Við unnum Icesave-málið; 556 milljarða kr. krafa brezka FSCS og hollenzka seðlabankans er sýndarmennska

Þessar stofnanir geta sjálfum sér um kennt. Rétt er hjá Sigmundi Davíð forsætisráðherra, að innistæðulausar kröfur þeirra á hendur TIF eru "fyrst og fremst áminning um mikilvægi þess að ekki var fallist á upphaflegar kröfur þessara aðila í Icesave-málinu."

Það voru reyndar brezk stjórnvöld, sem í sjálfsréttlætingar- og lýðskrumsferli sínu haustið 2008 létu brezka innistæðutryggingasjóðinn greiða innistæðieigendum út allt sem þeir gátu vonazt eftir. Og reyndar var Landsbankinn með starfsleyfi í Bretlandi og það upp á þau býti, að reikningar innistæðueigenda voru tryggðir af þessum sama FSCS. Þetta kom skýrt í ljós, þegar varaformaður Þjóðarheiðurs, samtaka gegn Icesave, Loftur Þorsteinsson verkfræðingur, hafði fengið svör þess innistæðutryggingasjóðs við fyrirspurnum sínum.

Andstæðingum Íslands í þessu máli, í London, Amsterdam og Brussel, að ógleymdum "íslenzkum" nátttröllum, verður ekki að þeirri ósk sinni, að íslenzka ríkið eða almenningur verði látinn borga upp í kröfur erlendu tryggingasjóðanna vegna einkafyrirtækisins Landsbankans, enda var lagalegt sakleysi okkar og skuldleysi við sjóðina staðfest fullkomlega í úrskurði EFTA-dómstólsins.

Málið er ennfremur í mjög góðum höndum hinna færu lögfræðinga TIF, sem þekkja allan rétt okkar í þessu efni.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Krafan er góð áminning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Út og innflutnings GDP [sölu] gengið mun fljóta hér gagnvart Evrum og Pundum og því gagnvart Dollar. 183 ríki heims láta [sölu] gengi sín fljóta gagnvart PPP-dollar [alþjóða markaðsverð á öllum nýjum eignum á hverju ári] gengisstillingarsjóðs Sameinuðu þjóðanna og World bank.  Ríki sem beygja sig ekki undir þetta , gera það á eigin ábyrgð.  Seðlabankar USA  selja USA dollar í dag DGP[OER] hærra en DGP [PPP]. Það er meðal verðlag á því sem selst að meðaltali innan lögsögu USA á síðast ári, var ódýrara að meðaltali á öllum [183] lögsögu mörkuðum jarðar. => USA flytur inn meira af efnum en það flytur út. => Sparar sumar náttúru auðlindir sínar.

Krókur á móti bragði.

Júlíus Björnsson, 18.2.2014 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband