a., að þau samningskjör, sem um var rætt nýlega,* hafi í raun ekki verið í neinum samningsdrögum, "heldur það sem fjármálaráðherra taldi sig geta náð í svona samningum."
Vegna ummæla þáttarstjórnanda (Hallgr. Thorsteinsson) sagði Sigmundur, að hann yrði að viðurkenna, að forsetinn hafi staðið sig ákaflega vel að mæla fyrir málstað Íslands.
Þá kom hann inn á það, sem sagt er frá hér í fréttinni (nánar á tengli hér neðar), og nefndi, að menn hafi verið að segja, að það sé ekki hægt að fjármagna sig, þ.e. að stór, íslenzk fyrirtæki hafi ekki getað það vegna þess að Icesave-málið væri óleyst, en það væri "auðvitað bara vitleysa," eins og nú hefði sannazt, og Landsvirkjun, sem fekk stórt lán hjá þýzkum banka, og annað fyrirtæki, sem Sigmundur nefndi, auk Marles, sýndu þetta glöggt.
Þá gat Sigmundur fullyrðinga um, að ef Icesave-málið verði ekki samþykkt, muni gjaldmiðillinn falla, "en hvað hefur gerzt? eftir að forsetinn synjaði, hefur krónan styrkzt!" (nokkurn veginn orðrétt eftir haft).
"Svo átti skuldatryggingarálagið að fara upp úr öllu valdi," ef um Icesave yrði ekki samið, en það hefði líka reynzt vitleysa!
Aðspurður hvort stjórnarandstaðan teldi þetta ásættanlegt, sem nú sé verið að ræða, sagði Sigmundur Davíð, að þeir viti í raun ekkert um það. "Ég hef ekki séð eina einustu tölu á blaði," mælti hann að lokum.
Það er ástæða til að þakka Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir varðstöðu hans og skýra rödd í þessu máli.
* Sbr. næstsíðustu grein á þessum vef og greinina þar á undan.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Icesave kom ekki til tals |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.11.2010 | 19:59
Nýtt Icesave-samkomulag um greiðslu þess, sem ekki ber að greiða?
Stöð 2 sagði frá því kl. 18.30 að samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands hafi komið sér saman um grundvallaratriði nýs samkomulags um Icesave-málið. Þar er talað um 4060 milljarða kr. höfuðstól og 3% vexti. Hér kunna samningaviðræður, sem voru teknar upp aftur í júlí, að vera að nálgast sín endalok.
Allt er þetta enn byggt á ótilgreindum heimildum fréttastofu Stöðvar 2.
Afstaða okkar í Þjóðarheiðri samtökum gegn Icesave hefur frá upphafi verið ljós: hún er sú sama og meirihluta þjóðarinnar: að við eigum ekkert að borga af einkaskuld einkafyrirtækisnins Landsbankans.
Hér er hins vegar ólíkt skárra útlit fyrir stafni en þegar Icesave-ólögin voru samþykkt með naumum meirihluta þingmanna á Alþingi 30. desember sl. Menn já, stjórnarþingmenn líka! geta prísað sig sæla, að ekki er lengur samið á þeim smánar- og manndrápsklyfja-kjörum. Strax eru umtalaðir vextir nú t.d. næstum helmingi lægri en þeir 5,55% ólöglegu vextir (sbr. líka hér!), sem samið var um í vetur þeir sem vitaskuld voru svo felldir "með öllu heila gillinu" 6. marz sl., sbr. HÉR um hinar áhugaverðu niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar, flokkaðar eftir landshlutum.
Þessi barátta hefur því líka verið mörkuð sigurvinningum, fyrst og fremst staðfastrar þjóðarinnar, en einnig forseta Íslands og samtaka fjölda fólks og stöðugum þrýstingi, m.a. af hálfu systur- eða öllu heldur bræðrasamtaka okkar, InDefence-hópsins (því að allir munu þeir vera karlmenn, þeir ágætu baráttumenn; og við þökkum samráð við þá).
En áfram skal barizt til sigurs. Framkvæmdastjórn ESB hafði þegar viðurkennt það (reyndar með semingi og ekki fyrr en í sumar), að einstök ríki á ESB- og EES-svæðinu beri ekki ábyrgð á tryggingasjóðum sínum. Tvenns konar fullyrðingar sömu framkvæmdastjórnar, um að undantekning yrði að vera þar á varðandi Íslendinga eina þjóða, voru hvorar tveggja byggðar á rökleysu, eins og við höfum fjallað ýtarlega um hér í greinum í sumar, m.a. með hliðsjón og stuðningi af erlendum og innlendum sérfræðingum. Þess vegna er alls engin réttmæt né lögvarin skuldakrafa hvílandi á íslenzku þjóðinni vegna þessara kröfumála!
Í frétt Stöðvar 2 kom fram eitt atriði, sem er ekki í frétt Mbl.is, þ.e. að lengt verði í vaxtalausu tímabili á samningstímanum, það verði 9 mánuðir.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Vextir 3% í Icesave-samkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)