MÁR GUÐMUNDSSON, HALDIÐ ÞIÐ Í ALVÖRU AÐ VIÐ LÁTUM KÚGA OKKUR??

Ég var orðlaus í gær yfir frétt í mbl.is og kannski voru aðrir það líka.  Í það minnsta náði enginn nema einn maður að blogga við fréttina, sem hófst með þessum orðum: Enn er mikil óvissa um vaxtakostnað ríkissjóðs í tengslum við Icesave-skuldbindingarnar, samkvæmt Peningamálum Seðlabanka Íslands.  Enn óvissa um vaxtakostnað vegna Icesave  Já, þarna stendur VAXTAKOSTNAÐ RÍKISSJÓÐS Í TENGSLUM VIÐ ICESAVE-SKULDBINDINGARNAR.  Nú vitum við vel að ICESAVE er ekki okkar skuldbinding, heldur skuldbinding gamla Landsbankans og TIF.  Við vitum líka vel að engin ríkisábyrgð er á skuldbindingu Landsbankans og TIF.  Hvaðan kemur þá þessi frétt í mbl.is?

Næst segir: - - samkvæmt Peningamálum Seðlabanka Íslands.  Já, þarna kemur það: SAMKVÆMT PENINGAMÁLUM SEÐLABANKA ÍSLANDS.  Már Guðmundsson, hvaða vextir og af hvaða skuldbindingum?  Næst vísar fréttin í orð Össurar Skarphéðinssonar frá í fyrradag um að samkomulag um ICESAVE muni liggja fyrir fyrir lok ársins: Samningaviðræðum íslenskra stjórnvalda við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um lausn Icesave-deilunnar lýkur væntanlega fyrir lok árs, segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra í samtali við Reuters.
Lausn Icesave fyrir lok árs 

Ja-há, núna í nóvember eða í desember ætla ríkisstjórnarflokkarnir að pína yfir okkur landsmenn
ólöglegri rukkun Breta, Hollendinga og Evrópusambandsins.  Gegn lögum og þvert gegn okkar vilja.  Með hjálp Seðlabankans væntanlega.   Seðlabankastjóri ætti að útskýra málið fyrir okkur opinberlega.  Ekki þýðir neitt að spyrja Össur.  Núverandi stjórn hefur komið litlu gagnlegu í verk og hefur þó tekist að eyða gríðarlegum dýrmætum tíma í að koma yfir okkur þessari ólöglegu rukkun bresku og hollensku ríkisstjórnannaHalda þeir í alvöru að við látum bara kúga okkur??  Og sættum okkur bara við að vera ólöglega sköttuð fyrir ríkiskassa 2ja erlendra velda eins og hver önnur nýlenda?? 

Loks vil ég vísa í 4 pistla:

Axel Jóhann: Ein mynd kúgunar

GUÐMUNDUR JÓNAS: Svíkur stjórnarandstaðan í Icesave?

Ómar Geirsson: Svo sorglega satt er allt sem Þór segir.

Styrmir Gunnarsson: Hjálpuðu þeir okkur? -Nei. Þeir töluðu niður til okkar

 

EE.


mbl.is Enn óvissa um vaxtakostnað vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Endilega hlustið á Baldur Ágústsson, fyrrv. forsetaframbjóðanda, tala um Icesave NÚNA (kl. 18.00-18.20) í Útvarpi Sögu – mjög góður! -Verður svo kannski endurtekið í kringum kl. 11 eða fyrir 12 í kvöld.

Jón Valur Jensson, 4.11.2010 kl. 18:05

2 Smámynd: Elle_

E.S.: Gerum ekki þau mistök að fara niður á plan vinnumanna rukkaranna að vera að ræða um útreikninga af vöxtum af nauðung.  Eins og við vitum verður eitthvað af engu alltaf ekkert og neðar okkar manndómi að ræða það einu einasta orði. 0,1% af engu er jafn vitlaust og 190 þúsund%.

Elle_, 5.11.2010 kl. 11:09

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Fín grein hjá þér, Elle, góð áminning. Þetta eru þeir að gera þessir ólánsömu ríkisbubbar okkar í beru trássi við vilja þjóðarinnar, eins og Baldur undirstrikaði svo glögglega í erindi síu á fimmtudaginn.

Jón Valur Jensson, 6.11.2010 kl. 01:36

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

erindi sínu !

Jón Valur Jensson, 6.11.2010 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband