Þjóðaratkvæði um Icesave eða þjóðarkönnun ?

Meiri hluti Íslendinga er örugglega andvígur Icesave-klafanum sem ESB-sinnarnir ætla að leggja á almenning. Sumir ætlast til að Alþingi taki ákvörðun um að leggja málið fyrir í almennri kosningu, en auðvitað verður það ekki gert þar sem úrslitin eru augljós. Að auki eru vankantar á aðkomu Alþingis að þjóðaratkvæði.

Alþingi hefur ekki nema mjög takmarkaða stjórnarskrár-heimild til að efna til þjóðaratkvæðis. Þetta sjá menn strax ef þeir lesa Stjórnarskrána. Samkvæmt 11. grein er Alþingi heimilt að efna til þjóðaratkvæðis um að leysa forsetann frá embætti. Þetta er eina heimildin sem Alþingi hefur samkvæmt Stjórnarskránni, að efna til þjóðaratkvæðis, fyrir utan ákvæði 79. greinar hennar um "breytingu á kirkjuskipun ríkisins". Alþingi hefur hins vegar ótakmarkaða heimild til að efna til þjóðarkönnunar.

Þjóðaratkvæði leiðir til úrskurðar en þjóðarkönnun leiðir til álits. Sumir muna sjálfsagt eftir áliti Hæstaréttar um kosningarnar til Stjórnlaga-þingsins. Það var síðan Landskjörstjórn sem felldi úrskurð og afturkallaði kjörbréfin, ekki Hæstiréttur.

Ef svo ólíklega fer, að Alþingi ákveði að kosið skuli um Icesave-samninga ríkisstjórnarinnar í almennri kosningu, vera úrslitin ekki bindandi. Þetta er munurinn á áliti og úrskurði. Þótt þjóðarkönnun fari fram og 99% kjósenda greiði atkvæði gegn, getur Alþingi ákveðið að samþykkja Icesave-kröfurnar. Allt er þetta samkvæmt Stjórnarskránni. Þetta segir 48. í grein:

  • »48. grein. Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.«

Niðurstaða úr þjóðarkönnun fellur undir þetta ákvæði. Niðurstaðan er álit en ekki úrskurður. Þess vegna eru bara tveir raunhæfir kostir í Icesave-málinu. Annaðhvort verður Alþingi að hafna ábyrgðum á Icesave-samningum ríkisstjórnarinnar eða forsetinn verður að neita ábyrgðarlögum um Icesave staðfestingar, ef Alþingi hefur ekki vit og vilja að taka rétta ákvörðun.

Loftur Altice Þorsteinsson.


mbl.is Undirskriftarsöfnun gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

skrifa undir hvar

gisli (IP-tala skráð) 11.2.2011 kl. 15:41

2 identicon

Gísli, um slóð undirskrifta-söfnunarinnar verður tilkynnt þegar útlit síðunnar hefur verið endanlega ákveðið. Allur tæknilegur búnaður er tilbúinn.

Þú getur væntanlega skrifað undir í kvöld eða á morgun. Á bloggi Þjóðarheiðurs og víðar mun birtast tilkynning um málið, en það er ekki ennþá tímabært.

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 11.2.2011 kl. 16:34

3 identicon

  mjög gott að heyra ,takk

ransý (IP-tala skráð) 11.2.2011 kl. 18:39

4 identicon

Undirskriftasíðan verður hér:

http://kjósum.is/

Vinsamlega hafið biðlund á meðan við stillum strengi.

Undirskriftasíðan verður virk seint í kvöld eða á morgun.

Samstaða þjóðar gegn Icesave

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 11.2.2011 kl. 19:01

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hver var afstaða Forsetans þegar hann vísaði þessu til þjóðarinnar  síðastÖ

Hafa þær forsendur breyst? Ég man ekki eftir því að hann hafi talað um upphæðina sem ástæðu.

Júlíus Björnsson, 11.2.2011 kl. 19:35

6 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Meiri hluti Íslendinga er örugglega andvígur Icesave-klafanum sem ESB-sinnarnir ætla að leggja á almenning. Sumir ætlast til að Alþingi taki ákvörðun um að leggja málið fyrir í almennri kosningu, en auðvitað verður það ekki gert þar sem úrslitin eru augljós.

Það er nátturulega bara fáránlegt að alþingi geti komið aftur og aftur með sama málið þegar þjóðin er búin að hafna því, þar sem þjóðin er búin að hafna því þá á þetta mál að fara í þjóðaratkvæði aftur án efa, það á ekki að þurfa neitunarvaldið frá forseta til að koma því til okkar, kjósendanna sem hafa hafnað þessu.

Alþingi hefur ekki umboð þjóðarinnar til að halda áfram með þetta mál (man einhver eftir Maastricht hjá Írunum, kjósa aftur og aftur með smá breyttu orðalagi þangað til að það verður bara samþykkt)...

Halldór Björgvin Jóhannsson, 11.2.2011 kl. 19:41

7 identicon

Undirsskriftasöfnunin gegn Icesave er hafin. Þetta er texti áskorunarinnar:

»Ég skora á Alþingi að hafna frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Ég heiti jafnframt á forseta Íslands, herra Ólaf Ragnar Grímsson, að synja þeim lögum staðfestingar, verði þau samþykkt á Alþingi. Ég vil að þjóðin fái að úrskurða um þetta mál.«

http://kjósum.is/  

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 11.2.2011 kl. 22:26

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Guðmundur Ásgeirsson, 12.2.2011 kl. 06:08

9 identicon

Langar að spyrja ef einhver veit hvaða aldurstakmark er .Er það 18 ár eins og kosningaraldurinn?

josef asmundsson (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 19:06

10 identicon

Því miður er það svo Jósef, að einungis þeir sem eru fæddir 1993 eða fyrr geta tekið þátt í áskoruninni. Þú verður að bæta það upp með að fá alla ættingja þína og vini til að skrifa undir.

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband