Færsluflokkur: Löggæsla
18.11.2011 | 20:03
Formaðurinn stoltur af rangri hlið Icesave-deilunnar. VELKOMIN Í FORMANNSSTÓLINN, HANNA BIRNA!
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, útskýrði ekki, að það hefði verið rangt af forystu Sjálfstæðisflokksins að mynda Icesave-bandalag með ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur gegn íslensku þjóðinni eftir að þjóðin hafði hafnað tilraun ríkisstjórnarinnar að gera skattgreiðendur ábyrga fyrir þrotabúi Landsbankans.
Þessi afstaða forystu Sjálfstæðisflokksins var algjör svik við stjórnarandstöðuna og dró þjóðina í annað sinn í þjóðaratkvæði um málið. Á örskömmum tíma myndaðist samstaða þjóðar, sem safnaði yfir 40 þúsund undirskriftum, sem afhent voru forseta Íslands með áskorun um, að þjóðin fengi sjálf að taka ákvörðun um málið og var Icesave eins og við var að búast kolfellt í annað sinn.
Skýring Bjarna Benediktssonar þá var, að hann hefði með "ísköldu mati" komist að þeirri niðurstöðu, að rétt hefði verið að styðja "norrænu velferðarstjórnina" í þessu máli. Í reynd gerði sjálfstæðisforystan betur, hún vann með ríkisstjórninni í að móta nýja tillöguna fyrir ríkisstjórnir Breta og Hollendinga.
![]() |
Bjarni Benediktsson |
Það er með öllu óskiljanlegt, að formaður Sjálfstæðisflokksins skuli nú í setningarræðu landsfundar Sjálfstæðisflokksins tala um þessa hegðun með orðunum: "Það voru hagsmunir heildarinnar, þjóðarinnar allrar, sem drifu mig áfram í Icesave-málinu. Ég segi fullum fetum: ég er stoltur af þeim mikla árangri sem viðspyrna okkar á Alþingi skilaði." Bjarni Benediktsson segir hér beinum orðum, að hann viti betur en þjóðin og að meirihluti þjóðarinnar, sem felldi Icesave fari með rangt mál. Hinn "mikli árangur sem viðspyrnan" á Alþingi hefði skilað, ef þjóðin hefði ekki stöðvað málið í annað sinn, hefði leitt til gjaldþrots Íslands og landsmenn hefðu glatað efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Forystan fylgdi ekki Icesave-samþykkt Sjálfstæðisflokksins frá landsfundi árið áður eins og ungir Sjálfstæðismenn bentu á í frægri auglýsingu í Morgunblaðinu: Gjör rétt - þol ei órétt! Ég býð Hönnu Birnu velkomna sem næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn þarf ekki á núverandi formanni að halda, sem er í svo miklum ótakt við þjóðina og eigin meðborgara. Gústaf Skúlason. Þessi grein, sem birtist á sænsku vefsetri höfundarins, er endurbirt hér með leyfi hans. |
![]() |
Tillögur tóku breytingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2011 | 19:50
"Þegar þriðji Icesave-samningurinn kom inn á borð Bjarna [Benediktssonar] brást hann flokksmönnum sínum í einu og öllu."
Bjarni gerði ranglætið að sínum málstað er fyrirsögn greinar í Mbl. í dag eftir Hlyn Jónsson, laganema, fv. formann Heimdallar. Þar talar hann út og segir m.a.:
- Sem formaður Sjálfstæðisflokksins hefur Bjarni Benediktsson staðið sig ágætlega í baráttunni gegn vinstriöflunum. En þó að undanskildu einu máli, sem erfitt er að líta framhjá.
- Þegar þriðji Icesave-samningurinn kom inn á borð Bjarna brást hann flokksmönnum sínum í einu og öllu. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hafði áður ályktað að hafna bæri löglausum kröfum Breta og Hollendinga. Þrátt fyrir það ákvað Bjarni, að loknu ísköldu hagsmunamati, að best væri að samþykkja hinar löglausu kröfur. Þetta gerði hann þvert gegn vilja flestra samflokksmanna sinna. Eftir að Icesave-samningnum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur komið í ljós að Bjarni tók kolranga ákvörðun. Þær hörmungar sem já-menn höfðu fullyrt að myndu dynja á íslensku þjóðinni hafa ekki orðið að veruleika. Þrátt fyrir þetta hefur Bjarni ekki viðurkennt að hafa gert mistök þvert á móti hefur hann sagt að hann myndi gera allt nákvæmlega eins aftur ef til þess kæmi.
- Í Icesave-málinu sýndi Bjarni ótrúlegan dómgreindarskort. Hann fór þvert gegn vilja samflokksmanna sinna og gerði ranglætið að sínum málstað. Engin ástæða er til að ætla að slíkir hlutir geti ekki endurtekið sig með hann áfram í formannsstólnum. Bjarni fékk sitt tækifæri og klúðraði því. Ég tel því mikilvægt að við Sjálfstæðismenn veljum okkur nýjan formann á komandi landsfundi. [...]
Þetta er tíðindaverð grein og gæti haft umtalsverð áhrif á kjör formanns Sjálfstæðisflokksins á 40. landsfundi hans, sem hófst í dag.
Lítið ennfremur á grein hér frá því í hádeginu í dag: Hvenær, ef nokkurn tímann, las Jóhanna Sigurðardóttir allan Svavarssamninginn? - og um hrikalegar afleiðingar af samþykkt Icesave-samninga, þrátt fyrir endurheimtur!
JVJ.
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2011 | 16:20
Orðrétt ósannindi Steingríms J. Sigfússonar um Svavarssamninginn
Hinn 3. júní 2009 sagði Steingrímur í ræðustóli Alþingis vegna Icesave-málsins:
- Ég held að ég geti fullvissað háttvirtan þingmann um að það standi ekki til að ganga frá einhverju samkomulagi í dag eða einhverja næstu daga og áður en til þess kæmi yrði að sjálfsögðu haft samráð við utanríkismálanefnd.
Og takið eftir:
- Daginn eftir var gerður samningur og ekkert samráð haft við utanríkismálanefnd. Steingrímur hefur sýnt að engin ástæða er til að taka mark á því sem hann segir ... (úr Mbl.-leiðara í dag, leturbreyting hér).
Hefur nokkur ráðherra nokkurn tímann í allri þingsögunni skrökvað á jafn-óskammfeilinn hátt að þingi og þjóð í jafn-alvarlegu máli?
Þeir, sem eiga ólesna eftirfarandi grein hér, nýja frá í dag, ættu að vinda sér að lestri hennar: Hvenær, ef nokkurn tímann, las Jóhanna Sigurðardóttir allan Svavarssamninginn? - og um hrikalegar afleiðingar af samþykkt Icesave-samninga, þrátt fyrir endurheimtur!
Þriðji pistillinn, um allsendis óverjandi afstöðu Bjarna Benediktssonar í Icesave-málinu, birtist svo hér í kvöld kl. 19:50.
JVJ.
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2011 | 17:40
Úr öskunni í eldinn: ESB vill RÍKISTRYGGINGU á bankainnistæðum hér og nær FIMMFALDA á við tryggingu TIF áður!
Þetta kom fram í máli Lilju Mósesdóttur alþm. í ESB-þætti í Útvarpi Sögu í liðinni viku, þætti sem nú er endurtekinn. 100.000 á innistæðutryggingin að verða í stað 20.887 áður og nú á RÍKISSJÓÐI sjálfum! Þetta reyna þingmenn í viðskiptanefnd Alþingis að hindra að verði hér að veruleika með upptöku hinnar nýju ESB-tilskipunar um þetta mál. Vilja þeir fá undanþágu frá þeirri reglugerð, rétt eins og Norðmenn vilja líka, en í aðra átt. En stefna ESB er stórhættuleg.
100.000 evrur eru = 15.977.000 ísl. krónur! Upp að þeirri fjárhæð, sextán milljónum, vilja Brusselmenn, að íslenzka ríkið og allur almenningur verði ábyrgur fyrir bankainnistæðum fólks. En hvaða alþýðufólk á yfir fimm milljónir í banka?
Og hvers vegna ættu hin breiðu bök skattborgara að taka á sig drápsklyfjar til að tryggja oft illa fenginn, samanrakaðan auð hinna vellríku?
Þarna er um nær fimmfalda aukningu tryggingarinnar að ræða, hún öll sett á RÍKIÐ, þ.e. okkur, og sjá menn hér, að þarna er jafnvel úr öskunni farið í eldinn, miðað við það sem upp á borðinu var, þegar rætt var um hina alls ólögmætu leið, að ríkið skyldi ábyrgjast Icesave-reikninga Landsbankans.
Jón Valur Jensson.
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.10.2011 | 13:15
Icesave hluti ESB-viðræðna!
"Nú hefur Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefnar Alþingis, upplýst að þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagnstæða séu tengsl á milli Icesave og ESB. Icesave verði því hluti af viðræðunum við ESB." Svo er ritað í leiðara Mbl. í dag: Icesave hluti ESB-viðræðna. Menn eru hvattir til að lesa þann leiðara!
Full ástæða er til að taka undir þessi orð þar:
- Afstaða Íslendinga gæti ekki verið skýrari í Icesave-málinu. Þeir hafa tvívegis fellt það í þjóðaratkvæðagreiðslu að taka á sig skuldir einkabanka, þrátt fyrir hvatningu Árna Þórs og annarra forystumanna VG um hið gagnstæða.
- Augljóst er þess vegna að ekki er um neitt að semja í málinu af Íslands hálfu en samt er samningaviðræðunum svokölluðu haldið áfram.
JVJ.
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.9.2011 | 23:54
Fótum kippt undan falsfrétt Fréttablaðsins um málssókn ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum
Kolbeinn Óttarsson Proppé er hæfileikamikill maður, en mislagðar eru honum hendur í fréttamennskunni. Hátt er fall fréttar, sem slegið er upp á forsíðu að morgni, en hrakin hefur verið fyrir hádegið! Forseti ESA bar "frétt" "Fréttablaðsins" til baka strax í morgun! Sjá um þetta tengilinn hér neðar. Þar geta menn einnig tengt sig inn á bloggskrif Gísla Bergsveins Ívarssonar og Páls Vilhjálmssonar um málið.
JVJ.
![]() |
Engin ákvörðun hjá ESA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt 23.9.2011 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2011 | 19:29
Ólafur Ragnar: Rannsaka á hvernig ríki ESB gátu stutt kröfur Breta og Hollendinga, sem hann segir fáránlegar
Forseti Íslands sagði í Rúv-viðtali í dag að góðar endurheimtur í þrotabúi Landsbankans staðfesti að stjórnvöld hér hafi látið undan þrýstingi og beygt sig undir ofbeldi Breta og Hollendinga í Icesave-málinu. Rannsóknarefni væri fyrir ESB hvernig ríki sambandsins gátu stutt fáránlegar kröfur Breta og Hollendinga.
Orðrétt sagði hann m.a., að hann hefði alltaf haldið því fram að eignir bankans myndu duga fyrir Icesave-skuldinni, en ...
- Það var ekki gert heldur var bara látið undan þessum þrýstingi. Menn beygðu sig fyrir þessu ofbeldi af hálfu Evrópuþjóðanna og samþykktu fyrst samning sem var svo óheyrilegur að ekki aðeins hrópaði íslenska þjóðin hann af, heldur hlupu Bretar og Hollendingar frá honum strax nokkrum mánuðum eftir að ákveðið var að setja þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig að það sem er að gerast núna er bara einfaldlega sýn á það að ef haldið hefði verið á málinu af skynsemi frá upphafi þá var bara algjör óþarfi að setja íslenska þjóð og samstarf okkar við Evrópuríkin í þessa spennitreyju.
Og feitletrum líka þetta úr frétt Mbl.is af þessu viðtali:
- Ólafur Ragnar sagði að réttast hefði verið að bíða og sjá hvað kæmi út úr eignum Landsbankans, frekar en að fallast á fáránlegar kröfur Breta og Hollendinga um að íslenska þjóðin gengist í ábyrgð fyrir Icesave-skuldinni.
Lokaorð Ólafs Ragnars í viðtalinu voru þessi:
"... það, sem Financial Times og Wall Street Journal sögðu allan tímann að væri réttur málstaður Íslendinga, hefur reynzt vera þannig. Og ég held að við eigum heldur ekki að gleyma því, að Financial Times og Wall Street Journal, þessi tvö helztu viðskiptablöð heims, þeir sáu í gegnum þetta gerningaveður Breta og Hollendinga; þeir studdu málstað Íslendinga allan tímann. Og ég spyr mig sjálfan mig að því og ég hef sagt við ýmsa forystumenn á vettvangi Evrópusambandsins: Fyrst Financial Times og Wall Street Journal sáu þetta, sáu í gegnum þetta gerningaveður, hvers vegna í ósköpunum stóð þá á því, að Evrópusambandið sá ekki í gegnum þetta gerningaveður?"
Vel mælt!
![]() |
Beygðu sig undir ofbeldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.8.2011 | 23:26
Herra Ólafur Ragnar notar sviðsljós alþjóðlegrar ráðstefnu stjórnmálafræðinga í dag til að gera glæsilega grein fyrir skylduverkum sínum í Icesave-málinu
Forsetinn á stærstu ráðstefnu sem hér hefur verið haldin: Fyrir mér var það augljóst að lýðræðið yrði að hafa betur jafnvel þótt allar ríkisstjórnir Evrópu og öflugir hagsmunahópar í mínu landi stæðu með þeim sem ættu fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Svo mæltist honum í setningarræðunni á þessari alþjóðlegu ráðstefnu kollega hans í Reykjavík í dag, "um þá ákvörðun að vísa Icesave-deilunni í dóm þjóðarinnar" (Mbl.is).
- Ítrekaði forsetinn í ræðu sinni þá skoðun sína að lýðræðið og peningaöflin takist nú á. Í þeirri glímu hljóti hann að standa með lýðræðinu.
- Ólafur Ragnar vék að hinum miklu umskiptum sem hefðu orðið í viðhorfum til hlutverks ríkisvaldsins vegna fjármálakreppunnar undanfarin misseri. Benti forsetinn jafnframt á að nýir samskiptamiðlar hefðu gjörbreytt stöðu almennings gegn valdastofnunum. Netið hefði gegnt mikilvægu hlutverki í búsáhaldabyltingunni og mótmælum almennings í Aþenu og Kaíró síðustu mánuði. (S.st.)
Það er ánægjulegt að sjá, að kinnroðalaust og raunar með stolti getur Ólafur Ragnar Grímsson talað opinskátt um Icesave-málið og hlut sinn og þjóðarinnar að því að beina því á réttar brautir, fjarri því sem fjármálavald, innlent og evrópskt, vildi neyða okkur til og sefja ráðamenn okkar til að vinna með sér í. Lesið þetta líka (blálitað hér til áherzlu):
- Sjálfsprottin og með litlum fyrirvara
- Mótmæli sem áður hefði tekið vikur og mánuði að skipuleggja væru nú undirbúin með litlum fyrirvara fyrir tilstilli netsins og nýrra samskiptamiðla.
- Þessi umskipti hefðu komið í ljós þegar nokkrir Íslendingar, án tengsla við stjórnmálasamtök, söfnuðu undirskriftum fjórðungs þjóðarinnar þar sem skorað var á þjóðhöfðingjann að synja Icesave-lögunum staðfestingar.
- Þetta var vald fólksins í sinni tærustu mynd. Það skoraði aðgerðir stjórnvalda og þingsins á hólm og hvatti forsetann til að rækja skyldur sínar samkvæmt stjórnarskránni í þágu hins lýðræðislega vilja fólksins, sagði Ólafur Ragnar.
Fleira var í þessari ræðu forsetans, sem var inngangsræða stærstu ráðstefnu sem haldin hefur verið í sögu Íslands, sótt af um 3.000 manns; lítið á Mbl.is-fréttina.
Forseta Íslands skulu enn færðar þakkir hér á vef þessara samtaka, Þjóðarheiðurs.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Gekk gegn hagsmunaöflum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.8.2011 | 13:51
Eygló Harðardóttir er glöggsýn á ástand keisarans!
Það er sannarlega tímabær tillaga hjá Eygló Harðardóttur, þingmanni Framsóknarflokks, að dregið verði úr "víðtækum valdheimildum fjármálaráðherra". Margt er þar orðið að tilefni harðrar gagnrýni á ráðherrann, einkum SpKef-málið, en ICESAVE sló þó öll met, þvílíkur var atgangur þessa ráðherra í því máli misserum saman að reyna að koma klafa ólögvarinnar gerviskuldar á herðar almennings. Og þessi ráðherra situr enn! Já, heldur áfram að starfa með ólögmætum hætti, ef dæma má af vel rökstuddum greinum lögfræðings nokkurs, Árnýjar J. Guðmundsdóttur, sem fjallað hefur um SpKef-málið í Viðskiptablaðinu og Morgunblaðinu* og það með þeim hætti, að steinn virðist ekki standa yfir steini í vörnum Steingríms J. og Gunnars Andersen í Fjármálaeftirlitinu í því máli.
En við hverju mátti ekki búast af þessum ótrúlega Icesave-ráðherra?!
* Nú síðast í þessari grein í Mbl. sl. fimmtudag 11. ágúst: Starfsemi Spkef án lagaheimildar.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Vill draga úr valdheimildum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.7.2011 | 12:35
Einn maður bjargar með snarræði fullum málskotsrétti forseta frá árás stjórnlagaráðsmanna
Núverandi 26. gr. stjórnarskrár er haldið inni ÓSKERTRI í tillögum þessa "ráðs" vegna þess að einn maður barði í borðið gegn því að felldur yrði niður málskotsréttur forsetans gagnvart lögum um fjárlög og þjóðréttarsamninga við önnur ríki.
Já, vegna einarðrar mótstöðu EINS MANNS var árásinni á málskot til þjóðarinnar hrundið. Nefndur varnarmaður óbreyttrar 26. greinar mætti í þessu mikilli mótstöðu tveggja ESB-dindla, Eiríks Bergmanns Einarssonar og Vilhjálms Þorsteinssonar, auk t.d. Silju Báru, en Þorvaldur Gylfason tók hins vegar máli hans. Þessi maður heitir PÉTUR GUNNLAUGSSON, er lögfræðingur og starfar á Útvarpi Sögu.
Hefði þessi skerðing stjórnlaga-óráðsins verið samþykkt, hefði það með því komið í veg fyrir, að ný Icesave-lög þyrftu að koma til úrskurðar forseta og þjóðarinnar! Kemur ekki á óvart, ýmsir í ráðinu voru opinberir predikarar Icesave-smánarsamninganna; það á t.d. við um Vilhjálm Þorsteinsson, Illuga Jökulsson og Guðmund Gunnarsson úr Rafiðnaðarsambandinu.
Pétur hótaði að greiða atkvæði gegn stjórnarskrárdrögum stjórnlagaráðsins, ef 26. greinin yrði skert. Svo fór, að niðurfellingin á heimild forsetans til málskots til þjóðarinnar um viss mál, sú niðurfelling sem fram að því hafði verið ofan á í ráðinu, var sjálf FELLD Pétur hafði þar fullan sigur. Þetta gerðist þar í gærmorgun.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Stjórnlagaráð lýkur störfum í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)