Guðni Th. Jóhannesson sendir okkur þrumu úr heiðskíru lofti

Rifjað er upp, að í riti sínu, The History of Ice­land, var Guðni Th. Jó­hann­es­son með gagn­rýni á Ólaf Ragn­ar forseta og máls­vörn hans fyr­ir Íslands hönd í Ice­save-málinu. Hefði dr. Guðni sýnt meiri snarp­leika en Ólafur í vörn fyrir lands­ins rétt í málinu, væri kannski hægt að skilja þetta, en þegar stað­reynd­irnar voru þvert á móti þær, að Guðni gekk öðrum framar í því að gleypa við Svav­ars­samningnum og mæla vinnu­lötum Svavari og nefnd hans bót, þá kemur þetta eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Lengi verður í minnum höfð frækileg vörn Ólafs Ragnars fyrir mál­stað Íslands í Icesave-málinu. Óumbeðinn fór hann utan til að glíma við öfl­ugustu frétta­menn BBC og annarra fjölmiðla og hafði betur!

En Guðni heldur því fram, að mál­futningur forsetans hafi þarna "í viss­um til­vik­um verið mis­vís­andi og af­vega­leiðandi". Og hann virðist sýta það, að mál­flutn­ing­ur þessi hafi tryggt hon­um stuðning til að sitja sem for­seti sitt fimmta kjör­tíma­bil. Og þetta stendur hér eftir, að hinn kokhrausti Icesave-samninga-stuðningsmaður Guðni segir for­seta Íslands hafa "af­vega­leitt" er­lenda blaða­menn, þegar umræðan um Ices­a­ve stóð sem hæst!

Eðlilega var hann spurður út í þetta af Morgunblaðinu (maðurinn sem sjálfur gerði sitt til að afvegaleiða almenning!):

Aðspurður hvað hann hafi átt við í text­an­um, seg­ir Guðni það oft flókið að út­skýra mál sitt þannig að er­lend­ir frétta­menn skilji til hlít­ar. Þess vegna hafi Ólaf­ur stund­um þurft að leiðrétta eða út­skýra orð sín upp á nýtt. Ólaf­ur hafi af­vega­leitt umræðuna, vilj­andi eða óvilj­andi ...

Dr. Guðni var í nógum vandræðum fyrir í Icesve-málinu (sbr. þá Frétta­blaðs­grein undirritaðs, sem tengill var gefinn á hér ofar), en Jón Baldur Lorange segir um þetta:

"Þarna vegur Guðni að forsetanum með lúalegum hætti, og minnir þetta óneitanlega á árásir Icesave-sinna og vinstri stjórnarinnar á forsetann á síðasta kjörtímabili. 

Allir viðurkenna í dag að Ólafur Ragnar Grímsson hafi stigið fram á ögurstundu af glæsibrag og haldið uppi þeirri málsvörn sem Ísland þurfti svo sárlega á að halda, þegar ríkisstjórn Íslands skilaði auðu. Sú málsvörn skilaði Íslandi farsælli niðurstöðu."

Fær nokkur um það efazt? Er það ekki einmitt dr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem stendur uppi með heiðurinn af því að hafa verið bezti varnarmaður þjóðarinnar, fremur en sá dr. Guðni, póstmódernískur (en helzt til villugjarn) sagnfræðingur, sem nú hyggst verða eftirmaður hans þrátt fyrir sína fortíð í slæmri álitsgjöf um eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar á síðari tímum?

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Ólafur fór stundum á ystu nöf“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. júní 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband