Færsluflokkur: Löggæsla

Vill einhver Icesave-þjóninn Baldur Þórhallsson á Bessastaði?

Baldur Þórhallsson, milljóna styrkþegi ESB, átti létt með að fylgja Brussel-stefnunni um Icesave. Nú bregður nýrra við, ef einhverjir telja slíkan mann hæfan til að taka við af varnarmanni þjóðarinnar, Ólafi Ragnari, á Bessastöðum.

Menn ættu að rifja upp greinar eins og þessa: Baldur Þórhallsson telur vinstri flokkana ekki hafa talað (nógu mikið) fyrir Icesave-svikasamningunum!  

En um ESB-málflutning Baldurs, sjá Fullveldisvaktina í dag.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Baldur og Felix á Bessastaði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundarsamþykktir til þess eins að þingflokkur Sjálfstæðisflokks sturti þeim niður?

Tvisvar sveik flokksforystan þjóðina í Icesave-málinu, svo aftur um ESB-umsókn. Bjarni Ben., helztu vopnabræður auk þrælslundaðra þingmanna (fáar undantekn.) kusu með fyrirvarasamningnum* og Buchheit-samningnum líka (með alræmdu "ísköldu mati" Bjarna, ÞVERT GEGN lands­fundar­samþykkt sem hafnaði eindregið Icesave-samningum).

Sú spurning vaknar því: Til hvers eru landsfundir flokksins að koma saman að gera samþykktir sem þingflokkur Sjálfstæðisflokksins óvirðir svo með öllu?

Það er sniðugt að setja núna upp sátta- og eindrægni-svipinn til að draga úr líkum á gagnrýni á forystu flokksins fyrir svik við síðasta landsfund, svik sem voru e.k. déja vu eða endurtekning með Icesave-málið í huga, og samt fær þessi formaður að hanga á valdastóli. 

Jafnvel eftir að Evrópusambandið hafði veitzt harkalega að þjóðarhagsmunum okkar í tveimur meginmálum: 1) með því að herja endalaust** og af ótrúlegri óbilgirni*** á okkur vegna hinna ólögvörðu krafna Breta og Hollendinga um ríkisábyrgð á Icesave-reikningum einkabanka og 2) með þeirri ofsafrekju sinni að vilja banna okkur að mestu leyti veiðar á makríl í okkar eigin fiskveiðilögsögu (rúml. 2% af makrílveiðum í NA-Atlantshafi vildu þeir "leyfa" okkur að veiða, þótt hann væri einkum hér!), -- jafnvel eftir þessa bitru reynslu af fjandskap Evrópusambandsins létu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sér detta í hug að gera það til þjónkunar þessum Brussel-herrum að svíkjast um að uppfylla kröfu landsfundar flokksins 2013 um að hætt skyldi við hina ólög­mætu Össurar­umsókn um "aðild" að þessu valdfreka stórvelda­bandalagi.

Íhaldssamir menn og þjóðræknir, þeir, sem virða lög og reglur og þjóðar­hagsmuni, munu ekki með léttu loka augunum fyrir því, að Bjarni Benedikts­son hefur með aðgerðum sínum kosið ábyrgðarlausa tækifærisstefnu í stað trúnaðar við félagsmenn í flokknum.

Og jafnvel verra er, ef forystan gerir þetta Evrópusambandinu til þægðar. Ein af tillögunum, sem liggja fyrir landsfundi, er um stjórnarskrárbreytingar. Þar er ætlunin að láta samþykkja heimild til framsals ríkisvalds og binda jafnframt svo um hnútana, með sérstöku ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur, að slíkar megi ekki halda um samninga um þjóðréttarmál! Það gengur vart hnífurinn milli þessarar hugsunar og stefnu hins ólögmæta "stjórnlagaráðs" undir áhrifa­stjórn ESB-vinarins Þorvaldar Gylfasonar að leyfa slíkt fullveldisframsal (í 111. grein tillagna "ráðsins"), en banna um leið (í þeirra 67. grein), að þjóðin geti krafizt þjóðaratkvæðagreiðslu um að hætta við þjóðréttarsamning eins og þann sem innsiglar inntöku í Evrópusambandið!

Það er illa komið fyrir þessum Sjálfstæðisflokki, ef hann samþykkir tillögu á borð við þessa. Bæði forysta hans og utanríkisráðherrann Gunnar Bragi hafa brugðizt í ESB-umsóknarmálinu og virðast jafnvel sýna Brusselvaldinu vaxandi meðvirkni á ýmsum sviðum (m.a. með nýjum og stórvarasömum reglum um tollavernd landbúnaðarvara, sbr. H É R).

* Allir þingmenn Sjálfstæðisflokks greiddu þá atkvæði með Icesave-samningnum fyrir utan Illuga Gunnarsson, sem var fjarstaddur, og hina sönnu sjálfstæðismenn Birgi Ármannsson og Árna Johnsen, sem sögðu neiÞetta var undir lok ágústmánaðar 2009. Sjálfur var undirritaður svo reiður meirihluta þingmanna Sjálfstæðisflokksins að samþykkja fyrirvaralögin, að ég sagði mig þá úr flokknum, eftir 37 ára félagsaðild, sbr. þessa grein.

** Undir lokin kaus ESB að láta kné fylgja kviði með því að eiga meðaðild að kærumáli Breta og Hollendinga gegn okkur í EFTA-dómstólum (þar sem þessir aðilar töpuðu allir smánarlega, og við þurftum ekki einu sinni að borga eigin málskostnað!).

*** Óbilgirnin birtist ekki hvað sízt í "gerðardómi" sem Evrópusambandið skipaði fulltrúa þriggja stofnana sinna í: framkvæmdastjórnar ESB, Evrópska seðlabankanns og ESB-dómstólsins í Lúxemborg. Árni M. Mathiesen hafði þá sem ráðherra vit á að skipa EKKI fulltrúa Íslands í gerðardóminn, og það var eins gott, því að þessir þrír fulltrúar dæmdu allir Íslendinga seka og greiðsluskylda um Icesave-kröfurnar! -- og gerðu það þvert gegn tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ekki landsfundur deilna og átaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð grein upplýsts blaðamanns um blekk­ingar­viðleitni Icesave-sinna úr röðum Steingríms J.

Sigurður Már Jónsson ritar: 

Pólitískur trúnaðarmaður Steingríms J. Sigfússonar skrifaði fyrir stuttu enn eina villugreinina undir fyrirsögninni: „Icesave: Við borgum og semjum og borgum…” Látalætin eru alger eins og vanalega úr þeim ranni ... (Feitletrun jvj.)

Sigurður Már gaf út heila bók um Icesave-málið. Lesið áfram um þessa nýjustu blekk­ingar­starfsemi gamalla Icesave-dráttar­klára í þeirri grein viðskipta­blaðamannsins Sigurðar Más, sem vitnað var til hér á undan (smellið!):

Icesave - rugl í umræðunni allt til loka

Jón Valur Jensson.


Hreint borð hjá TIF og alger þjóðarsigur í Icesave-máli

Þessu fögnum við í dag. Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta hefur gert upp við Breta og Hollendinga og þeir fallið frá öllum kröfum í Icesave-málinu. Það, sem við héldum fram í Þjóðarheiðri frá upphafi, hefur nú komið á daginn með þessu uppgjöri málsins og greiðslu 20 milljarða króna, svo að enginn fær lengur um það efazt: að ríkissjóður hafði ENGA greiðsluskyldu vegna Icesave-reikninga einkabankans Landsbankans, einungis til þess settur tryggingasjóður, TIF, eftir því sem í hann hafði safnazt. Og það, sem safnazt hefur í hann síðan 2008, fer ekki til að greiða þetta til Bretlands og Hollands, einungis það sem komið var í hann fyrir bankakreppuna.

Síðasta áfanga þessa eftirminnilega sigurs Lýðveldisins Íslands er náð. Orðstír og heiður lands og þjóðar er auglýstur sem óvefengjanlegur í þessu máli, þar sem við mættum harðri andstöðu, ekki aðeins ríkjanna tveggja, heldur einnig Evrópusambandsins, sem stóð algerlega og margítrekað með ýmsum hætti með brezku og hollenzku kröfunum í málinu. Ennfremur mættum við andstöðu handbenda ESB í Samfylkingunni, sem síðan togaði í Tvíbjörn (Steingrím J.), sem því næst togaði í alla sína Þríbirni sem höfðu ekki hugrekki eða siðferðisþrek til að standa gegn ofríkinu.

Ekki nóg með það, heldur brást stjórnmálastéttin nær öll á síðasta stigi baráttunnar, með því að 75% þingmanna kusu með Buchheit-samningnum, sem þjóðin þó hafnaði svo farsællega í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni, þrátt fyrir alla álitsgjafana sem Rúvarar og 365-arar tefldu fram, úr háskólunum og úr atvinnulífinu (m.a.s. forseta ASÍ). Hneisa þeirra hverfur ekki í bráð.

Þeim mun meiri þakkarskuld eigum við að gjalda mönnum eins og herra Ólafi Ragnari Grímssyni (öllum öðrum fremur) og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og þeim Framsóknarmönnum öllum, sem greiddu atkvæði gegn Buchheit-samningnum, en án þeirrar framgöngu þeirra hefði forseti landsins naumast getað vogað sér að hafna því að staðfesta lagafrumvarpið, gegn allsherjarsamþykkt þingsins.

Við þökkum líka InDefence-hópnum og Samstöðu þjóðar gegn Icesave sem hvor um sig stóðu að undirskriftasöfnunum þeim, sem liðsinntu forsetanum svo vel til réttrar ákvörðunar.

Síðast, en ekki sízt vil ég þakka félögum mínum í Þjóðarheiðri, samtökum gegn Icesave, fyrir þeirra þátt í þeirri vitundarvakningu og aleflingu fjöldans, sem varð í fyllingu tímans eins og kraftmikið fljót sem ryður úr vegi öllum hindrunum.

Og við þökkum nú fyrir þennan heilladag í baráttusögu þjóðar!

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Fullnaðarsigur í Icesave-málinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vildu Bjarni Benediktsson og Árni Páll Buchheit-samninginn? Já, það vildu þeir!

Þeir kusu hann báðir! Ekki aðeins tókst þeim næstum að koma í veg fyrir sýknudóminn 28. jan. 2013, heldur vilja þeir nú afnema 26. gr. stjórnarskrárinnar, en í krafti hennar felldi þjóðin lög sem 70% þingmanna höfðu staðið að!

Hefði forseti Íslands ekki skotið málinu undir dóm þjóðarinnar, á grunni málskotsákvæðis 26. greinarinnar, hefði EFTA-dómstóllinn aldrei fengið Icesave-málið til úrskurðar og aldrei fríað okkur af um 65 milljarða króna vaxtagreiðslum í erlendum gjaldeyri ... og það sem meira er: aldrei hreinsað okkur af smáninni sem hins meinta "seka aðila" í Icesave-málinu!

Árni Páll Árnason og Bjarni Benediktsson ættu að hafa vit á því að hrófla ekkert við málskotsákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar. Sú grein hefur svo sannarlega sýnt sitt gildi og borgað sig!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Þátttaka skipti máli í þjóðaratkvæðagreiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Jón Gnarr, sem kaus með Icesave-svikasamningi þvert gegn þjóðarhag, fær um að gegna æðsta embætti landsins?!

Þá vantar ekki afglapana sem treysta Gnarr fyrir forsetaembætti. Einn sagði hann standa með sannfæringunni. Hann var a.m.k. nógu kjánalega sannfærður um að hann ætti að kjósa með Icesave-svikasamningnum!!!

Reyndar minntu "rök" hans á "rök" Svavars Gestssonar, sem sagðist "ekki nenna þessu lengur" að halda áfram samningaviðræðum við Bretana (og gafst því upp og skrifaði upp á hrikalegar kröfurnar!). Hliðstætt hjá Gnarrinum sem lýsti því yfir að með því að segja JÁ við Icesave vildi hann „leggja mitt af mörkum til að binda enda á þennan ófrið og leiðindi.“ ---> http://www.dv.is/frettir/2011/4/9/jon-gnarr-segir-ja-vid-icesave/

Hver getur treyst svona veiklulegum málsvara fyrir þjóðarhag? 

Svo þóttist hann í viðtali í Vikulokunum á Rás 1 í gærmorgun myndu verða "líklega meiri Vigdís heldur en Ólafur Ragnar." En Gnarr kysi einfaldlega að vera eins og ESB-sinninn Þóra Arnórsdóttir í starfi forseta, langtum fremur en eins og Ólafur Ragnar. Jón Gnarr kaus GEGN vilja þjóðarinnar í Icesave-málinu og GEGN lagalegum rétti hennar, sjá tengilinn hér ofar á viðtal við hann, þar sem hann sagði 9.4. 2011: „Ég ætla að segja Já,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri á Facebook-síðu sinni í morgunsárið um afstöðu sína til Icesave-samningsins." (DV.is sama dag.) 

Setji nú allir landsins þorskhausar kvarnirnar í gang!

Jón Valur Jensson.


Vegna rangfærslna um seldar Icesave-kröfur

Ótrúlegt er hvað sumir geta verið illa að sér um eitt stærsta deilumál þessarar þjóðar, eða er bara um að ræða yfirklór þeirra sem beittu sér fyrir landráðum í Icesave-deilunni ?

 

Kröfur Bretlands og Hollands á hendur almenningi á Íslandi áttu sér engar lagalegar forsendur og það staðfesti EFTA-dómstóllinn, með hætti sem veitt var eftirtekt um allan heim.

 

Kröfur innistæðueigenda voru á Landsbankann og tryggingasjóðir í Bretlandi og Hollandi keyptu þær kröfur, eins og þeim var skylt samkvæmt lögum og reglugerðum í þessum löndum. Það að tryggingasjóðirnir selja nú þessar kröfur til óþekktra aðila og á óþekktu gengi, hefur ekkert með Icesave-kúgunina að gera.

 

Icesave-deilan snérist því ekki um þessar kröfur sem erlendir aðilar áttu og voru gerðar verðmætar með Neyðarlögunum. Sá hluti Neyðarlaganna, sem veitti þessum kröfum forgang, var settur til að létta byrðum af erlendum bönkum. Byrðum sem voru þó ekki þyngri en svo að ekki þurfti að hækka trygginga-iðgjöldin um eitt Pund eða eina Evru.

 

Til að kóróna Icesave-glæpinn, gerðu nýlenduveldin kröfu á almenning á Íslandi að vextir væru greiddir af hinum löglausu og siðlausu kröfum. Þessi vaxta-krafa væri núna orðin yfir 75 milljarðar króna og stækkar með degi hverjum.

 

http://samstadathjodar.123.is/

 

Stuðningsmenn Icesave-stjórnarinnar ættu að hafa vit á að þegja yfir ódæðisverkum hennar. Jóhanna var auðmýkt aftur og aftur í Icesave-málinu, en komst upp með að brjóta ákvæði Stjórnarskrárinnar með umsókninni um innlimun Íslands í Evrópusambandið. Margir nefna Samfylkinguna landráða-lið og ekki ætla ég að verða til að andmæla því.

 

Loftur Altice Þorsteinsson.



mbl.is Hollenska Icesave-krafan seld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það átti að greiða Íslandi málskostnað

Dómsorð EFTA-dómstólsins var þannig: "THE COURT hereby: 1. Dismisses the application. 2. Orders the EFTA Surveillance Authority to pay its own costs and the costs incurred by Iceland. 3. Orders the European Commission to bear its own costs."

En hefur nokkur heyrt það staðfest, frekar en við, að greiðsla hafi farið fram? Heimildin fyrir dómsorðinu er hér: www.eftacourt.int/uploads/tx_nvcases/16_11_Judgment_EN.pdf

Ef engin endurgreiðsla hefur enn átt sér stað til Íslands, þarf þá ekki að reka á eftir því? Eða hafa einhverjir í stjórnkerfinu hér kannski leynt okkur því, að við höfum fengið þennan kostnað endurgreiddan? Næg var hneisa málssóknaraðilanna, gætu þeir sagt -- þeirra sem báru fram "the application" fyrir EFTA-dómstólinn, og það voru ríkisstjórnir Breta og Hollendinga, "supported by the European Commission," eins og segir á 1. bls. dómsúrskurðarins, þ.e. af sjálfri framkvæmdarstjórn dýrðarríkisins, nei, afsakið ásláttarglöp JVJ, af sjálfri framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (Barroso, Füle, Rehn, Ashcroft & Co.).

En við þurfum að fá að vita þetta. Og hneisa brezku og hollenzku ríkisstjórnanna og ESB-yfirstjórnarinnar vegna þessa máls má vel auglýsast út um allar álfur.

Jón Valur Jensson og Sigurður Ragnarsson. 


EFTA-dómstóls-sýknudómurinn 28. janúar 2013

EFTA-dómstóls-úrskurðurinn viðurkenndi fullan rétt Íslendinga til að hafna Icesave-kröfum Breta og Hollendinga, kröfum sem í vægasta formi sínu (Buchheit-samningnum) væru nú búnar að kosta okkur 75 milljarða. 

Dagur B. Eggertsson, Benedikt Jóhannesson,* Bjarni Benediktsson, Jón Gnarr, Þorsteinn Vilhjálmsson* í CCP,** Margrét Kristmannsdóttir* í SVÞ,** Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,** Jón Sigurðsson, fv. fjármálaráðherra,** Ólafur Stephensen, fv. ritstjóri,** Vilhjálmur Egilsson** og prófessorarnir Þórólfur Matthíasson** og Gylfi Magnússon,** auk fjölda annarra "álitsgjafa", Rúvara og 365-ara og þingmanna Samfylkingar og "Bjartrar framtíðar" og Vinstri grænna (flestra), auk mikils meirihluta þingmanna Sjálfstæðisflokks, lögðust á eitt um að hvetja Íslendinga til að samþykkja Buchheit-samninginn, en forsetinn og þjóðin hafði vit fyrir þeim!

Úrskurðurinn er allur hér: www.eftacourt.int/uploads/tx_nvcases/16_11_Judgment_EN.pdf.

Um þetta mál verður fjallað hér síðar í kvöld. Það munu menn sjá, að full ástæða er til.

* Sjá: Áfram-hópurinn og hans hættulegi blekkingaráróður gekk beint gegn ótvíræðum rétti Íslands

** Sjá: Þau studdu hinn ömurlega Icesave-II-samning og líka Icesave-III-samninginn!

Jón Valur Jensson.


Nýtt að frétta af ógáfulegri, stórhættulegri ESB-tilskipun: ríkisábyrgð á allt að 100.000 evra bankainnistæðum!

Það væri ljót hefnd ESB-liðsins ef því tækist að koma þessari nýju tilskipun á hér, eftir að hafa tapað fyrir okkur og réttlætinu í Icesave-deilunni. Fráleitt er að leggja þessa ábyrgð (nær fimmfalt meiri en átti að hvíla á tryggingasjóðunum) á ríkið og þar með á herðar landsmanna. Ný kreppa gæti riðið yfir og hefði þá enn hrikalegri afleiðingar, ef þessi ESB-regla væri orðin regla hér!

  • Til­skip­un Evr­ópu­sam­bands­ins um að hækka beri inni­stæðutrygg­ing­ar úr rúm­lega 20.000 evr­um í 100.000 evr­ur, sem samþykkt var ný­lega, var rædd á fundi ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar Alþing­is í gær, en Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks, óskaði þess að málið yrði rætt þar, í ljósi þess að til stend­ur að þessi til­skip­un verði tek­in upp í EES-samn­ing­inn. Var samþykkt að málið yrði tekið upp á ný í byrj­un ág­úst þegar sér­fræðing­ar fjár­málaráðuneyt­is gætu farið yfir þessi mál með nefnd­inni, en þeir eru nú í sum­ar­leyfi. (Mbl.is)

Ennfremur segir í þessu viðtali Stefáns Gunnars Sveinssonar við GÞÞ:

  • Guðlaug­ur Þór seg­ir að væri þessi til­skip­un Evr­ópu­sam­bands­ins leidd í lög hér á landi myndi það þýða að eng­in leið væri fyr­ir ís­lenska ríkið að standa við skuld­bind­ing­ar trygg­ing­ar­sjóðs, færi svo að einn bank­inn kæm­ist í þrot. 
  • „Ég fæ ekki séð hvernig við gæt­um lifað með þessu,“ seg­ir Guðlaug­ur Þór. Þar kæmi til að erfiðara yrði að fara hina svo­nefndu „ís­lensku leið“, og láta trygg­ing­ar­sjóð fá for­gangs­kröf­ur, þar sem þeir sem fjár­magna banka væru nú var­ari um sig og hefðu sér­var­in skulda­bréf með veðum, svo að þeir myndu ekki lenda í svipuðum spor­um og kröfu­haf­ar gerðu eft­ir hrunið 2008. Hitt atriðið sem stæði í veg­in­um væri það að í til­skip­un­inni væri nú tryggt að rík­is­ábyrgð yrði á inni­stæðunum, þannig að ríkið yrði að tryggja fjár­mögn­un trygg­ing­ar­sjóðsins.

Engin ríkisábyrgð var á Icesave-reikningum Landsbankans, skv. eldri EES-tilskipuninni (eins og sýndi sig í EFTA-dómsúrskurðinum í janúar á liðnu ári), en nú hyggst ESB koma á beinni ríkisábyrgð á öllu saman, jafnt þótt sjálf tryggingarfjárhæðin sé hækkuð úr 20.887 evrum upp í 100.000 evrur!

Nú hljóta loks að renna tvær grímur á einhverja, hvort EES-samningurinn sé jafn-ágætur og sumir vilja vera láta. Og var það reyndar ekki hann sem bauð upp á alla útrás okkar meintu 21. aldar "víkinga" og þar með bankahrunið hér?

Ekki nægir ESB þetta, heldur er biðtími greiðslna á tryggingunni minnkaður niður í fáeina daga! Alþingismönnum ber skylda til að hafna slíkum reglum, það hlýtur að vera öllum ljóst sem fylgdust með Icesave-málinu og stóðu þá sem nú með þjóðarhagsmunum okkar Íslendinga.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ný tilskipun rædd í byrjun ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband