Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2016

Augnaopnandi grein um Icesave-mál

mynd 2016/01/29/GVOV7I6K.jpg Hjörtur J. Guðmundsson á enn einn snilldar­pistilinn um ESB-, EES og Icesave-mál í Morgun­blaðinu í dag: Icesave í boði EES; aðgengileg er hún þarna á netinu. Þar leiðir hann skýr rök að því, að þvert gegn fullyrðingum sumra um, að aðild Íslands að regluverki ESB að hluta til (gegnum EES-samn­inginn) hafi verið okkur til bjargar í Icesave-málinu, þá var það einmitt sú "aðild Íslands að EES-samn­ingn­um og illa hannað regluverk Evrópu­sam­bands­ins" sem "gerði útrás stóru bankanna þriggja, Landsbanka Íslands, Kaupþings og Glitnis, mögulega með þeim hætti sem staðið var að henni og sem síðan leiddi til Icesave-deilunnar við brezk og hollenzk stjórnvöld. Regluverkið átti þannig stóran þátt í að skapa Icesave-málið."

Nánar í grein Hjartar. Betur verður fjallað um hana síðar.

JVJ.


mbl.is Icesave-málið lifir enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill einhver Icesave-þjóninn Baldur Þórhallsson á Bessastaði?

Baldur Þórhallsson, milljóna styrkþegi ESB, átti létt með að fylgja Brussel-stefnunni um Icesave. Nú bregður nýrra við, ef einhverjir telja slíkan mann hæfan til að taka við af varnarmanni þjóðarinnar, Ólafi Ragnari, á Bessastöðum.

Menn ættu að rifja upp greinar eins og þessa: Baldur Þórhallsson telur vinstri flokkana ekki hafa talað (nógu mikið) fyrir Icesave-svikasamningunum!  

En um ESB-málflutning Baldurs, sjá Fullveldisvaktina í dag.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Baldur og Felix á Bessastaði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband