Vefsíða Þjóðarheiðurs og nýja bloggið okkar

Samtökin Þjóðarheiður hafa líka opnað heimasíðu. Þar sem allir geta komið og skoðað efni það sem samtökin hafa verið að vinna með og sent út í þjóðfélagið.

Slóðin er:  http://wix.com/Thjodarheidur/main

Efni síðunnar er endurbætt daglega.

Þetta blogg hér er líka sérstaklega ætlað því fólki sem hefur gengið í samtökin okkar, en við erum nú orðin 62 talsins. 

Þeir, sem eru í samtökunum, með eigin bloggsíður og er sama þó nafn sitt sé birt, eru sérstaklega hvattir til að vera með og gerast bloggvinir okkar.

 

Yfirlýsing um málstað Íslands

 

Icesave-deilanvarðar lög og rétt. Það voru mistök hjá stjórnvöldum að gera ágreiningum málefni einkabanka að pólitísku og þjóðréttarlegu samningamáli. Alltfrá stofnun Alþingis árið 930 hefur metnaður og heiður þjóðarinnarstaðið til, að með ágreiningsefni væri farið að lögum. Um Icesave-útibúLandsbankans gilda skýrar lagareglur og þjóðin á heimtingu á, aðstjórnvöld gæti þeirra hagsmuna sem þeim er falið að gæta, með heiðurog sæmd almennings að leiðarljósi.

Þjóðarheiður-samtökgegn Icesave hafna því að íslenskum almenningi verði gert skylt að axlaskuldaklyfjar, sem eru til komnar vegna starfsemi Icesave-útibúaLandsbankans. Hvorki stjórnarskrá lýðveldisins né regluverkEvrópusambandsins heimila slíkar álögur. Þjóðarheiður telur að engarforsendur séu fyrir ríkisábyrgð á skuldum einkafyrirtækja, hvorkiLandsbankans né annarra. Nýta verður þann meðbyr, sem þjóðin nýturerlendis, til að halda fram heiðarlegum og réttum málstað Íslands.

Fullveldiíslenskrar þjóðar hefur ekki verið framselt í hendur stjórnvalda ogsamtökin Þjóðarheiður munu ekki ljá máls á vanhelgun stjórnarskrárinnarmeð slíkum gjörningi. Samtökin hafna öllum málamiðlunum ogundanlátssemi gagnvart kröfum gamalla nýlenduvelda. Hugmyndir umuppgjöf fyrir ósanngjörnum og ólöglegum kröfum Bretlands og Hollandsverða ekki liðnar. Þjóðarheiður mun berjast af einurð gegn slíkumsvikum.

Íslendingar, stöndum vörð um heiður þjóðarinnar.

 

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Til hamingju, Ísland, með þessi þjóðhollu samtök, stofnuð 24. febrúar 2010.

Til hamingju, Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave, með þetta bloggsetur!

Jón Valur Jensson, 18.3.2010 kl. 16:07

2 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Jón, ekki veitir af að gjöra fólki kunnugt okkar heiðvirða málsstað.

Til hamingju Ísland.

Áfram Þjóðarheiður! - NEI við Icesave

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 18.3.2010 kl. 17:44

3 identicon

Illaðgengilegt

baldur oskarsson (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 13:43

4 identicon

dasamlega illaðgengilegt=satt

anna kristrun jonsdottir (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 13:47

5 Smámynd: Jón Sveinsson

Já til hamingju öll sömul áfram Ísland NEI við Icesave

Jón Sveinsson, 19.3.2010 kl. 15:56

6 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Bara að láta vita að allar dónalegar og eða óviðurværilegar athugasemdir verða teknar út.

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 19.3.2010 kl. 16:46

7 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Ég þakka stofnendum samtakanna fyrir, þetta er það sem vantaði. til hamingju með framtakið. Burt með Icesafe!!! Burt með E.S.B.!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 19.3.2010 kl. 17:19

8 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Þakka þér kærlega fyrir Eyjólfur

Burt með Icesave!

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 19.3.2010 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband