Ragnar Hall vill selja ömmu sína!

Muna menn eftir því þegar Ragnar Hall náði eyrum landsmanna með ábendingum sínum um gjaldþrotalögin ? Í grein eftir Ragnar sem birtist 10. júlí 2009 og nefndist Er þetta rétt reiknað? segir Ragnar:

 

»Þar sem Landsbanki Íslands hf. er gjaldþrota verða menn að nálgast viðfangsefnið eftir þeim reglum sem gilda um gjaldþrotaskipti - engu breytir í því sambandi þótt bankinn sé í umsjá skilanefndar og úrskurður hafi ekki verið kveðinn upp um gjaldþrotaskipti. Kröfur Icesave-eigenda eru forgangskröfur við gjaldþrotaskipti, hliðsettar launakröfum eftir þá breytingu sem gerð var á réttindaröð krafna með svokölluðum neyðarlögum í október síðastliðnum

 

Þetta er kjarni málsins, því að sjálfstætt ríki getur ekki látið af hendi lögsögu sína, hvað sem í boði er. Lögsöguleiðin er eina færa leið Íslands, hvort sem um er að ræða Icesave-málið eða önnur mál. Í Icesave-deilunni koma einkum við sögu Neyðarlögin, lög um TIF og gjaldþrotalögin.

 

Menn geta leikið sér að geta sér til um ástæður þess að Ragnar Hall hleypur núna frá þeim rökum sem hann varð þekktur fyrir. Eftir sem áður lifa rökin sjálfstæðu lífi og þótt Ragnar vilji nú gerast ómerkingur gerir það ekki rökin ómerk. Að manni læðist sá grunur að Ragnar Hall sé þeirrar gerðar að hann sé tilbúinn að selja ömmu sína. Fáum við að heyra einhver boð í gömlu konuna ?

 
Loftur A. Þorsteinsson.
 

mbl.is Hlynntur núverandi samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir þína góðu grein Loftur.

Kjarni málsins, rökin lifa áfram þó menn skipti um lið.  Það var lengi ljóst að flokkshollir Sjálfstæðismenn færu yfir þegar forysta flokksins þyrði loksins að opinbera stefnu sína.  

Það er kannski frétt ef tryggir flokksmenn gera það ekki.  Og sá fjöldi hefur komið mér glettilega á óvart, og fyllt mig bjartsýni á að við tökum þennan slag.

En Loftur, gætir þú ekki slegið aftur inn grein þar sem þú vitna í gögn sem staðfesta að Landsbankinn greiddi í breska tryggingasjóðinn.  Það er síðasti naglinn í líkkistu þeirra sem hræða þjóðina á dómsstólaleiðinni svokölluðu. 

Ef Landsbankinn var tryggður í Bretlandi fyrir því sem var umfram 20.000 evrur, þá er ljóst að enginn dómur tæki hið minnsta mark á kröfum þeirra um að íslenska ríkið greiddi þann kostnað sem hlaust af þeirri tryggingu.

Svona staðreyndir koma hvergi fram nema á bloggsíðu Þjóðarheiðurs.  

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 21.2.2011 kl. 19:03

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Allt er fall fyrir rétta upphæð. Sérstakaleg í ríkjum sem þjáðst af siðblindu og siðspillingu. 20% Hér eru örugglega helsjúk.  

Júlíus Björnsson, 21.2.2011 kl. 19:35

3 Smámynd: Elle_

Já, ég held það, Júlíus.  Mikið óheilt og skuggalegt við hvað mikill fjöldi landa okkar vill semja um viðbjóðslega kúgun yfir æsku landsins.   Ætli það séu kannski helsjúkir og gjörsamlega siðblindir menn??   Og ráðast nú á forsetann hver á fætur öðrum í sinni siðblindu og kasta stóru grjóti í hann og alla sem ekki vilja semja um kúgunina.  Við semjum ekki, við fellum ólögin og höfnum ICESAVE með öllu.

Elle_, 21.2.2011 kl. 19:59

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mín skýring á því hversvegna fyrst 4 forsetar lýðveldisins beitu aldrei neyðarvaldinu, er að slíks var ekki þörf meðan almennt meðalgreind og siðgæði var í lagi.  Steingrímur hefur aðrar skoðanir t.d. hann er nú Fjármálráðherra þessara þjóðar. Allir vissu hvað gengisjöfnuður var, veð  og efnahagskeppni milli stjórnasýslna.  Nú er þetta allt hulið leynd í regluverki EES.   Hinsvegar er öllu lýst sem á að fara leynt, því auðvelt fyrir þann greinda og læsa að geta sér til um hvað getur verið forsenda leyndar hverju sinni.

Opinber umræða var allt öðru vísi fyrir 1973, og greindar samanburður í uppvexti og smæð samfélaga gerði það að verkum að þeir sem komust til valda og áhrifa á efnahagsmálasviðinu sér í lagi  voru yfirleitt ekki nein meðalmenni. 

Hér á fólk að treysta í blindni stjórnsýslu sem sannarlega hefur gefið skít í almenning undanfarna áratugi og alls ekki sannað sig forsjála eða standa undir ábyrgð nema með undantekningum.   

Júlíus Björnsson, 21.2.2011 kl. 21:09

5 identicon

Ómar, hér er frumútgáfa af yfirlýsingu FSA (fjármálaeftirlit Bretlands). Ég átti þýðingu sem ég finn ekki, en flestir ráða við þennan einfalda texta.

    • Icesave was a trading name of Landsbanki Island HF...
    •  
    • Landsbanki Islands HF was authorised by the Financial Services Authority (FSA) from December 2001...
    •  
    • It had an office in London, which meant that, as it had a physical presence in the UK, it was required to top-up to the FSCS ...
    •  
    • We would confirm that the FSCS will pay compensation to the maximum limits, irrespective of the size of the levy paid to them.
    •  
    • Please be aware that there is no maximum levy.

     

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 21.2.2011 kl. 21:16

6 identicon

Hér er fjallað um innistæðu-tryggingarnar sem Landsbankinn var með í Bretlandi og Hollandi:

 19.03.2010: Forsendubrestir á Icesave-samningunum

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 21.2.2011 kl. 21:51

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

Loftur mér finnst vægt að kalla þetta misskilningi.

Steingrímur vill hafa frjálsar hendur að skuldabinda ríkið. USA mun ekki skipta sér af þótt mútur séu stundaðar í ríkjum þar það gildir samkvæmt siðvenjum. 

Öll ríkin sem vilja hafa leynd yfir fjármálum skylda ekki Ísland að skapa aðstæður fyrir siðspillingu. Ég er á móti fals ferlinu  frá upphafi. Og reikna fyllilega með að búið sér að gera ráð fyrir mótleiki á hverjum áfanga ferlisins.

Hér er verið að svipta Ísland fjárforræði til að auka raunhagvöxt í ríkju helstu lánadrottna í framtíðinni. 

Júlíus Björnsson, 22.2.2011 kl. 00:31

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Loftur.

Mér finnst gott að hafa þetta í vopnabúrinu.  Átti þetta einhvers staðar en hef ekki góða skjalastjórn, er samt að vinna í því.

En ég vil meitlaða grein, aftur, og þá í samhengi við atburði síðustu daga, og þær rangfærslur sem ESB fjölmiðlarnir matreiða ofan í þjóðina.  Slík grein er þitt svið, kjarnyrt og meitluð.  

Og aðrir lesa, hugsa um og vitna í.

Hlutverk okkar fótgönguliðanna er síðan að koma henni á vígstöðvarnar, þar sem hún gagnast í orrahríðinni.

Treysti á þig Loftur, þetta er sterkasta vopnið gegn mismunahræðsluáróðrinum.

Kveðja, Ómar.

Ómar Geirsson, 22.2.2011 kl. 08:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband