Er Evrópusambandið að reyna að múta Íslendingum?

Við vitum að ESB stóð að baki Bretum og Hollendingum á ýmsum stigum Icesave-lygaskuldarmálsins, sbr. skrif hér á vefsetrinu. Á sama tíma og Árni Páll tygjar sig til "samninga" um Icesave á vit þeirra (í hverra umboði?!) berst fregn af 4,6 milljarða styrkjum ESB til Íslands árin 2011–2013!

Já, 4.600 milljónir, hvorki meira né minna, eða svo er okkur sagt. Þetta er tuttuguföld sú upphæð, sem ESB dælir í gegnum Athygli hf. (sbr. umfjöllun undirritaðs HÉR) til að auglýsa og "kynna" þetta stórveldasamband sem nær yfir 42,5% Evrópu.

Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave hefur ekkert á stefnuskrá sinni um andstöðu við Evrópusambandið, en það væri fróðlegt að sjá viðhorf félagsmanna til þeirrar spurningar, hvort ofangreind mál séu eitthvað sem við eigum líka að láta okkur varða "í ræðu og riti" og í baráttu okkar fyrir réttlæti Íslandi til handa.

Endilega ræðum þetta hér á síðunni, sem verður opin að vanda í tvær vikur. Á aðalfundi félagsins, sem verður boðað til innan skamms, verður þetta eflaust meðal umræðumála þar.

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Ísland fær 28 milljónir evra í styrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og við skulum ekki velkjast í vafa um það hvert mestur hluti þessara fjármuna rennur.

En líklega má ekki nefna svona lagað mútur.

Mennirnir eru bara svo góðir við okkur.

Árni Gunnarsson, 1.9.2011 kl. 17:07

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka innleggin. Fáum endilega fleiri viðhorf um þetta.

Vitaskuld verður stofnskrám félagsins ekki breytt nema á aðalfundi, ef einhver vilji er þá til slíks. Sjálfur hef ég ekki lagt það til hingað til.

Jón Valur Jensson, 1.9.2011 kl. 18:24

3 Smámynd: Elle_

Stofnskrám félaga verður ekki vikið.  Þið getið stofnað nýtt félag sem viljið. 

Elle_, 1.9.2011 kl. 19:06

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hvort meinarðu: vikið til hliðar eða frá þeim vikið? -- Það stendur vitaskuld ekki til að víkja stofnskrám okkar til hliðar, og frá þeim verður heldur ekki vikið nema með samþykkt aðalfundar. Annars eru engar tillögur um þetta neins staðar á leiðinni, það ég bezt veit.

Jón Valur Jensson, 1.9.2011 kl. 22:20

5 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Jón Valur? Nema með samþykktum aðalfundar? Stendur þá til að bera þær upp? Gætu þeir sem mæta á aðalfund allt eins átt von á því á fundinum? Ég bara spyr því mér finnst þetta svar þitt pínu loðið.

Guðni Karl Harðarson, 1.9.2011 kl. 22:29

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, það er einmitt ekkert loðið. Ég veit ekki til slíkra tillagna. Hins vegar hefur aðalfundur æðsta vald í málefnum félaga. Sjálfur hef ég á stundum þurft að mæla gegn því, að á félagsins vettvangi sé tekin of eindregin afstaða almennt til Evrópusambandsins, af því að Þjóðarheiður á að vera öllum opinn, þeim sem eru á móti Icesave-lygaskuldarrukkuninni.

Jón Valur Jensson, 1.9.2011 kl. 23:17

7 Smámynd: Elle_

Hví er það þá orðið opinbert bara svona út í bláinn að það verði eflaust meðal mála ef enginn ætlaði það?  Málið ætti ekki neitt að vera rætt gegn stofnskrá.  Og ekki opinberlega.  Og sammála Guðna.

Elle_, 1.9.2011 kl. 23:20

8 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Svo er ég á þeirri skoðun að þessi færsla hefði frekar átt heima á þínu bloggi.

Hinsvegar væri ég alveg tilbúinn að vera með í nýju félagi sem tengir saman Heimssýn og almenning og hefði samvinnu þar á milli. Það þyrfti að ræða á öðrum grundvelli.

Guðni Karl Harðarson, 1.9.2011 kl. 23:26

9 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég meinti þá auðvitað það er alveg frjálst að ræða þetta á öðrum grundvelli og þá með því að Þjóðarheiður málsgreininni (hér í færslunni) burt tekinni.

Guðni Karl Harðarson, 1.9.2011 kl. 23:49

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Sæl verið þið, vinsamlega sendið mér fundarboð í gegnum stjórnborð. Tölvupóstinn hef ég ekki notað í 4 ár,man netfangið ekki.

Helga Kristjánsdóttir, 2.9.2011 kl. 01:01

11 identicon

Komið þið sæl; félagar í Þjóðarheiðri, jafnan !

Er forsvaranlegt; að Jón Valur Jensson, fyrrum samherji okkar - en nýgenginn klíku Jóhönnu Sigurðardóttur á hönd, sökum fylgisspektar sinnar, við Ögmund Jónasson, haldi áfram, að stýra lyklaborði Þjóðarheiðurs, tíðinda ?

Með beztu kveðjum, sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.9.2011 kl. 13:52

12 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Hvaða bull er í þér Óskar Helgi? Ég veit ekki til að hann Jón Valur sé neitt genginn á hönd klíku hennar Jóhönnu. Ég er sannfærður að hann sé það alls ekki.

Ég er líka alveg trúr á því að hann geti svarað þér ef honum finnst gefast tilefni til þess. 

Með bestum kveðjum,

Guðni Karl

Guðni Karl Harðarson, 2.9.2011 kl. 14:22

13 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Guðni Karl !

Hvenær; hefi ég sakað þig um, að fara með bull ?

Sannleikanum; verður oft, hver sárreiðastur.

Jú; jú, Jón Valur kemur fram, skeiðandi völlinn, og krefur mig, um : Heimildir - sannanir - paragröff, og alls lags göglerí, annað, ágæti drengur, vafalaust.

Nokkuð; sem ég nenni ekki að uppfylla, honum til þægðar - enda; eru allar heimildir, sem máli skipta, hár á Mbl. vef - Gogglara leitarvél, sem víðar, hafi fólk nennu yfirleitt, að elta ólar, við slíkt.  

Þú ættir að kynna þér, hversu Jón Valur, hefir talað niður til mín, á sínum eigin vef, sem annarrs staðar, áður en þú tekur, að skenza mig frekar, Guðni Karl.

Stundum er sagt; um tilteknar persónur, að þær séu ekki allar, þar sem þær eru séðar, Guðni minn.

Það eitt; að samsinna loddarnum og gerpinu; Ögmundi Jóanssyni, segir okkur allt það, sem segja þarf, um frumhlaup Jóns Vals.

Ætli hann sé búinn að gleyma, þjónkun Ögmundar : við Icesave - ESB, og önnur skítug mál, Guðni Karl ?

Hvað; sinnaskiptum JVJ áhrærir, er bezt, að þú innir hann sjálfan eftir, ágæti drengur.

Með; hinum sömu kveðjum, samt sem áður /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.9.2011 kl. 14:47

14 identicon

Rétt; að fram komi, að JVJ gekk í björg, með Ögmundi, vegna Grímsstaða mála, á Fjöllum, norður, gott fólk.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.9.2011 kl. 14:49

15 identicon

hér; og Jónassyni, átti að standa þar. Afsakið; ritvillur ýmsar - að nokkru.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.9.2011 kl. 15:29

16 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég kem af fjöllum,greinar JVJ. eru nokkrar ansi langar,hef því ekki haft augnstyrk til að lesa þær allar,með vissu um að hann fari með rétt mál að minnsta kosti fullyrðingum sínum. Hafni Ögmundur kaupum Kínverjans, ber að fagna því,hann þarf ekki að eiga landið,til að fá að athafna sig. Ætla að skoða síðustu færslur Jóns.

Helga Kristjánsdóttir, 2.9.2011 kl. 23:02

17 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já stundum fær maður á baukinn og ákveður um stundarsakir að gefa viðkomandi frí. Kappið er stundum að bera okkur ofurliði og þá verður okkur mikið niðri fyrir.Fannst algjör óþarfi hjá Jóni Vali, að svara nafna mínum á þennan hátt. Þannig ætti það ekki að vera þótt andstæðingar skoðana skiptist á glósum. En einhverntíma fékk ég áminningu frá ÓHH,eftir það lét ég friðsamlega á svæðinu. Ég tek mig ekki hátíðlega veit af takmörkum mínum,en finnst gott að vera í sambandi. Þess vegna er ég hvorki sáttasemjari,né friðarspillir,M.b.Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 2.9.2011 kl. 23:41

18 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Satt segir þú Helga mín að kappið beri okkur ofurliði. Mér finnst þessi umræða þó hvergi eiga hér rétt á sér. Kemur ekkert Þjóðarheiður við. Og er ég satt best að segja fúll út í Óskar Helga að koma með þessar athugasemdir hér inn.

En mér finnst að Jón Valur sem umsjónarmaður þessarar bloggsíðu mætti taka bara alveg burt færsluna og loka síðunni um tíma. Amk. þangað til að fréttir koma um Icesave í haust. En það á víst að fara að ræða um lok samningsins fljótlega eftir að alþingi byrjar störf.

Guðni Karl Harðarson, 3.9.2011 kl. 12:23

19 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég á við það að Jón Valur og Óskar Helgi geti tekið ósætti sitt á annan stað.

Guðni Karl Harðarson, 3.9.2011 kl. 12:41

20 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ágætu félagar. Þjóðarheiður var upphaflega stofnað um eitt málefni; "Nei við Icesave" - hafi ég ekki misskilið eitthvað?

Sjálf er ég einnig félagi í Heimssýn vegna annars málefnis; andstöðu við ESB aðild.

Þar sem mér þykir ekki sjálfgefið að allir félagar í Þjóðarheiðri séu andstæðir ESB aðild, sé ég enga ástæðu til þess að breyta stefnuskrá Þjóðarheiðurs vegna ESB.

En það er ekki útilokað að Þjóðarheiður geti seinna þurft að fást við sambærilegt mál og Icesave...

Kolbrún Hilmars, 3.9.2011 kl. 13:16

21 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Hárrétt hjá þér Kolbrún það er ekki sjálfgefið og er ég líka meðlimur í "Heimssýn" en væri til þó í að ganga í sérstakan (og setja í gang) aðgerðarhóp sem tengir saman almenning og Heimssýn og aðstoðar við upplýsingar innanlands sem og erlendis til.

Guðni Karl Harðarson, 3.9.2011 kl. 14:34

22 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Guðni, það er hlutverk okkar félaga í Heimssýn að setja í gang aðgerðarhóp til tengingar ef þörf krefur. Engin ástæða til þess að blanda öðrum samtökum í málið - nema þá að hvetja viðkomandi til þess að styðja Heimssýn :)

En nú hefur Heimssýn fengið ESB kynningarstyrk og getur því líklega beitt sér betur; einmitt í þeim málum sem þú tiltekur.

Kolbrún Hilmars, 3.9.2011 kl. 14:46

23 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Guðni Karl !

Um leið; og ég vil þakka nöfnu minni Kristjánsdóttur - svo og Kolbrúnu Hilmars, fyrir þeirra ágætu innslög, vil ég taka fram - og árétta, að þú skyldir kynna þér betur skrif Jóns Vals Jenssonar, gagnvart skoðunum annarra, sem ekki falla að hans eigin; jafnt, í veraldlegum málum, sem og í trúar kenninga umræðu, ýmis konar.

Þá; er JVJ alkunnur fyrir, ritskoðanir sínar, viðlíka þeim Andrési Péturssyni og Evrópusamtökum hans, og hans fólks.

Segir það ekki nokkuð; um Jón Val, Guðni Karl ? 

Augljóslega; hefir þú lítt, eða ekki, gert það svo mjög, Guðni minn, því ég þykist vita, að meinbægni þín, í minn garð rénaði nokkuð, ef þú læsir þér betur til, um AL vizku Jóns Vals, á hans síðu, sem annarra, all víða.

Mátti til; að koma þessu að, áður en Allsherjar fordæming kæmi fram, á mín viðhorf, hér hjá Þjóðarheiðurs fólki.

Stend enn við það; að mér finnst ótækt, að Jón Valur skuli setja hér inn greinar, verandi orðinn dús við landeyðuna og þjóðníðinginn; Ögmund Jónasson, (á grundvelli Grímsstaða máls á Fjöllum norður, reyndar) gott fólk. 

Punktur !!!

Með kveðjum; samt sem áður /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 14:51

24 identicon

Kolbrún Hilmars; spjallvinkona góð !

Þið Heimssýnar fólk; MEGIÐ EKKI, þiggja neins konar fjármuni, úr glófa Evrópsku nýlenduveldanna, kjósið þið, að halda trúverðugleika, sem trúnaðar trausti landsmanna.

Hvet þig hér með; til að koma í veg fyrir þá ósvinnu, Kolbrún mín.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 15:09

25 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Óskar, nauðug viljug þiggjum við styrkinn. Með illu skal illt út reka, segir máltækið.

Kolbrún Hilmars, 3.9.2011 kl. 15:17

26 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Óskar ekki vil ég ala upp við þig um þetta mál enda fæ ekki séð að við eigum í neinum ágreiningi. Ég var einfaldlega að benda á það að þú og Jón Valur eigið að taka málið upp á öðrum vettfangi en hér á þessari síðu. Og að sjálfsögðu get ég kynnt mér um málið á milli ykkar ef ég vill en þá annarsstaðar en hér.

> Stend enn við það; að mér finnst ótækt, að Jón Valur skuli setja hér inn greinar, verandi orðinn dús við landeyðuna og þjóðníðinginn; Ögmund Jónasson, (á grundvelli Grímsstaða máls á Fjöllum norður, reyndar) gott fólk.

Óskar Helgi. Hvergi fæ ég séð  að þessi tiltekna grein hér fjalli um Ögmund Jónasson. 

En þú mátt alls ekki misskilja mig. Ég er ekki heldur hrifinn af því að hér inn á "barnið mitt" séu settar inn greinar sem snúast ekki um viðræðuefnið "Nei við Icesave" sem og að hér séu settar fram óskir til umræðu málefni sem koma málum ekki nema óbeint við. 

Þú fyrirgefur mér vonandi á það að ég vil ekki taka neina afstöðu á ágreiningi ykkar, þíns og Jóns. 

Er aðeins á þeirri skoðun að hér eigi bara að ræða um Icesave málefni beint. Sem og inni á samtökum um Þjóðarheiður. Um það snerist málið.

Með góðum kveðjum jafnt sem áður /

Guðni Karl Harðarson

Guðni Karl Harðarson, 3.9.2011 kl. 15:20

27 identicon

Kolbrún !

Afleit ráðstöfun; af ykkar hálfu, fornvinkona góð.

Betur; að falla með sæmd - fremur en að lifa, við vansæmd illa, Kolbrún mín.

Og; þá á ég við Heimssýn alla, ekki þig persónulega, Kolbrún mín.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 15:22

28 identicon

Guðni Karl !

Þakka þér fyrir; drengileg andsvör þín, sem einurð alla, fornvinur góður.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 15:25

29 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég þakka mörg innlegg, en hér fór þó umræðan afvega um sumt í gær. Svara ég því í öðru innleggi á eftir, er nýkominn í hús eftir lantíma-fjarveru í dag.

Ég þakka þeim sem tjáðu hér viðhorf sitt til SPURNINGAR, sem sett var fram hér í pistli mínum, t.d. þakka ég Guðna Karli hans svar um það kl. 15:20 í dag, sem og Kolbrúnu hennar skýra svar kl. 13:16 í dag. Sjálfur lýsti ég hér mínu viðhorfi til þessa kl. 23.17 í gærkvöldi í þessum orðum (og undirstrika nú meginatriðið): "Sjálfur hef ég á stundum þurft að mæla gegn því, að á félagsins vettvangi sé tekin of eindregin afstaða almennt til Evrópusambandsins, af því að Þjóðarheiður á að vera öllum opinn, þeim sem eru á móti Icesave-lygaskuldarrukkuninni."

Jón Valur Jensson, 3.9.2011 kl. 17:59

30 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og Guðni Karl, þessi síða er og verður til að ræða Icesave-málið.

Þetta er t.d. ekki nýjasta greinin, önnur sem fjallaði beint um Icesave var birt hér eldsnemma í morgun, út frá mjög athyglisverðri grein í Morgunblaðinu í dag. Sjá hér: "Mikil áhætta óháð heimtum - Áhættan af Icesave var alltaf mikil": Hefðum þurft að greiða 26 milljarða þetta ár.

Jón Valur Jensson, 3.9.2011 kl. 18:04

31 Smámynd: Elle_

Ég vil að pistlinum verði eytt eða hann falinn og innanhússmálefni samtakanna verði ekki rædd opinberlega.

Elle_, 3.9.2011 kl. 22:19

32 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mátti ekki INNA EFTIR, hver væru viðhorf félagsmanna til spurningarinnar?

Mér lízt bara vel á það, að menn tjái hér sín viðhorf til hennar.

Jón Valur Jensson, 3.9.2011 kl. 23:11

33 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég er sammála henni Elle!

Guðni Karl Harðarson, 4.9.2011 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband