Gungan Gordon Brown guggnaði á Stóra bróður, traðkaði svo á þeim litla

Við fall bandaríska risabankans Lehman Brothers, um miðjan sept. 2008, sem setti heimskreppuna í 5. gírinn, þorði breska ríkisstjórnin ekki að beita hryðjuverkalögum á útibú hans í Bretlandi þrátt fyrir gífurlegt útstreymi breskra punda úr landi. Nei, málið var að bankinn var í eigu stóra bróður!

Gungan Gordon Brown lá hins vegar á því lúalaginu, um þrem vikum síðar, að sýna breskum kjósendum og reyndar heimsbyggðinni allri mátt sinn og megin með því að beita hryðjuverkalögum gagnvart Landsbankanum (með útibú í Bretlandi) í eigu minnsta bróðurins í NATO.

Glætan að íslenska þjóðin, sem nú hefur fengið ákvörðunarvaldið í sínar hendur, fari að verðlauna þetta löðurmannlega athæfi Breta með því að samþykkja ósanngjarnar og ólögvarðar kröfur þeirra.

Verum ósmeyk og segjum afdráttarlaust NEI, minnug þess að við höfðum fullan sigur gegn yfirgangssömum Bretum í öllum þremur þorskastríðunum!!!

Daníel Sigurðsson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Leiftrandi góður pistill, alveg mátulega beinskeyttur. Kærar þakkir, Daníel.

Jón Valur Jensson, 18.3.2011 kl. 23:37

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það eiga allir málstað, tilskipun 94 segir hvernig eigi að bregðast við ef banki lendir í reiðfjárerfiðleikum  hún segir líka hverir eiga ekki rétt á staðgreiðslu við lokun bankans. Hér kom fram í fréttum að 2005 hefðu bankarnir lent í reiðufjárerfiðleikum. Sigurjón kom fram í Sjónvarpinu síðar og sagði þökk UK þá streyma peningarnir inn við hækkuðum raunvextina um 1% [50% hærri raunvextir]. Einnig hefur kom að líknafélög fengu meðmæli frá opinberum aðilum í UK að í lagi væri með Icesave. Darling sagði að hér hefði meira verið að í fjármálakerfinu en annarstaðar.  Ég tek það fram að ekkert af þessu gerir Ísland sem kennitölu eða þegna þess ábyrga fyrir neinum kröfum sem standast ekki gagnvart stjórnarskrá Íslands, og alls ekki sem er ekki í samræmi við tilskipun um einkavæðingu tryggingarkerfa og banka í EU og EES. 

90% af veltu ábyrgs banka eru í formi sjóða sem úr úr veðsöfnum: hér með furðulegri verðtryggingu í Alþjóðlegu samhengi. Samsvarandi  eðlileg veðsöfn erlendis eiga að tryggja nægt innstreymi reiðufjár á hverjum tíma. Bókfært raunvirði safnanna á að standa út lántökum bankans gagnvart öðrum bönkum sem mega ekki lána nema veð sé trygg. 

Besti hlut þessara safni eftir hrun var metin niður hvað varðaði íslenskt mat á raunvirði um 50%: afsláttu ekki látin ganga til greiðenda. Þetta voru alveg eins söfn og gerð var úttekt á 2004.  Vegna umsóknar um stofnum útibúa. Gæti skýrt hvers vegna EU bankar vildu ekki velta meiri lánum með Íslensku bönkum 2005: þeir máttu það ekki í ljós gallaðra veða, vildu það ekki til að tapa ekki  meiru. 

Ég er sammála Darling að hér var eitt rotið fyrir hrun og er ennþá til rotið eftir hrun. Ég segi líka aðilar áttu  að leika öllu um samskipti við UK. Ég er líka sammála DArling að UK hugsar um sína þegna. Því það eiga allar ríkistjórn að gera.   Eftir á að hyggja  hefði verið best að færa innstæður yfir í nýja banka strax 2004.  Aldrei breyta verðbóta aðferðum hér um aldamótin [greiðslur þyngjast meir en sem nemur verðbólgu] aldrei taka upp verðtryggingu á nafnvexti útlána um um 1983.

Erlendis er um nafnvextir samsettir út væntanlegum raunvöxtum + Á1 + Á2,..

Þar sem Á er áhætta til að afskrifa í öruggt veðbréfa safn þangað til hún er ekki til staðar og ráðgerð verðbólgu áhætta kemur alltaf síðast og er ein áhættan ef lán eru Prime: AAAA++++. 

Ég var heildsali og þurfti á sínum tíma AÐ REIKNA FJÁRAGNSKOSTNAÐ OFAN Á VÖRUVERÐ OG LÍKA HUGSANLEGA ÁHÆTTU VEGNA ÞESS AÐ ÉG LÁNAÐI SUMum ÁN ÖRUGGRA VEÐA, RÁÐGERÐ VERÐBÓLGA FER LÍKAN OFAN HJÁ HEILDSÖLUM.  

Búnaðarbankinn á þeim tíma lánaði hlutafélaginu sem ég vann hjá með víxli og myndaði áhættu varsjóð í bankanum í nafni fyrirtækisins sem voru ákveðin aföll af keyptum víxli með bak veði í innheimtukröfur fyrirtækisins.  Mín reynsla er sú að þegar grunsemdir vakna um að smásali sé að komast í reiðufjárvandræði, þá kemst viðskipta bankinn minn fljótt að því og þá byrjar ákveðið ferli þar sem hagsmuna aðilar skilja hvorn annan, ekkert þarf að segja eða semja um skriflega sem gæti verið notað fyrir  rétti  síðar meir.  Þetta er algjörlega löglegt og fært þeim sem hafa vita á alvöru viðskiptum. Skilja bókhald og þekkja persónuleika, vegna reynslu af því að umgangast viðskipta vini.

Ég hætti eftir að græðgi byrjaði á fullu og allt fylltist af illa menntuðum reynslu lausum sérfræðingum, hinsvegar var þetta lið sem ég hefði getað eins og aðrir af  gamla skólanum platað upp úr skónum.

Ég veit nákvæmlega hvernig ekki á bregðast í aðstæðum eins og Íslandi lenti í : það er nákvæmlega eins og brugðist var við  hér og er ennþá í gangi. Útrýma kostnaði en það er grunnur alla innri þjóðartekna. Því meiri kostnað sem sem þú hefur af rekstri því meira græðiru.  Sérstaklega ef þú þarft ekki að fá lánað fyrir honum á okurvöxtum.  

UK er ekki minna spillt en aðrir hinsvegar beinast efnahagshryðjuverka lög alfarið gegn einkaframtaki. Ekki almenningi í gisti landi hryðjuverkamanna. Einhver varð að loka bönkunum. Það er sama liði og afskrifar fyrir vildarvini og vildi leiða almenningi í skuldþrældóm um ókomna framtíð. Ef það sleppur sjálft með allt sitt á þurru.

Ég hafna Icesave og þá sem lítilsvirða sína eigin þegna. Icesave er ógeðslega útsmogið af UK. til tryggja sér betri tök á Íslandi. 2005 hljóta hagmuna aðilar hér að hafa íhugað að loka bönkunum og stofna nýja það er kynnt sér tilskipum 94 í þaula.  

Júlíus Björnsson, 19.3.2011 kl. 04:09

3 identicon

Ég las frábæra grein inni á siðunni hjá Jóni Val í gær eftir Reimar Pétursson

Ef að fólk gæti áttað sig á því að með þessari þjóðaratknæðagreiðslu er í raun verið að leita eftir að fá frá þjóðinni ríkisábyrgð em er ekki til stsaðar

Ef það gerist mun engin ríkisstjórn geta bjargað okkur upp úr því eins og konan sagði

Ég verð að játa það á mig að vera ekki búin að átta mig á þessu áður en g las grein Reimars Péturssonar

Sólrún (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 15:57

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kærar þakkir fyrir innleggin, öllsömul!

Eigum við ekki að bæta hér við nokkrum Icesave-vísum, þar sem Gordon Brown kemur einnig við sögu? Hallmundur Kristinsson, kvæðamaðurinn góði, kvað:

Ísseifur dvelur enn um sinn.

Ára hans misvel þokkuð.

Fagna má því að forsetinn

framlengdi líf hans nokkuð.

––––––––––Þessu svaraði ég þannig:

Brown og allt hið brezka lið

belginn kýlir digra.

Gefum ekki’ í gímaldið

golþorskinn úr Vigra.

Ísseifs drauginn ætlum við

á endanum að sigra!

–––––––––––Og hér er nýrri vísa frá Hallmundi; þar víkur hann að greinum hæstaréttarlögfræðinganna sjö, sem við höfum sagt frá hér á síðunni, og kollega þeirra átta, sem einnig hafa skrifað í Fréttablaðið. Vísan hans:

Ef þú virðist utangátta

Icesavelega séð

sannleik lögmenn sjö og átta

segjast vera með.

Jón Valur Jensson, 20.3.2011 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband