Sérfræðiálit fjármálasérfræðinga til Alþingis: "Kostnaður gæti orðið 230 milljarðar" af Icesave-III

Frétt þessi er þegar farin út af aðalsíðu Rúv. 

Það er svolítið merkilegt að velta því fyrir sér, af hverju þessi frétt birtist þar í dag. Undirrituðum kom fyrst í hug: Eru Rúvarar að bæta fyrir Icesave-stefnu-málflutninginn sem þar hefur verið svo áberandi í þessari viku? Ítrekað hafa þeir gefið tilefni til gagnrýni á sig hans vegna, sbr. það sem hefur verið skrifað hér um afar ójafnvægiskenndan fréttaflutning þeirra af álitgjörð InDefence-manna um Icesave-III og lögfræðinganefndarinnar í þokkabót (sjá hér neðar á síðunni) – já, hlutdrægan fréttaflutning, svo vægt sé tekið til orða.

En þeir eru ekki líklegir til iðrunar, Rúv-fréttamenn, sem eru undir stjórn Óðins Jónssonar. Þegar undirritaður áttaði sig á því, að það var María Sigrún Hilmarsdóttir sem sá um þessa frétt og fréttastjórn Rúv í hádeginu í dag, þá rann það upp fyrir honum, að þarna hefur helgarfréttavakt hennar sennilega bjargað því, að þetta komst þar á framfæri, en María Sigrún kemur úr Sjálfstæðisflokknum, sem er líklega ekki í mun að bera ábyrgð á Icesave-stefnu núverandi stjórnvalda.

En forsendurnar eru enn, í þessum útreikningum, að gengið haldist nánast óhaggað. Þótt það sjáist ekki í þessari netfrétt Rúv, talaði þessi Valdimar Ármann hagfræðingur um það í viðtali í þessari frétt í hádeginu, að þarna væri gert ráð fyrir 1% gengissigi krónunnar á ári (ef undirritaður heyrði það rétt). En gengið hefur hækkað um a.m.k. 10% á árinu 2010 og gæti leikandi fallið um 5% eða mun meira á komandi misserum, sér í lagi ef gjaldeyrishöftin verða afnumin.

Morgunblaðið fekk í desember stærðfræðing til að leggja mat á hugsanlega greiðsluupphæð miðað við að Icesave-III-samningurinn yrði samþykktur, og þar kom fram, að áhættan gæti orðið jafnvel snöggtum meiri en þessir 230 milljarðar sem hér er talað um. 

Jón Valur Jensson. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Iceland already enjoys a high degree of integration with the EUthrough its membership of the European Economic Area (EEA)since 1994, as well as the Schengenarea, which allows its citizens to travel and work freely throughout the EU.

http://ec.europa.eu/enlargement/candidate-countries/iceland/relation/index_en.htm

50 ára plön sem eru tæknilega orðin að veruleika mun síðar verða skrá með stórkostlegu afrekum mannkyssögunar frá dögum Rómverja.

 http://ec.europa.eu/enlargement/the-policy/index_en.htm

Árangur er fjárfestinga virði til lengri tíma litið fyrirhæfa meirihlutan.

http://ec.europa.eu/enlargement/the-policy/from-6-to-27-members/index_en.htm

Hvernig og hvað mikið hafa raun þjóðatekjur Íslensks þegns hrapað í heildina í samburði við aðra þegna annarra efnahagslenda eða hæfra Ríkja?

Furðuleg þögn hefur verið um þetta afrek Umboðsins í Brussel frá upphafi.

Í samhengi eftir á líta er verð á orku og fiskishráefnum héðan að verða eða orðið viðunnandi að mati fulltrúa 500 milljóna neytenda aðallega í stórborgum Evrópsku Sameiningarinnar. 

Ef Brussel stýrir Evru gegn Dollar að eigin sögn. Þá telur varla nokkur maður með viti að Brussel stjórni ekki gengi Íslensku krónunnar. 

Brussel getur séð sér efnahagslega ávinning í heildina litið að Icesave fari ekki fyrir dómstóla. 

Júlíus Björnsson, 15.1.2011 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband