12.5.2016 | 03:04
Egill Helgason haldinn ímyndunar- eđa ímyndarveiki um Davíđ og Guđna Th.
Guđni "er máski óreyndur í stjórnmálum en hann hefur hvergi stigiđ feilspor enn," segir Egill, en fer međ fleipur. Guđni óhreinkađi sína pólitísku áru međ ţví ađ segja JÁ viđ Buchheit-lögum um ICESAVE, ţvert gegn lagalegum rétti ţjóđarinnar og andstćtt hag hennar. Honum nćgđi ekki ađ greiđa ţannig atkvćđi í ţjóđaratkvćđagreiđslunni, heldur útbásúnađi ţetta jafnvel eftir á (hentugt til vinsćlda međal ađdáenda Jóhönnustjórnar?) en fráleitast af öllu var svo, ađ hann taldi sig geta gagnrýnt Ólaf Ragnar, jafnvel einmitt vegna Icesave!!! Var Ólafur ţó ótvírćđ brjóstvörn ţjóđarinnar í Icesave-málinu, bćđi hér á landi og í erlendum fjölmiđlum (en lítiđ sem ekkert gagn ađ utanríkisráđuneyti ESB-Össurar). Án atbeina Ólafs Ragnars stćđi Ísland enn uppi sem sakbent land í málinu og búiđ ađ punga út 80 milljörđum króna í erlendum gjaldeyri vegna einberra vaxta af Buchheit-samningnum!
Nú gćti Guđni ţá stigiđ hlemmifćti sínum fram međ enn djarfari hćtti međ ţví ađ ráđast á Davíđ Oddsson vegna hörkubeittra leiđara hans í Morgunblađinu á sínum tíma gegn Buchheit-samningnum og málstađ Jógrímustjórnar í nefndri ţjóđaratkvćđagreiđslu. Á sama tíma voru 70% alţingismanna á bandi Breta og Hollendinga í bođi Buchheits (ţar á međal mikill meirihluti ţingmanna Sjálfstćđisflokks, sem óhlýđnuđust ţar međ landsfundi sínum), ennfremur SA, SI og SVŢ og ASÍ-topphúfan Gylfi, einnig tveir ađrir Gylfar, báđir prófessorar viđutan í ţessu lagamáli (sbr. http://thjodarheidur.blog.is/blog/thjodarheidur/entry/1290081/ og http://thjodarheidur.blog.is/blog/thjodarheidur/entry/1286385/), og fjöldinn allur af vinaliđi Fréttastofu Rúv og 365, eilífum augnakörlum í viđtölum ţar, og eru sumir ţeirra enn á snćrum Evrópusambandsins.
En ţeir minna áberandi, sem á móti mćltu opinberlega og reyndust ţó vera fulltrúar 60% ţjóđarinnar, er upp var stađiđ, fengu miklu síđur ađ taka til máls í nefndum fjölmiđlum (Ţjóđarheiđri, samtökum gegn Icesave, var t.d. algerlega neitađ um viđtal í Speglinum, fréttaskýringaţćtti Rúvsins).
Já, ćtli Guđni ţori ađ ráđast á Davíđ fyrir ađ hafa stađiđ međ rétti og hagsmunum ţjóđarinnar? á sama tíma og Guđni sjálfur lyppađist niđur fyrir áróđrinum og kyssti á vöndinn, kjarklaus til ađ gera sem Jón forseti Sigurđsson: ađ trúa á rétt lög og halda sér viđ ţau. - Já, sannarlega hefđi dr. Guđna veriđ affarasćlast ađ vera minnugur hvatningar Jónasar Hallgrímssonar: "guđi ađ treysta, hlekki hrista, hlýđa réttu, góđs ađ bíđa."
En reyndar er Guđni Th. eftirlćti Samfylkingarmanna; ţar spillir ekki fyrir, ađ hann er opinn fyrir Evrópusambandinu, okkar gamla fjendabandalagi (í öllum ţessum málum: um Icesave,* makrílveiđar og Rússaviđskipti). Sjá nánar um ţađ á Fullveldisvaktinni: Guđni Th. Jóhannesson er ekki einarđur verjandi landsréttinda.
Öll efni eru ţó til ađ fylgi Guđna HRYNJI úr ţeim 70% sem ţađ er sagt í nú, sjá hér: ESB-hlynntur fylgismađur Buchheit-samnings, Guđni Th. Jóhannesson, á eftir ađ sjá ţađ svartara!
* Sbr.: ESB vann beinlínis gegn íslenzkri ţjóđ frá upphafi til enda í Icesave-atganginum - viđurkennt af áhrifamönnum hér! -- Auk ţeirra stađreynda, sem ţar eru raktar, átti svo Evrópusambandiđ beinlínis međađild ađ lögsóknarmáli Breta og Hollendinga gegn okkur fyrir EFTA-dómstólnum!
Jón Valur Jensson.
Davíđ mćttur á Facebook | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Meginflokkur: Löggćsla | Aukaflokkar: Fjármál, Stjórnmál og samfélag, Viđskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 04:15 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.