VIÐ HARÐNEITUM AÐ VERA HÖFÐ AÐ FÉÞÚFU.

Ekki ætlar núverandi ríkisstjórn að gefast upp í Icesave-kúgun sinni gegn íslenskum almenningi. Og skiptir engum togum að Icesave hefur aldrei verið okkar skuld, hvorki lagalega né öðruvísi. Og hvað er Gylfi Magnússon að fara í neðanverðri Moggafrétt? Hvaða viljayfirlýsingu nákvæmlega er hann að meina?? „Við" hverjir lýsum yfir vilja okkar að leysa þessi mál farsællega og í hvaða tvíhliða samningum við Breta og Hollendinga??? Ekki erum það við landsmenn í heild sem viljum neina tvíhliða samninga við Breta og Hollendinga. Ekki þjóðin sem kolfelldi Icesave-nauðungina í mars sl.

Um 59,4% þjóðarinnar vill ekki borga 1 eyri fyrir Icesave. Það kom fram í könnun MMR, 2 dögum eftir að íslenska þjóðin kolfelldi ólögin um Icesave. Ólögin sem Icesave-stjórnin píndi í gegnum löggjafarvaldið og forsetinn synjaði. Hvað varð af Brusselviðmiðunum? EEA/EU tilskipun 94/19 EC, lögunum sem banna ríkisábyrgð á innistæðum? Og hvað meinar Gylfi með að farið hafi fram viðræður við Breta og Hollendinga um að þeir endurheimti höfuðstól þess fjár sem þeir hafa lagt af mörkum ásamt eðlilegum fjármagnskostnaði ef ásættanlegir samningar nást????? Hvaða fjár?? Hvaða fjármagnskostnaður?? Hvaða höfuðstóll?? Ríkissjóðir Breta og Hollendinga hafa EKKERT lagt af mörkum vegna Icesave og Icesave kemur bresku og hollensku ríkisstjórnunum akkúrat ekkert við. Í guðanna bænum hættið blekkingum um Icesave.

Það voru bankarnir sem borguðu lögbundið skyldugjald eða skylduskatt í bresku og hollensku tryggingasjóðina, líka Landsbankinn, og það var þaðan sem bæturnar komu til Icesave-innistæðueigenda. Ekki frá ríkissjóðum landanna tveggja. Icesave-stjórnin hefur ekkert leyfi til að semja við bresku og hollensku ríkisstjórnirnar eða semja við nokkurn mann um neinn Icesave-nauðungarskatt gegn íslenskum almenningi og skattborgurum vegna ólögvarinnnar kröfu evrópskra ofríkisvelda. Velda, sem ætla að nota okkur sem skattþúfu. Hvorki hafa þeir leyfi til að gera einhliða, tvíhliða, þríhliða eða neina samninga fyrir okkar hönd um neitt Icesave. Og löngu orðið mál að Icesave-vitleysunni linni. Við harðneitum að vera höfð að féþúfu að ósekju og munum aldrei á meðan við drögum andann sætta okkur við slíka kúgun.

Elle Ericsson.


mbl.is Gylfi: Engar nýjar skuldbindingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valan

Hvers er ekki sök er ekki skuld.  Frábært að þið séuð að halda áfram baráttunni. Takk fyrir mig.

Valan, 18.4.2010 kl. 19:13

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kærar þakkir, Vala. Þín orð eru þungvæg. Ég er viss um, að Elle metur þetta mikils.

Jón Valur Jensson, 18.4.2010 kl. 21:31

3 Smámynd: Elle_

Já, það geri ég, Vala og Jón.  Og takk fyrir falleg orð. 

Elle_, 18.4.2010 kl. 23:29

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Sæl öll ! Takk fyrir þessa  grein Elle og sannarlega berjumst við fram í rauðan dauðann. Eitt er að angra mig. Alltof margir hafa ekki hugmynd um hvaða órétti þessi ríkisstjórn er að beita okkur. Hún hefur að því virðist,ótakmarkaðan aðgang að ljósvakamiðlum,til að telja fólki trú um að okkur beri að borga.  Er ekki kominn tími á að helstu talsmenn okkar samtaka,komist þar að til að hrekja rangar staðhæfingar þeirra um að Icesave sé okkar skuld. Þjóðin kolfelldi Icesave-nauðungina í mars,er ekki tímabært að fulltrúar þess meirihluta komist að,til að rökstyðja og mótmæla,greinilegri fyrirætlan stjórnar,að þvinga nauðungarsamningum upp á þjóðina. 

Helga Kristjánsdóttir, 19.4.2010 kl. 00:19

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Má ég aðeins koma inn í þetta? –Já, svo sannarlega, helga, það er full ástæða til þess, að við fáum að komast þar að með okkar niður-þögguðu röksemdir! Fór ekki þjóðin flatt á allri þögguninni á "velmektarárunum"?! – Með kærri kveðju, og líttu brátt á póstinn þinn!

Jón Valur Jensson, 19.4.2010 kl. 00:37

6 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Ég er algjörlega sammála því sjónar miði að við borgum ekki neitt! Það er fultt af mönnum,alskonar lærðir menn,og líka útlendir sem tóku þátt í að smíða þessar reglur,sem ber að fara eftir í þessu máli,búnir að segja að við eigum ekki að borga!Þannig að við viljum ekki ætlum ekki og síðast enn ekki síst við GETUM EKKI.Af því að við erum farin endanlega á hausin ef við ljáum þessu gerræði máls.Ef þessi dæmalausa Ríkistjórn ætlar að keira á þetta,samt sem áður,ÞÁ breitist Ísland í PÚÐURTUNNU það er ekki flóknara enn það.

Þórarinn Baldursson, 19.4.2010 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband