Færsluflokkur: Fjármál
10.4.2011 | 04:37
NEI-atkvæði 59% af 136.7898 töldum atkvæðum, jáin 41% (Rúv kl. 4.00)
Hjartanlega til hamingju, íslenzka þjóð, með sigurinn yfir ólögmætri ágengni erlendra ríkisstjórna sem með blekkingum og hótunum reyndu að þvinga okkur til smánarsamninga sem hefðu bundið klafa á herðar barna okkar hálfa ævi þeirra.
Til hamingju með réttlætiskennd ykkar, menn og konur um allt land, en umfram allt úti á landsbyggðinni. Hjartans þakkir frá okkur í Þjóðarheiðri samtökum gegn Icesave, til forseta Íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, til einarðra þingmanna, þótt fleiri hefðu mátt vera, til InDefence-hópsins vegna sigurs hans í málinu á mikilvægu fyrra stigi þess, fyrir rúmu ári, og til samherja okkar í Samstöðu þjóðar gegn Icesave (Kjósum.is) og í AdvIce-hópnum. Innilegar þakkir, Reimar Pétursson hrl. og margir fleiri lögfræðingar og hagfræðingar! Einlægar þakkir til tveggja fjölmiðla: Morgunblaðsins og Útvarps Sögu. Þeim heiður sem heiður ber.
JVJ.
![]() |
Yfir 58% hafna Icesave-lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 04:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2011 | 15:37
Mest lesna grein á Vísir.is í gær: Við skuldum Bretum ekki pence! – „talnatrúðurinn“ Tryggvi Þór Herbertsson tekinn á beinið
Í þorskastríðunum barðist íslenska þjóðin af mikilli þrautseigju gegn Bretum til verndar ofveiddum fiskimiðum landsins, sem voru að ganga til þurrðar og lífsafkoma þjóðarinnar í húfi.
Þó svo að alþjóðasamfélagið hafi verið Íslandi mótdrægt í byrjun í öll þrjú skiptin þá vakti frammistaða smáríkisins aðdáun umheimsins þegar niðurlægjandi ósigur Breta var staðreynd.
Það sama mun verða uppá teningnum ef við stöndum fast á rétti okkar nú og látum ekki þröngva uppá okkur tilefnislausum og ólögvörðum kröfum að andvirði margra ára útflutningstekna þjóðarinnar af fiskimiðunum.
Við höfum verið að ná vopnum okkar og vinna áróðursstríðið á erlendum vettvangi eins og þá. Skoðanakannanir sýna að samstöðumáttur þjóðarinnar gegn valdníðslunni fer vaxandi. Margur reynir þó að tala kjarkinn úr þjóðinni í von um að fölsk sektarkennd og hræðsla taki völdin í kjörklefanum.
Allir vita að breskum og hollenskum innistæðueigendum hefur verið bættur skaðinn fyrir löngu. Því vakti það hneykslun að fréttakona útvarps hér á dögunum, lét þess getið að með samþykki Icesave III, sæju líknarfélög í Bretlandi loks fram á að fá innistæður sínar greiddar til baka.
JÁ-kórinn hefur nú áttað sig á því að landinn er orðinn of upplýstur um Icesave til að slagorðin lagaleg skylda og siðferðileg skylda virki sem skyldi. Hann hefur því m.a. gripið til þess ráðs að fá fyrrum efnahagsráðgjafa hrunstjórnarinnar, til að leika trúð fyrir framan alþjóð í þágu málstaðarins, líklega með frækilegan árangur núverandi borgarstjóra í síðustu kosningum í huga.
Ég var þeirrar skemmtunar aðnjótandi að heyra hnitmiðaða en stutta jómfrúarræðu þessa JÁ-trúðs í Lögbergi á dögunum sem hljóðaði svo:
Ég er það praktískur, það pragmatískur, að ég vill [sic] kyngja ælunni og halda áfram, kyngja ælunni og halda áfram... vegna þess að ég trúi því að með því að gera það að þá getum við búið okkur meiri velferð hérna á Íslandi, (heldur) en ef við stöndum stolt, ef við stöndum stolt eins og Bjartur í Sumarhúsum. Það er það sem ég trúi.
Þetta var mjög áhrifaríkt og mér er nær að halda að Laxness hafi snúið sér við í gröfinni þegar þessi orð féllu.
Síðast heyrði ég trúðinn búktala í gegnum ritstjóra Fréttablaðsins í leiðara, í leik með stórar tölur ef matsfyrirtækin myndu lækka lánshæfiseinkunn ríkisins niður í ruslflokk. Þessi fyrrum bankastjóri banka sem hann keyrði í þrot, er vissulega alls ekki einn um að hafa afrekað slíkt í kreppunni. En af því að svona gjörningur getur tæplega talist meðmæli fyrir atvinnuspámann í bransanum, þó hann sé bæði gáfaður og oft skemmtilegur, þá finnst manni hann vera að grínast þegar hann tekur upp kristalskúluna þessa dagana.
Þessi fyrrum efnahagsráðgjafi á bak við sirkusgrímuna veit náttúrlega að reynslan er sagna best. Það vissi forseti lýðveldisins líka þegar hann minnti svo rækilega á það í síðustu ræðu sinni til þjóðarinnar að hrakspárnar í kringum Icesave I og II hefðu alls ekki ræst, ekki ein einasta!
Man þjóðin eftir því þegar Gylfi Magnússon var að hóta Kúbu norðursins og aðrir ráðherrar í svipuðum dúr?
Nei, lánshæfiseinkunn ríkisins lækkaði ekki heldur þvert á móti hækkaði eftir að Icesve II var kolfellt og það þótt matsfyrirtæki hafi verið með hótanir um annað, eins og nú vegna þrýstings frá Bretum og jafnvel óbeint frá ríkisstjórn Íslands.
Burt með þessar kristalskúlur, staðreyndirnar tala! Nei við Icesave III mun vitaskuld hafa áhrif til hækkunar lánshæfiseinkunnar en ekki öfugt, enda afar langsótt að ætla að lánshæfiseinkunn lækki við það að ríkisábyrgð uppá um 700 milljarða ólögvarða kröfu verði hafnað á laugardaginn!
Nei mun vekja aðdáun meirihluta erlendra þjóða.
Ég hef búið og starfað í Þýskalandi fleiri ár, síðast nokkra mánuði í fyrra. Ég fullyrði að NEI mun vekja mikla aðdáun Þjóðverja nema kannski sumra býrókratanna.
Landsbankinn fékk ekki starfsleyfi í Bretlandi og Hollandi fyrr en hann hafði keypt rándýrar innistæðutrygging þar í landi. Íslendingar skulda Bretum ekkert!
Við brauðfæddum þá með fiskmeti í heila heimsstyrjöld sem tók sinn toll á hafinu milli Íslands og Bretlands. Þeir voru í stríði ekki við, samt misstu Íslendingar hlutfallslega nær jafn marga menn og þeir.
Við fall bandaríska risabankans Lehman Brothers, um miðjan sept. 2008, sem setti heimskreppuna í 5. gírinn, hefur það varla hvarflað að bresku ríkisstjórnin að dirfast að beita hryðjuverkalögum á útibú hans í Bretlandi þrátt fyrir gífurlegt útstreymi breskra punda úr landi. Nei, málið var að bankinn var í eigu stóra bróður!
Gordon Brown ákvað hins vegar nokkru síðar að sýna heimsbyggðinni, en þó ekki síst kjósendum sínum, mátt sinn og megin með því að beita hryðjuverkalögum gegn Íslandi, minnsta bróðurnum í NATO, sem ollu okkur gífurlegum skaða.
Þetta voru þakkirnar fyrir það að með íslensku neyðarlögunum færðust Icesave-innistæðurnar úr almennum kröfum í forgangskröfur á silfurfati, en ella stæðu Bretar frammi fyrir því að fá nánast ekkert úr þrotabúinu upp í tapaðar innistæðurnar!
Þökkum fyrir samskiptin með því að segja NEI.
Daníel Sigurðsson véltæknifræðingur, félagi í Þjóðarheiðri samtökum gegn Icesave.
222 Facebókarmenn hafa nú skrifað "líkar þetta" við greinina (Við skuldum Bretum ekki pence!) á Vísir.is.
![]() |
Hóflega bjartsýn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2011 | 13:15
Þora vinstri menningarmenn að lesa ádrepu Einars Más Guðmundssonar í Sunnudagsmogganum í dag?
Hann fylgir laugardagsblaðinu sem er stútfullt af greinum um Icesave. Nú verða vinstri menn að þora að gera undantekningu og kaupa Moggann, það borgar sig! Þar er t.d. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur með grein, Borga friðarsinnar Icesave refjalaust? og a.m.k. tveir aðrir í sama flokki, Jón Fanndal Þórðarson (Fé án hirðis) og Ámundi Loftsson, sömuleiðis. Sjá hér lista um stærri greinarnar:
Neyðarkallið

Eftir Ámunda Loftsson: "Að samþykkja Icesave-málið er ekki einungis röng pólitík, það er stórfellt hættuspil." Meira
Gríðarlegar fjárhæðir falla á ríkissjóð verði neyðarlögunum hnekkt

Eftir Friðrik Hansen Guðmundsson: "Þess vegna má ekki veita þessa ríkisábyrgð. Þess vegna má ekki samþykkja Icesave." Meira
Ólögmætir vextir á Icesave-kröfum og allar eignir ríkisins undir?

Eftir Jón Val Jensson: "Bretar brjóta gegn reglum EES um mismunun vextirnir þrefalt of háir" Meira
- Jú, ekki ber á öðru, þetta er víst undirritaður! En þótt ég segi sjálfur frá, er þarna að finna uppljóstrun um tvennt, sem hefur sama sem ekkert verið í umræðunni, enda eru ekki nema tveir dagar síðan annað stóra atriðið þar kom í dagsljósið, þ.e. að frá undantekningunni á ákvæði Icesave-III-samningsins um friðhelgi eigna ríkisins er gengið með ALLS ÓTRYGGUM HÆTTI, án undirskrifta erlendu samninganefndarmannanna, í viðaukakroti eftir á inn á samninginn! Þeir, sem eru ekki með netaðgang að greinasafni Morgunblaðsins, geta séð svolitla frásögn af þessu greinarefni mínu á Moggabloggi mínu í dag:
- Bretar brjóta gegn reglum EES um mismunun - vextirnir þrefalt of háir!

Eftir Þórhall Þorvaldsson: "Það blasir við hvor rökin mega sín meira. Íslendingum ber hvorki lagaleg né siðferðileg skylda til að samþykkja Icesave-kröfuna." Meira
Þjóðarhagur í húfi Nei við Icesave

Eftir Arndísi Herborgu Björnsdóttur: "Samþykki Icesave-lögleysunnar væri ávísun á endanlegt gjaldþrot kynslóða saklausra Íslendinga sem bera enga ábyrgð á starfsemi landráðamannanna." [Ég skýt því að, að þetta er alveg frábær lestur, ég hef lesið greinina alla hér er alvöru-kona sem skrifar tæpitungulaust. JVJ.] Meira
Áhættan af samþykki Icesave er öll Íslandsmegin

Eftir Birgi Ármannsson: "Það er fjarri öllum sanni að óvissu og áhættu verði eytt með því að samþykkja Icesave-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslunni." Meira
Gullna reglan

Eftir Sölva Fannar Viðarsson: "Í mínum huga er þetta er ekki spurning um að borga, því að sjálfsögðu þarf að borga eitthvað, aðeins spurning um hver á að borga, á hvaða tíma, hvaða upphæð og á hvaða kjörum." Meira
Pressari eða straujari

Eftir Reyni Valgeirsson: "Þessar vinsældir á þjóðin nú að kaupa þeim með því að samþykkja heimild til straujunar á kreditkortinu í atkvæðagreiðslunni laugardaginn 9. apríl næstkomandi." Meira
Fé án hirðis

Eftir Jón Fanndal Þórðarson: "Fólkið treysti á Steingrím en Steingrímur brást. Hann gekk í björg með Samfylkingunni." Meira
Kæru Íslendingar og þingmenn

Eftir Sigurð Ben Jóhannsson: "Kæru landsmenn, nú er komið að því að þið getið bjargað þjóðinni frá þrælahaldi. Kjósið því rétt og segið nei við þrælahaldi." Meira
Nýr sáttmáli

Eftir Önnu Maríu Pétursdóttur og Þorvald Finnbjörnsson: "Grænn hagvöxtur verður krafa framtíðarinnar. Kannski þurfa Íslendingar nýjan sáttmála til að koma sér út úr þeirri efnahagskreppu sem við erum í." Meira
RAX

Hvíld Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, notaði tækifærið og hvíldi sig þegar hann var farðaður áður en hann hélt ræðu á flokksþingi framsóknarmanna í... Meira
Borga friðarsinnar Icesave refjalaust?

Eftir Harald Ólafsson: "Þá hefur það sjónarmið komið fram að sanngjarnt sé og réttlátt að ríkissjóður bæti fyrir ævintýri Landsbanka..." Meira
Engin mismunun

Eftir Sigríði Ásthildi Andersen [lögfræðing]: "Íslenskur almenningur, skattgreiðendur og lífeyrisþegar, hefur því þegar lagt breskum og hollenskum innstæðueigendum til hundruð milljarða króna." Meira [Sigríður er gáfnaljón eins og maður hennar Glúmur, sem skrifaði marga góða pistlana í DV á árum áður. Innsk. JVJ.]
Goðsagnaverur

Eftir Tómas I. Olrich: "Það liggur í augum uppi að heiður mannsins sem sérfræðings í samningatækni liggur að veði og verður gengisfelldur, ef þjóðin hafnar samningnum." Meira
Landsvirkjun í Bretarukkun

Eftir Friðrik Daníelsson: "Lækkun á lánshæfiseinkunn Moody´s ef Íslendingar fella Icesave III yrði fyrirframkeypt rangmat eins og matið á gjaldþrota bönkunum fyrir hrun." Meira
Nei

Eftir Unni Brá Konráðsdóttur: "Frjáls og fullvalda þjóð á aldrei að óttast það að leggja sín mál í hendur dómstóla." Meira
- "Við þurfum að sætta okkur við, að til þess að geta staðið í skilum við Breta og Hollendinga á skuld sem við stofnuðum aldrei til og enginn heldur fram lengur að okkur beri lagaleg skylda til að borga þurfum við að stórhækka skatta, við þurfum að skera niður í menntamálum, heilbrigðismálum, draga úr opinberum framkvæmdum, láta gamla fólkið sjá um sig sjálft, hvort sem það er fært um það eða ekki, og fleira og fleira.
- Nafnleysingjarnir í öfugmælahópnum Áfram, sem ætti í raun ekki bara að heita Aftur á bak heldur miklu fremur Fyrir björg, hafa haft úr miklum fjármunum að spila til þess að reyna að kaupa sér atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni, án þess nokkurn tíma að gera grein fyrir hvaðan þeir fá allt þetta fjármagn. Það hefur aldrei kunnað góðri lukku að stýra að reyna að kaupa sér atkvæði og því ætla ég að leyfa mér að trúa því, þar til annað reynist sannara, að Íslendingar muni hvorki láta ógeðslega hákarla-auglýsingu í blöðum hinn 1. apríl sl. né aðra heilsíðuauglýsingu með 20 tannlausum hákörlum villa sér sýn, því eins og góður maður benti á, þá verða það ekki þessir 20 tannlausu hákarlar og fyrrverandi ráðherrar sem borga brúsann, þegar og ef við fáum Icesave í hausinn. Eða ætla ráðherrarnir fyrrverandi að leggja til að verðtryggð ofurlífeyrisréttindi þeirra verði skert, til þess að axla sinn hluta af byrðunum?!" (Tilvitnun lýkur, feitletrun jvj.)
![]() |
Fólk streymir á kjörstað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt 4.11.2015 kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2011 | 22:00
Falin dagskrá (Hidden Agenda) Breta til að gefa þeim heimild í Icesave III til að ganga að auðlindum þjóðarinnar.
Þegar Icesave gögnin eru skoðuð er ljóst að allir samningarnir gefa ríka ástæðu til að ætla að Bretar, í það minnsta, séu með falda dagskrá sem væntanlega byggist á því að geta kallað fram aðstæður þar sem Íslendingar yrðu samkvæmt samningunum sekir um greiðslufall, sem síðan settu í gang umsvifalausar heimildir Breta til að ganga að aðfararhæfum eignum Íslendinga, þ.m.t. öllum auðlindum þjóðarinnar. Til að gera þessa földu leikfléttu mögulega þurftu Bretar fyrst og fremst að ná að þvinga fram undirrituðum og skuldbindandi samningi, sem innihéldi greinar um eftirfarandi:
- Samningur sem væri samkvæmt breskum lögum og sem væri aðfararhæfur fyrir breskum dómstólum.
- Greinar í samningnum sem gera Bretum auðvelt um vik að kalla fram greiðslufall hjá Íslendingum.
- Greinar í samningnum sem gefa Bretum lagalegan rétt til að ganga að öllum eignum Íslands.
Þetta kemur mjög skýrt fram í Svavarssamningum þar sem riftunar- og aðfararkaflarnir í þeim samningum voru með slíkum eindæmum að undrun sætti öllum sem lásu og skildu hvað þeir voru að lesa.
Íslensku sendinefndinni, undir forsæti Lee Buchheit, tókst að milda þessar klásúlur eitthvað lítillega en það er langt í frá að verkfærin til að framkvæma þessa huldu dagskrá, séu ekki enn fyrir hendi í Icesave III .
Lárus Jónsson. (Sjá ennfremur Morgunblaðið í gær, 7. apríl, á síðu 16.)
![]() |
72% segja nei við Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.4.2011 | 14:05
SA- og ASÍ-menn hætti að misbeita samtökum sínum!
Vilmundur Jósefsson hefði átt að segja af sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins í stað þess að leita endurkjörs. Þir Vilhjálmur Egilsson hafa misnitað SA í þágu ólögvarinna Icesave-krafna erlendra ríkissjóða, brutu jafnvel eigin reglur um framlög til "Áfram"-hópsins voru búnir að gefa það út áður, að hámarkið væri um 250.000 kr. til lögaðila, en sturtuðu einni milljón króna í óþurftarverkið, forsvarsmönnum ýmissa aðildarfyrirtækja SA til sárrar skapraunar.
Forstöðumenn SA studdi Icesave I og Icesave II, Vilhjálmir er á um 1,8 millj. kr. mánaðarlaunum og beitir sér gegn eðlilegum launahækkunum í fiskiðnaðinum, notar kvóta-"rétt" útgerðarmanna sem skrúfu á kjarasamninga og nú síðast misbeitir hann (raunar undir fölsku flaggi) áhrifum sínum á framgang eða endalyktir kjarasamninga í þágu Icesave-áhuga síns, en innantómt var það, því að Gyðlfi Arnbjörnsson upplýsti um, að enn stæði ýmislegt íoleyst í samningagerðinni og því eðlilegt að hún drægist fram yfir helgina, þótt hann hafi samt líka verið búinn að hlaupa á Icesave-lestina, áður en þetta kom upp úr honum í viðtali við Mbl. sem birtist í gær.
Gylfi hefur nú viðurkennt, að Icesave-afstaða sín sé bara persónulegt mat, ekki afstaða ASÍ sem slíks, enda bar hann aldrei sína afstöðu undir sína 120.000 umbjóðendur! Hvað veldur þessum "sinnaskiptum" hans að bakka svolítið í málinu? Jú, annaðhvort eru félagsmenn ASÍ farnir að kvarta hástöfum við leiðandi menn þar (m.a. á Ólafur Darri í hagdeild ASÍ sinn skerf af skömminni) ellegar að Gylfi sé þegar farinn að óttast ósigur jánkaranna á morgun og vilji fyrir fram lágmarka þrýsting og gagnrýni á sig þess vegna.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Vilmundur fékk 94% atkvæða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2011 | 11:08
Michael Hudson: óskiljanlegt af hverju ísl. stjórnvöld stefna efnahagslegri framtíð þjóðarinnar í voða; greiðslugeta landsins var ekki metin!
- Hudson segir að enginn maður á bandarískum fjármálamörkuðum, sem hann hefur talað við, skilji af hverju íslensk stjórnvöld eru svo áfjáð í að borga háar fjárhæðir til Breta og Hollendinga sem þau skulda ekki. Ég hreinlega fæ ekki séð að ríkisstjórnin hafi haft hagsmuni íslensks almennings í huga þegar sest var við samningaborðið með Bretum og Hollendingum.
- Engin ríkisstjórn á að skuldsetja almenning og komandi kynslóðir svo mikið að efnahagslegri framtíð þjóðarinnar sé stefnt í voða. Eina skýringin, sem mér dettur í hug, er að einhverjir háttsettir í stjórnkerfinu hafi óhreint mjöl í pokahorninu sem ef til vill kæmi upp á yfirborðið við ítarlega rannsókn á því hvert Icesave-peningarnir fóru. Það er einfaldlega ekki hægt að skýra svo þrautseiga baráttu gegn hagsmunum þjóðarinnar með vanhæfni einni saman.
- Hudson segir að illa hafi verið haldið á málum í deilunni við Breta og Hollendinga frá upphafi. Hvers vegna var ekki skipuð nefnd sérfræðinga til að meta greiðslugetu Íslands og íslenska ríkisins? Það er gott og blessað að tala um skuldir ríkja sem hlutfall af landsframleiðslu, en landsframleiðsla greiðir ekki erlendar skuldir. Afgangur á viðskiptum við útlönd greiðir niður erlendar skuldir og áður en samið er um að taka yfir hundraða milljarða króna ábyrgðir og skuldir verður að meta hver greiðslugetan er og haga samningum um endurgreiðslu í takt við hana. Þetta var ekki gert og ég hreinlega get ekki skilið af hverju.
![]() |
Skuld sem ekki er hægt að borga verður aldrei borguð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2011 | 07:10
Daníel Sigurðsson: Af hverju nei við Icesave?
Eftir að íslenskir bankar tóku að dansa með á peningamörkuðum félagsins, sem eðalkratinn Jón Baldvin gerði kleift með EES-samningnum, lauk íslenska samkvæmisdansinum sviplega þegar risabankinn Lehman Brothers féll af sviðinu og tók Landsbankann og Kaupþing með sér með aðstoð terrorkratanna Browns og Darlings sem stóðu vaktina. Linntu þeir ekki látum fyrr en íslensk orðspor höfðu verið skrúbbuð burt af sviðinu.
Skyndilega birtist svo refurinn Darling í drottningarviðtali í Kastljósi á dögunum þar sem hann leit út eins og sauðmeinlaus enskur prestur hjá Sigrúnu Davíðsdóttur, sem þreifaði á dólgnum með silkihönskum í boði RÚV. Í þessu langa hjali var ekki tekist á um kjarna málsins: Efnahagsstríð Breta gegn Íslendingum með al-Qaeda-hryðjuverkalögunum, sem hafa valdið Íslendingum gífurlegum skaða. Þetta voru þakkirnar fyrir það að með íslensku neyðarlögunum færast Icesave-innistæðurnar úr almennum kröfum í forgangskröfur á silfurfati, en ella stæðu Bretar frammi fyrir því að fá nánast ekkert úr þrotabúinu upp í tapaðar innistæðurnar!
Nei, sólin mun ekki hætta að koma upp þó svo að vér mörlandar neitum að kaupa okkur stundarfrið frá breskum alþjóðalögbrjótum.
Við hljótum að sópa öllum falsrökum fyrir borð eins og þeim að með Icesave III séu Íslendingar komnir með samning samsvarandi þeim sem bundu enda á þorskastríðin við Breta. Þessi sögutúlkun er blekking. Þetta voru uppgjafarsamningar sem gáfu þessu fyrrum stórveldi kost á að bjarga andlitinu, í niðurlægjandi ósigri fyrir Íslendingum í öll þrjú skiptin frá fjórum sjómílum upp í 200, sem fólst í því að leyfa þeim að dorga smávegis um tíma í lögsögu Íslands.
Icesave-samningurinn er með öfugum formerkjum. Hann tryggir B&H fullan sigur en ekki öfugt. Íslendingar fá sem andlitsbjörgun skárri vexti en með Hitchcock-hrollvekjunni Icesave II, en þó aðeins fram til ársins 2016. Minni hrollvekjan Icesave III felur í sér að íslenska ríkið ber fulla ábyrgð á kröfunni auk vaxta og lögsagan flyst frá Íslandi til B&H.
Ósigur Íslendinga blasir við ef Icesave III verður samþykktur. En það er ekki við samninganefnd Lees Buchheit að sakast, sem vann í umboði ríkisstjórnar sem leynt og ljóst var gengin til liðs við málstað andstæðingsins!
Þessi ólögvarði samningur dregur dám af hinum illræmda Versalasamningi sem þröngvað var upp á Þjóðverja eftir fyrri heimsstyrjöldina og kostaði nýja. Í fyrra voru Þjóðverjar að greiða Englandsbanka síðustu greiðsluna 91 ári eftir undirritun og jafngildir heildargreiðslan skipsförmum af gulli. Samt áttu Þjóðverjar síst meiri sök á stríðinu en sigurvegararnir.
Icesave-krafan slagar upp í hundruð milljarða ríkismarka kröfu Versalasamningsins miðað við höfðatölu. Því er ekki að undra að Icesave III gildi til ársins 2046!
Í þorskastríðunum hafði Ísland alþjóðasamfélagið á móti sér í byrjun í öll skiptin. En Ísland vann áróðursstríðin hægt og bítandi með stjórnmálamenn í brúnni sem hvikuðu hvergi enda með einarða þjóð að baki sér. Sigurinn er þó, að öllum ólöstuðum, fyrst og fremst að þakka lífshættulegum aðgerðum hugrakkra áhafna varðskipanna gegn bresku togurunum sem voru undir herskipavernd Breta sem reyndu að sigla niður varðskipin.
Í hildarleiknum um 50 og 200 sjómílurnar réðu hinar frægu togvíraklippur Íslendinga verulegu um úrslitin. Við þessu vopni áttu Bretar ekkert svar nema fallbyssur sem þeir gátu ekki réttlætt gagnvart umheiminum að beita, ekki frekar en Kaninn kjarnorkuvopnum í Víetnamstríðinu.
Frammistaða Íslendinga vakti aðdáun umheimsins en ekki öfugt. Það sama mun gerast nú ef við segjum nei.
Ég þekki umræðuna í Þýskalandi og Þjóðverja mjög vel, enda hef ég búið og starfað í Þýskalandi samtals meira en sjö ár, síðast fjóra mánuði í fyrra. Nei mun vekja mikla aðdáun Þjóðverja nema kannski sumra býrókratanna.
Íslendingar hafa hægt og bítandi verið að ná vopnum sínum og vinna áróðursstríðið.
Á erlendum vettvangi hefur forsetinn verið drjúgur. Hann mun varla liggja á liði sínu ef þjóðin segir nei. Nær hálf þjóðin ber mikið traust til hans nú skv. könnun en ekki nema um 17% til forsætisráðherra og er það ekki að undra.
Stóru bresku fjölmiðlarnir (F.T. og W.S.J.) standa nú með Íslendingum gegn Icesave!
Ef við reynumst mýs en ekki menn og segjum já munu peningamógúlarnir bresku ekki slaka á kverkatakinu fyrr en síðasta pundið er greitt.
Heimtur úr þrotabúinu eru óskrifað blað og gengi krónunnar þarf ekki að falla mikið til að risavaxinn höfuðstóll kröfunnar rjúki upp.
Ekki er að furða að B&H afþökkuðu eingreiðslutilboð upp á um 50 milljarða. Þeir vita sem er að eftir margfalt hærri upphæð er að slægjast.
Með nei er gjaldeyrisáhættan úr sögunni og dómstólaleið breytir engu þar um.
Með nei er allt að vinna en engu að tapa.
Höfundur er véltæknifræðingur.
Greinin birtist í Mbl. mánudag 4. þ.m. og er endurbirt hér með góðfúslegu leyfi höfundar.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 01:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skammarleg er sú afstaða og leikflétta Vinstri grænu forystunnar að leyna landsmenn kostnaði við Icesave-III-samninganefndina. Steingrímur ætlar að sitja á upplýsingunum fram yfir kosningarnar, og Björn Valur var notaður til að bregða fæti fyrir upplýsingaöflun Rúv og Morgunblaðsins.
Þetta gerist í ríkisstjórn sem hefur margbrotið af sér í sambandi við upplýsingaskyldu hefur leynt mikilvægum upplýsingum og skrökvað í skjóli þess á meðan. (Dæmi fúslega nefnd, verði þeirra óskað!)
Nú þykist Steingrímur ætla að svara Umboðsmanni Alþingis, sem skrifað hafði ráðuneytinu alvarlegt áminningarbréf, en svarið kemur eftir dúk og disk.
JVJ.
![]() |
Umboðsmanni verður svarað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 01:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.4.2011 | 08:00
Þakið á árlegar greiðslur skv. Icesave-III: jafnhátt og hlutfall alls rekstrarkostnaðar skandinavísku herjanna!
Þórunn Sveinbjarnardóttir er öldungis sammála Illuga Jökulssyni, sæl og glöð með Icesave-III-áþjánina. Illugi segir í stórmerkilegri Eyjugrein, Verðum að trappa okkur niður: "Langlíklegast er náttúrlega að við munum varla eða jafnvel alls ekki taka eftir greiðslubyrði Icesave-samninganna."
En hvernig stendur á því, að Bretar og Hollendingar virðast hugsa þetta allt öðruvísi en alfræðingurinn Illugi?
ÞEIR virðast telja sig sanngjarna með því að setja visst ÞAK á árlegar greiðslur frá okkur, og hvert er það? Jú, 1,3% af vergri landsframleiðslu* (sjá hér í Icesave-samningnum: http://www.fjarmalaraduneyti.is/media/skjal/DRIA_Isl_Bret.pdf).
En það vill svo til, að þetta er NÁKVÆMLEGA SAMA HLUTFALL og öll varnarmálaútgjöld Svía voru árið 2009, Noregs árið 2008 og Danmerkur 2007**: 1,3% af vergri landsframleiðslu (GDP)! sjá hér: http://data.worldbank.org/indicator/MS.MIL.XPND.GD.ZS?cid=GPD_42
Ætli sænskir skattborgarar (þ.m.t. rithöfundar) myndu léttilega samþykkja að BÆTA VIÐð skatta sína öðrum eins útgjöldum og öllum heildar-árskostnaði sænska hersins ... og ekki bara eitt undantekningarár, heldur ca. 37 ár?
* Athugið, að verg landsframleiðsla er annað og meira en raunveruleg landsframleiðsla.
** PS. Hér er ekki bara átt við landherina, heldur sjóher, flugher og landher samanlagða í hverju landi.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Hvetur til samþykktar Icesave-samninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 03:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)