21.2.2011 | 13:27
Íslandsbanki er erlendur banki með erlenda hagsmuni
Það er ófyrirleitið af Íslandsbanka að skipta sér af innlendum stjórnmálum með jafn áberandi hætti. Bankinn er að fjalla um forsendlausar kröfur nýlenduveldanna Bretlands og Hollands, á hendur Íslendskum almenningi. Eins og vonandi allir vita, er Íslandsbanki í eigu erlendra fjárfesta. Afskipti þessara erlendu fjárfesta er afþökkuð og fordæmd.
Bankinn endurómar áróður Icesave-stjórnarinnar um að einungis tvær leiðir séu fyrir hendi í Icesave-deilunni. Ekki er minnst á þriðju leiðina sem er lögsöguleiðin. Þessi leið er leið sjálfstæðs ríkis og byggir á virðingu fyrir lögsögu þess. Lögsaga merkir lög landsins og framkvæmd laganna. Öll sjálfstæð ríki halda fast í sína lögsögu og gefa hana ekki frá sér ótilneydd.
Ég bið menn að gefa því gaum, að álitsgerð Íslandsbanka dregur fram alla ókosti þess að hafna Icesave-lögunum, á mjög ósanngjarnan hátt. Hinir augljósu kostir þess að hafna Icesave-lögunum eru ekki nefndir á nafn.
Jafnframt eru allir meintir kostir þess að samþykkja lögin stórlega ýktir og rétt væri að tala um lygar. Engir fjárhagslegir kostir eru við að samþykkja Icesave-kúgunina, en persónulegir hagsmunir stjórnmála-aðalsins og hinna erlendu banka eru augljósir. Þetta er eitt aumasta áróðursplagg sem sést hefur og það undir yfirskini fagmennsku - skammist ykkar !
Auðsjáanlega vilja hinir erlendu fjárfestar að Íslendingar greiði ólögvarðar kröfur nýlenduveldanna, en væri ekki vitrænt að fjalla örlítið um hvernig bankinn ætlar að starfa í landinu, eftir að hér er orðið greiðslufall bæði ríkis og almennings ? Ég fyrir mitt leyti mun taka út úr Íslandsbanka, það litla fjármagn mitt sem bankaræningjarnir eru ekki búnir að stela.
Afar ólíkir kostir en síðast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Evrópumál, Löggæsla, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:29 | Facebook
Athugasemdir
Segjum að þegar risarnir eru búnir að brjóta niður efnahagvarnir þykkustu keppnisríkja á innri mörkuðum EU Evrósku Sameiningarinnar og breyta þeim í skuldaþræla nýlendur [duglegar og latar að mati þjóðverja], við komin með evru.
Þá mun ég geyma allt mitt sparifé í höfuðstöðum öruggust bankanna í Risa stöðuleika ríkjum.
Júlíus Björnsson, 21.2.2011 kl. 13:40
Góður Loftur, öflugur í málsvörn þjóðarinnar.
Jón Valur Jensson, 21.2.2011 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.