17.6.2013 | 12:41
Forsætisráðherra með hjartað á réttum stað í hagsmunamálum þjóðarinnar
ESB tók þátt í tilraunum til að þvinga Íslendinga til að taka á sig gríðarlegar efnahagslegar byrðar í andstöðu við lög og braut svo blað í sögu sinni til að taka þátt í málaferlum gegn Íslandi. Nú þarf ESB að sýna að það sé samband sem byggi á lögum og jafnræði, en ekki valdi í krafti stærðar og hagsmuna hinna stóru.
Já, nú fekk sannleikurinn að hljóma á Austurvelli. Með orðum Rúv: Sigmundur Davíð sendi AGS og ESB tóninn. Hann sagði Íslendinga vilja taka virkan þátt í alþjóðasamstarfi, en: Við munum hins vegar ekki láta alþjóðastofnun segja okkur að ekki sé hægt að gera meira fyrir íslensk heimili um leið og minnt er á mikilvægi þess að ljúka uppgjöri efnahagshrunsins. Vel mælt!
Það vekur hins vegar athygli í Rúv-fréttinni, að þar var þeim orðum Sigmundar Davíðs sleppt, sem hér var byrjað á í þessari samantekt! Var sá sannleikur um "frammistöðu" Evrópusambandsins kannski of bitur fyrir þá Fréttastofu ríkisstjórnarútvarps, sem árum saman vann leynt og ljóst gegn hagsmunum og lagalegum rétti okkar Íslendinga í Icesave-málinu og er sjálf margítrekað höll undir Evrópusambandið?!
- Sigmundur gerði ICESAVE-deiluna að umræðuefni og sagði Íslendinga hafa tekið afdráttarlaust þá afstöðu að ekki ætti að leggja skuldir gjaldþrota banka á herðar almennings. Íslendingar hefðu ekki látið ógnanir úr ýmsum áttum slá sig út af laginu. Þá sagði Sigmundur fólk víða um Evrópu líta á Ísland sem fyrirmynd í baráttunni við við afleiðingar efnahagsþrenginganna sem margar Evrópuþjóðir takast nú á við. (Mbl.is.)
Og orðrétt: Íslendingar, afkomendur þessara víkinga, hafa löngum verið sjálfstæðir í hugsun og þolað illa yfirvald, hvað þá kúgun. Það sýndi sig vel í ICESAVE-deilunni þar sem þjóðin felldi samkomulag sem hún taldi ósanngjarnt. Alþjóðlegur dómstóll staðfesti síðan þessa niðurstöðu sem sýndi að réttlætistilfinning þjóðarinnar var góður vegvísir.
Evrópusambandið þarf að sanna sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjármál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:57 | Facebook
Athugasemdir
Vinsti menn eru ekki enn að trúa að þeir ráði ekki enn "Öllu " og verður þeim erfiður biti að kyngja !! Saman ber að tala við SJS beint i framhaldi af ræðu Forsætisráðherra um markrildeiluna .....Sumir kunna enga mannasiði !!!!!!!
rhansen, 17.6.2013 kl. 12:50
Sigmundur Davið flutti góða ræðu.
Þarna er komin sá leiðtogi sem Ísland vantaði.
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 17.6.2013 kl. 13:21
Þetta var góð ræða hjá Sigmundi, en illilega stingur í eyrun að hann skilur ekki muninn á hugtökunum fullveldi og sjálfstæði.
Hann hefði einnig mátt fara rétt með forsendu baráttunnar gegn Icesave-kröfunum. Kröfurnar voru ekki bara ósanngjarnar heldur ólöglegar. EFTA-dómstóllinn staðfesti málflutning Íslands og felldi þann úrskurð að kröfurnar væru ólöglegar.
Lagarök en ekki samningaleið leiddu til sigurs í Icesave-deilunni
http://samstada-thjodar.blog.is/blog/samstada-thjodar/entry/1282626/
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 17.6.2013 kl. 13:41
Það er athyglisvert, að ekki einasta slær Fréttablaðiðið EKKI hinum óvenjulega sterka boðskap forsætisráðherrans upp í forsíðufrétt í dag (setur fréttina á bls. 4 og setur andmælatilraunir Árna Páls Samfylkingarmanns þar við hliðina), heldur birtir blaðið þetta eitt um tal Sigmundar Davíðs um Icesave-málið:
""Íslendingar tóku afdráttarlaust þá afstöðu að ekki ætti að leggja skuldir gjaldþrota banka á herðar almennings og létu ekki ógnanir úr ýmsum áttum slá sig út af laginu, sagði hann og gagnrýndi Evrópusambandið fyrir að taka þátt í tilraunum til að þvinga Íslendinga til að taka á sig gríðarlegar byrðar í andstöðu við lög."
Þarna sleppti Fréttablaðið því að leyfa ennþá skorinorðari boðskap Sigmundar að koma fram: "ESB tók þátt í tilraunum til að þvinga Íslendinga til að taka á sig gríðarlegar efnahagslegar byrðar í andstöðu við lög og braut svo blað í sögu sinni til að taka þátt í málaferlum gegn Íslandi. Nú þarf ESB að sýna að það sé samband sem byggi á lögum og jafnræði, en ekki valdi í krafti stærðar og hagsmuna hinna stóru.“
Já, Fréttablaðið þarf að hlífa sínu Evrópusambandi, það á svo bágt um þessar mundir og ekki vert að strá salti í sárin. En við vitum mætavel um sök þess í Icesave-málinu.
Jón Valur Jensson, 18.6.2013 kl. 11:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.