Björn Valur Gíslason hafnar lýðræðinu

Það var athyglisvert að heyra fulltrúa ríkisstjórnarinnar hafna lýðræði á Íslandi og niðurlægja Stjórnarskrána. Björn Valur er þó bara að flytja gamalt stef ríkisstjórnarinnar og töskubera hennar í öðrum stjórnmálaflokkum. Þetta fólk hefur í tvö ár hamast gegn ákvæði stjórnarskrárinnar um þjóðaratkvæði. Þetta fólk hefur lagt sig fram um að stjórna landinu úr myrkvuðum bakherbergjum.

 

Björn Valur hótaði því í Silfrinu, að ríkisstjórnin muni afnema Icesave-lögin, ef forsetinn hafni staðfestingu þeirra. Þetta væri gert til að hindra þjóðaratkvæði um þau og til að vanvirða, forsetann, Stjórnarskrána og almenning í landinu. Þessi ótrúlegi snati sagði:

»Auðvitað getur maður fabúlerað um ýmsa hluti. Í fyrsta lagi getur málið auðvitað farið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í öðru lagi geta þessir 44 þingmenn, þessi 70% þingheims, sem samþykktu málið, tekið það í sínar hendur, varið þingræðið, afturkallað þessi lög, myndað einhverskonar starfhæfa stjórn hér í landinu til að undirbúa kosningar, eftir sex mánuði eða svo, meðal annars til að endurskoða stjórnarskrána, ljúka þessu máli. Þetta er mál þingsins, ekki ríkisstjórnarinnar í dag. Þingið þarf að bregðast við, ekki ríkisstjórnin.«

Ef ríkisstjórnin og töskuberar hennar grípa til þeirra aðgerða sem Björn Valur boðar, verður þjóðin að verja frumburðarrétt sinn. Gera verður valda-aðlinum ljóst að lýðræði ríkir í landinu, sem merki að fullveldi landsins er í höndum almennings.

 

Þingræði er ekki til í Stjórnarskránni, nema í þeirri merkingu að ríkisstjórnin er undir eftirliti Alþingis. Þingbundin ríkisstjórn merkir að ríkisstjórnin er bundin af ákvörðum Alþingis, en gefur ríkisstjórninni ekkert umboð til sjálfstæðra athafna. Fullveldisrétturinn verður ekki látinn af hendi, síst af öllu í hendur þjóðsvikara eins og Björns Vals.

 
Loftur A. Þorsteinsson.

mbl.is Björn Valur: Icesave mál þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Harðarson

Nú er ég ekki með ríkisborgararétt í þessum heimi sem Björn Valur Gíslason lifir í en ég hef lært það að BVG skilur ekki það sem er að gerast í kringum sig. Það er með ólíkindum að hlusta á þennan mann á köflum. Hann er alveg á sér pláhnetu. Svo mikið er víst.

Ríkisstjórnin og alþingi allt hangir á bláþræði og það væri með eindæmum heimskulegt af þeim að hlusta á geimverurugl Björn Vals.

Pétur Harðarson, 20.2.2011 kl. 18:36

2 Smámynd: Elle_

Ég er alveg sammála þér, Pétur.  Skil oft ekki að hann skuli vera af jörðinni og hann vinnur ekki af heilindum, það mikið er víst.

Elle_, 20.2.2011 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband